Akureyri - 05.06.2014, Síða 16
16 21. tölublað 4. árgangur 5. júní 2014
HÖRÐUR GEIRSSON, SAFNVÖRÐUR ljósmyndadeildar Minjasafnsins á Akureyri hefur þrotlausan áhuga og orku í sínu fagi.
Hér stendur hann við framhlið myndavélar sem hann hefur nýverið smíðað frá grunni. “Þetta er gamla linsan hans pabba,
ég smíðaði vélina utan um linsuna” sagði myndavélasmiðurinn þegar ljósmyndari blaðsins hitti hann í vikunni. Völundur
Við bjóðum allt að 75% fjármögnun til allt að 7 ára
Lántaki er skráður eigandi bílsins
Veðskuldabréf þar sem Sparisjóðurinn hefur
fyrsta veðrétt í bílnum
Lán vegna
bílakaupa
Ertu að kaupa bíl?
Kannaðu hvað Sparisjóðurinn getur gert fyrir þig
Íslensk samtíðar-
portrett – mann-
lýsingar á 21. Öld
Sumarsýning Listasafnsins á Ak-
ureyri verður opnuð laugardaginn 7.
júní kl. 15 og ber hún yfirskriftina
Íslensk samtíðarportrett – mann-
lýsingar á 21. öld. Á sýningunni gef-
ur að líta hvernig 70 listamenn hafa
glímt við hugmyndina um portrett
frá síðustu aldamótum til dagsins
í dag.
Hugmyndin um portrett felst í
því að draga fram á listilegan hátt
það sem öðrum er almennt hulið. Að
einskorða sig við portrett er ein leið
til að skoða á hvaða hátt íslensk-
ir listamenn fjalla um samtíðina. Á
þessari sýningu birtist áhorfendum
samtíðarsýn 70 listamanna sem hafa
tekist á við hugmyndina í víðum
skilningi og í áhugaverðu samspili
ólíkra birtingarmynda fást svör.
Á meðal listamanna sem eiga
verk á sýningunni má nefna Erró,
Ragnar Kjartansson, Kristínu
Gunnlaugsdóttur, Hallgrím Helga-
son, Steinunni Þórarinsdóttur,
Hugleik Dagsson, Aðalheiði S. Ey-
steinsdóttur, Baltasar Samper og
Ólöfu Nordal.
Sýningin stendur til 17. ágúst og
er opin alla daga nema mánudaga
kl. 10-17. Aðgangur er ókeypis. a
Uppáhaldsstaðir
barnanna
Börn og unglingar í leikskólan-
um Tröllaborg og Grunnskól-
anum austan Vatna í Skagafirði
hafa gefið út bæklinginn Heima-
byggðin okkar - Áhugaverðir
staðir séðir með augum barn-
anna. Bæklingarnir verða til sýn-
is á helstu ferðamannastöðum í
sumar. Verkefnið var tilnefnt til
foreldraverðlauna Heimila og
skóla en bæklingurinn er gefinn
út á nokkrum tungumálum. Þessi
þrjú metnaðarfullu börn sem eru
í hópi aðstandenda urðu á vegi
ljósmyndara á Hólum í Hjaltadal
fyrir skömmu. a
SVÍN-GOGH EFTIR KARL Jóhann Jóns-
son.
VIKULEG LEIÐSÖGN Í DAG
Í dag, fimmtudag kl. 12, býður Sjónlistamiðstöðin á Akureyri upp á leið-
sögn í Ketilhúsinu um sýningu Gísla B. Björnssonar, Fimm áratugir í grafískri
hönnun. Þá mun Guðrún Pálína Guðmundsdóttir, fræðslufulltrúi, leiða gesti
um sýninguna og fræða þá um verk og störf Gísla B. Viku síðar, fimmtu-
daginn 12. júní, verður leiðsögn um sumarsýningu Listasafnsins á Akureyri,
Íslensk samtíðarportrett – mannlýsingar á 21. öld, sem opnar næstkomandi
laugardag, 7. júní, kl. 15.
Um vikulegar leiðsagnir er að ræða sem verða til skiptis á hvorum stað
á hverjum fimmtudegi kl. 12. Nánari upplýsingar um dagkrána má sjá á
sjonlist.is.