Akureyri - 05.06.2014, Blaðsíða 21
5. júní 2014 21. tölublað 4. árgangur 21
Sagði upp eftir sigurinn
„Við erum ánægð með þessi úrslit,
þau eru í samræmi við það sem
við reiknuðum með, 25-28% fylgi.
Í sögulegu samhengi eru þetta þó
ekki góð úrslit fyrir sjálfstæðis-
menn á Akureyri en góð í öðru sam-
hengi,“ segir Gunnar Gíslason odd-
viti sjálfstæðismanna á Akureyri.
Gunnar sagði upp störfum sem
fræðslustjóri sl. mánudag, degi eftir
kosningasigurinn. Hann segir ótækt
að sitja beggja megin borðsins,
annars vegar sem fræðslustjóri og
hins vegar bæjarfulltrúi. Hann seg-
ist nú vera í atvinnuleit.
AÐ SJÁLFSÖGÐU VONBRIGÐI
Þótt sigur sjálfstæðismanna sé
staðreynd, flokkurinn er eina aflið
sem fékk þrjá bæjarfulltrúa kjörna
á Akureyri, þarf oddvitinn að
bíta í það súra epli að skipa ekki
meirihluta í bæjarstjórn næstu
fjögur árin.
„Það eru að sjálfsögðu vonbrigði.
Manni finnst skrýtið í raun að sam-
einaður L-listi, sem tapar 5 mönn-
um miðað við samanlagðan fulltrúa
A-lista og L-lista í síðustu kosning-
um, sé leiðandi í meirihlutaviðræð-
um. Maður skyldi ætla að fólk væri
að hafna þessum lista í kosningun-
um, en það er lítið hægt að gera í
því þegar bæjarfulltrúar taka sig
saman um þetta,“ segir Gunnar
með þunga í röddinni.
„Það lítur þannig út að menn hafi
verið búnir að taka ákvörðun um
að ræða saman nokkru áður en úr-
slit lágu fyrir, en lífið er bara svona.
Við fáum okkar tækifæri, minn tími
mun koma, en þetta eru mikil von-
brigði að eiga ekki kost að aðild að
meirihluta.
SNERIST EKKI UM 3JA
MANN L-LISTANS
Gunnar neitar að það hefði leitt
til annars meirihluta ef L-listinn
hefði hangið á þriðja manninum
sem flokkurinn missti í lokatölum.
Heyrst hefur þó að sjálfstæðis-
menn og L-listinn hefðu haft hug
á að mynda 2ja flokka meirihluta
ef hvort afl hefði náð inn þremur
mönnum. Gunnar segir að fyr-
ir lokaúrslit hafi verið búið að
tilkynna það í kosningamiðstöð
L-listans að Samfylking, Fram-
sókn og L-listi hygðust skipa nýja
meirihluta.
DAUFLEG BARÁTTA
Spurður um kosningabaráttuna
segir Gunnar að hún hafi verið ágæt.
„Mín upplifun var að hún hafi verið
heiðarleg og málefnaleg að lang-
mestu leyti. Margir töluðu reyndar
um að hún hafi verið daufleg. Það
voru ekki mörg stór mál sem braut
á, keimlíkar áherslur nema mið-
bæjarskipulagið. Við skárum okkur
þar aðeins úr. Mér fannst hins vegar
umfjöllun fjölmiðla mjög lítil. Það
var ekki mikið um sameiginlega
fundi þar sem menn gátu tekist á.
Vegna fjölda framboða gafst líka
lítill tími fyrir hvern og einn þegar
öllu liðinu var hóað saman. Þetta
var svolítið yfirborðskennt á köfl-
um.“
Gunnar segir að dýpt hafi skort
í umfjöllun en menn hafi verið
duglegir að skrifa greinar. Margar
stefnuskrár hafi verið vel unnar.
„Við lögðum gríðarlega vinnu í okk-
ar stefnuskrá og töldum hana góða.“
Vill að kjör fulltrúa verði bætt
Gunnar fékk flestar útstrikan-
ir allra frambjóðenda á Akureyri
eins og lesa má um í frétt á bls. 4
í blaði dagsins. Hann hefur afhent
uppsagnarbréf sitt sem fyrr segir
og stendur á tímamótum. En tel-
ur hann að launa verði betur störf
bæjarfulltrúa á Akureyri?
„Skoðun mín er ekki flókin í
þeim efnum, ég hef lengi haldið
fram að laun bæjarfulltrúa þyrftu
að vera hærri, hærra starfshlutfall
miðað við þær kröfur sem fólk ger-
ir almennt á bæjarfulltrúa. Það eru
gerðar kröfur um að bæjarfulltrúar
sinni samsiptum við íbúana, fylgi
málum eftir, séu á tánum í sínu eft-
irliti og svo framvegis. Til þessa alls
hljóta menn að þurfa tíma.“
REYNSLULEYSI = EMBÆTTIS-
MANNARÆÐI?
Gunnar ræðir einnig reynsluleysi
verðandi bæjarfulltrúa sem og
reynsluleysi síðasta meirihluta.
„Mér finnst ekki eðlilegt að svo mik-
il endurnýjun verði í bæjarstjórn
tvö kjörtímabil í röð. Ef fólk kall-
ar eftir meiri tengslum kallar það
á meiri tíma, aukið íbúalýðræði.
Það er ekki hægt að gera hvort
tveggja að vera með fjölskyldu og
vera í fullu í þessu starfi á þessum
launum. Reyndar er allt þetta ferli
býsna áhugavert. Ég hef varla sést
heima hjá mér eftir að ég fór í próf-
kjörið, það hafa öll kvöld og allar
helgar farið í þessa vinnu og hún
er í rauninni bara áhugamál eins
og þessu er stillt upp. Það verður
að íhuga breytingar á þessu kerfi.
Það að endurnýja svona stóran
hluta bæjarfulltrúahópsins þýðir
að margir bæjarfulltrúar koma inn
alveg óreyndir og það ýtir undir
embættismannaræði. Ég hef sagt
sem embættismaður að ef ég vildi
þá gæti ég ráðið býsna miklu.“ a
GUNNAR GÍSLASON, UM-
DEILDUR en ótvíræður
sigurvegari kosning-
anna á Akureyri. Fær
ekki að spreyta sig í
meirihluta bæjarstjórn-
ar og er ekki sáttur við
það.
Það er ekki hægt að
gera hvort tveggja að
vera með fjölskyldu og
vera í fullu í þessu starfi
á þessum launum.