Fréttablaðið - 19.02.2015, Blaðsíða 28

Fréttablaðið - 19.02.2015, Blaðsíða 28
FÓLK| TÍSKA Catherine Cote sker sig úr hvar sem hún kemur. Blaðamaður lagði fyrir hana nokkrar spurningar um stílinn og húðflúrið. HVERNIG MYNDIR ÞÚ LÝSA ÞÍNUM STÍL? „Ég hrífst af viktoríönskum Goth-stíl á sama tíma og ég elska allt sem er krúttlegt, neonlitað og glitrandi. Ég hrífst af þessum miklu andstæð- um. Síbreytilegir og skærir hárlitir eru jafnframt einkennandi fyrir minn stíl en nýlega ákvað ég þó að lita hárið alveg svart. Þegar ég sakna lit- anna set ég í mig litríkar hárlengingar. Þegar ég fer út á lífið er ég yfirleitt í öllu svörtu en nota ýkta og skærlita förðun og fylgihluti.“ ÁTTU ÞÉR EINHVERJAR TÍSKUFYRIRMYNDIR? „Ég er mjög hrifin af eistnesku söngkonunni Kerli. Hún fer sínar eigin leiðir og sést oft í neon- litum. Þá er ég hrifin af Amy Doan, stofnanda Suger pill Cosmetics, en hún er alltaf í krúttleg- um kawaii-fötum með mjög dramatíska förðun.“ HVERNIG MYNDIR ÞÚ LÝSA HÚÐFLÚRUNUM ÞÍNUM? „Flest þeirra tilheyra svokölluðum NewSchool- stíl en hann er í mestu uppáhaldi. Teiknimynda- fígúrur og litagleði eru þar í aðalhlutverki. Oliver Julliand hjá Glamort Tattoo í Montreal í Kanada á heiðurinn af megninu af þeim. Ég gjör- samlega elska allt sem hann gerir. Hann skilur mig fullkomlega og teiknar nákvæmlega eftir mínum óskum. Hver húðflúrmeistari hefur sinn stíl og sína styrkleika og ég er mjög ánægð með að hafa fundið Oliver. Ég legg það hiklaust á mig að fljúga til Kanada til að geta farið til hans.“ HVENÆR FÉKKSTU ÞÉR ÞITT FYRSTA HÚÐFLÚR? „Ég byrjaði í raun frekar seint eða í kringum tvítugt. Þá fékk ég mér bara einfalt húðflúr á úlnliðinn. Ég byrjaði í götun aðeins fyrr eða í kringum 17 ára aldurinn. Eftir fyrsta húðflúrið fór ég beint yfir í að gera ermi og nú er ég að láta húðflúra bakið í stíl. Það er þó verk í vinnslu enda bæði tímafrekt og kostn- aðarsamt. Ég ætlaði mér alltaf að fá mér húðflúr en vildi bíða þangað til ég væri komin með mótaðar hugmyndir og góðan húðflúrmeistara. Fyrir mér eru húðflúr ákveðin tegund af list og ég nýt þess að bæta fleirum í safnið. Ég kann vel að meta litríka húð.“ HVERT ER PLANIÐ? ÆTLAR ÞÚ AÐ FÁ ÞÉR FLEIRI HÚÐFLÚR? „Að sjálfsögðu. Um leið og þú færð þér eitt viltu fleiri. Þegar þú færð þér fleiri viltu enn fleiri. Planið er að vinstri hlið líkamans verði litríka hliðin en sú hægri dökk. Í framtíðinni ætla ég því að láta gera aðra ermi. Hún á að vera með raunsærri myndum og miklu fleiri smáatriðum í svörtum og gráum tónum. Ég hafði líka hugsað mér að láta húðflúra allan vinstri fótinn. Ég er þegar komin með allar hugmyndirnar en þar sem þetta er stórt og mikið verkefni mun það taka langan tíma. Þetta er heldur engin keppni. Mér finnst fínt að taka eitt fyrir í einu og fyrst þarf ég að klára bakið.” Catherine rekur naglastúdíóið Rainbow-nails. Hún sérhæfir sig í gelnöglum og gerir allt frá einföldum lítið skreyttum nöglum yfir í ýktar Disney-skotnar neglur með steinum og öðru skrauti. Hún handmálar öll smáatriði og er út- koman ólík því sem almennt þekkist. „Ég lærði á naglastofu í Montreal sem leggur áherslu á mjög ýktar neglur. Þar lærði ég mjög skapandi vinnu- brögð og býð nú Íslendingum að njóta þess.“ ■ vera@365.is HRÍFST AF ANDSTÆÐUM SKER SIG ÚR Naglasérfræðingurinn Catherine Cote hefur tileinkað sér afger- andi stíl sem hún kallar RainbowGoth. Hún er frá frönskumælandi hluta Kan- ada en flutti hingað til lands árið 2012. Hún hefur þakið stóran hluta líkamans með teiknimynda-húðflúri og er hvergi nærri hætt. ÝKT Catherine gerir allt frá einföldum lítið skreyttum nöglum yfir í ýktar Disney-skotnar neglur með steinum og öðru skrauti. Sjá nánar á Facebook undir Rainbow nails. MYNDIR/STEFÁN RÉTT AÐ BYRJA Catherine ætlar að láta fylla upp í teikningarnar á bak- inu með lit. Svo ætlar hún að láta gera ermi á hægri hendina og húðflúra allan vinstri fótinn. Bæjarlind 6 • S. 554 7030 Góðar buxnaleggings kr. 7.900.- Str. S-XXL nýtt kortatímabil Við erum á Facebook Bæjarlind 1-3 201 Kópavogur s: 571-5464 my styleStærðir 38-52 Smart föt, fyrir smart konur Netverslun á tiskuhus.is 1 8 -0 2 -2 0 1 5 2 1 :4 8 F B 0 6 4 s _ P 0 4 4 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 3 7 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 2 1 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 2 8 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 3 D A -3 2 5 C 1 3 D A -3 1 2 0 1 3 D A -2 F E 4 1 3 D A -2 E A 8 2 8 0 X 4 0 0 6 A F B 0 6 4 s C M Y K
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.