Fréttablaðið - 19.02.2015, Blaðsíða 48
19. febrúar 2015 FIMMTUDAGUR| MENNING BÍÓ | 36
48 ára Benicio Del Toro,
leikari
Þekktastur fyrir: Snatch, The Usual
Suspects og Traffic.
Sjóræningjar í Ástralíu
Mikið er um að vera í Queensland í
Ástralíu þar sem framleiðsla er hafin á
kvikmyndinni Pirates of the Caribbean:
Dead Men Tell No Tales. Myndin er sú
fimmta í röðinni um sjóræningjann Jack
Sparrow kaftein, sem Johnny Depp leikur.
Javier Bardem leikur óvin Sparrows sem
heitir Salazar kafteinn í nýju
myndinni og þá snýr Orlando
Bloom aftur í myndinni sem
Will Turner. Joachim Rønning
og Espen Sandberg leikstýra
myndinni en þeir leikstýrðu
meðal annars myndinni
Kon-Tiki. Gert er ráð fyrir
að myndin verði frumsýnd
í júlí árið 2017. 7,2/10 100% 93%
FRUMSÝNINGAR
7,9/10 7,5/10100%
Veiðimennirnir
(Fasandræberne)
Spennumynd
Helstu hlutverk: Fares Fares, Nikolaj
Lie Kaas, Pilou Asbæk.
The Gunman
Spennumynd
Helstu hlutverk: Idris Elba, Sean
Penn, Javier Bardem.
BÍÓFRÉTTIRAFMÆLISBARN DAGSINS
Hrúturinn Hreinn
Teiknimynd
Raddir: Omid Djalili, Richard Webber
og Kate Harbour.
Beðið er með mikilli eftirvæntingu eftir kvik-
mynd sem byggð er á litríkri sögu rappsveit-
arinnar N.W.A., frá Compton í Los Ang eles í
Bandaríkjunum. Löng og ansi ítarleg stikla úr
myndinni var frumsýnd fyrr í mánuðinum.
Með stiklunni fylgdi myndband sem sýndi
sjálfa Ice Cube og Dr. Dre keyra um gamla
hverfið sitt og ræða við tvo rappara sem tóku
við kyndlinum sem fulltrúar Compton í rapp-
senunni, þá Kendrick Lamar og The Game.
Ice Cub og Dr. Dre eru einmitt hluti af teym-
inu sem framleiðir myndina.
Leikur pabba sinn
Undirbúningur fyrir myndina hefur staðið
yfir í tæp sex ár og tók langan tíma að finna
rétta hópinn til þess að leika hljómsveitar-
meðlimina. Eftir að búið var að velja þá Jason
Mitchell og Corey Hawkins til að leika þá Eazy
og Dr. Dre var ákveðið að O’Shea Jackson Jr.,
sonur Ice Cube, myndi leika föður sinn. Mynd-
inni verður leikstýrt af F. Gary Gray, sem
hefur leikstýrt myndum á borð við Friday, Set
It Off, The Italian Job og Law Abiding Citizen.
Litrík saga
Saga N.W.A. er nokkuð stutt en ákaflega litrík.
Sveitin náði hæðum sem fáar, ef einhverjar,
rappsveitir hafa náð í sögunni. Sveitin varð til
þegar þeir Ice Cube og Dr. Dre fóru að semja
lög fyrir rappsveit sem var á snærum mógúls-
ins Eazy E. Sveitin hafnaði laginu sem þeir Dr.
Dre og Ice Cube sömdu og ákváðu þeir þá að
taka það upp sjálfir og fengu Eazy E með sér í
lið og sá hann um rappið. Þeir ákváðu að kalla
sig N.W.A., sem stendur fyrir Niggaz With
Attitude. Lagið, sem ber titilinn Boyz-N-The
Hood var tekið upp árið 1987. Fyrsta breið-
skífa sveitarinnar kom út árið árið 1989. Rapp-
menningin gjörbreyttist við útgáfu plötunnar
Straight Outta Compton.
Lögreglan ósátt við efnistök
Lögreglan í Los Angeles var ósátt við efnis-
tök sveitarinnar, þá sérstaklega í laginu Fuck
tha Police. Í stiklunni úr myndinni má sjá að
fjallað verður um stirð samskipti rappsveit-
arinnar við lögregluna. Frægt er að lögreglan
í Los Ang eles sendi útgáfufyrirtækinu Prior-
ity, sem gaf plötu sveitarinnar út, viðvörun,
vegna grófra texta sveitarinnar. Sveitin naut
ótrúlegra vinsælda í kjölfar útgáfunnar,
en Adam var ekki lengi í paradís. Strax ári
seinna byrjaði að kvarnast úr sveitinni, þegar
Ice Cube hætti vegna ósættis um peninga-
mál. Sveitin gaf út aðra plötu sem naut ekki
sömu vinsælda og árið 1992 var hún lögð
niður og meðlimirnir fóru að huga að sóló-
ferlum sínum. Þeir Ice Cube og Dr. Dre hafa
verið viðloðandi rappið síðan með góðum
árangri. Eazy E lést árið 1995 úr alnæmi en
naut vinsælda og virðingar fram á hinsta
dag. Hann uppgötvaði meðal annars sveitina
Bone Thugs N Harmony. MC Ren og DJ Yella
héldu einnig áfram í rappinu, en hafa ekki
notið sambærilegra vinsælda og þekktari
meðlimir N.W.A.
kjartanatli@frettabladid.is
N.W.A. kom beina leið frá Compton
Sonur rapparans Ice Cube leikur pabba sinn í mynd um hina goðsagnakenndu rappsveit N.W.A. sem gerði garðinn frægan á níunda
áratug síðustu aldar. Undirbúningur fyrir myndina hefur staðið yfi r í tæp sex ár, myndarinnar er beðið með mikilli eft irvæntingu.
LITRÍK SAGA Söguleg kvikmynd sem byggð er litríkri sögu rappsveitarinnar N.W.A. er væntanleg. NORDICPHOTOS/GETTY
➜ Undirbúningur fyrir myndina hefur
staðið yfir í tæp sex ár og tók langan
tíma að finna rétta hópinn til þess að
leika hljómsveitarmeðlimina.
1
8
-0
2
-2
0
1
5
2
1
:4
8
F
B
0
6
4
s
_
P
0
4
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
3
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
1
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
3
2
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
3
D
A
-0
A
D
C
1
3
D
A
-0
9
A
0
1
3
D
A
-0
8
6
4
1
3
D
A
-0
7
2
8
2
8
0
X
4
0
0
2
A
F
B
0
6
4
s
C
M
Y
K