Fréttablaðið - 09.03.2015, Blaðsíða 11
MÁNUDAGUR 9. mars 2015 | FRÉTTIR | 11
OPINN FRÆÐSLUFUNDUR
Efnaskiptasjúkdómar
Geðsjúkdómar
Hjartasjúkdómar
Offita
og fu
llorði
nssy
kursý
ki
Brj
óst
akr
abb
am
ein
Alz
he
im
er
s
VIÐSKIPTI Bjarni Benediktsson,
fjármála- og efnahagsráðherra,
ætlar að skoða hvort heppilegt sé
að einkaaðilar komi að milljarða
tuga uppbyggingu sem fram-
undan er á Keflavíkurflugvelli.
Unnin hefur verið uppbygging-
ar- og þróunaráætlun til næstu
25 ára.
„Það er nú þegar farinn af stað
áfangi sem er upp á meira en 20
milljarða og það er líka fyrirséð
miðað við þær áætlanir sem eru
í kortunum að þá þurfi í beinu
framhaldi að fara í annan ef
ekki stærri áfanga,“ segir Bjarni
Benediktsson varðandi uppbygg-
inguna framundan.
„Ég er ekki síst að horfa til
þess að það kann að vera heppi-
legt að ríkið taki ekki á sig alla
þá áhættu sem fylgir því að fara í
tugmilljarða viðbótarfjárfesting-
ar á Keflavíkurflugvelli og það
er ekki rökbundin nauðsyn að
ríkið eigi hvern einasta fermetra
í flughlöðum og tengibyggingum
sem einkaaðilar hafa sýnt áhuga
á að fjármagna og jafnvel eiga og
reka,“ segir hann.
Bjarni telur að það séu síðan
aðrir þættir sem þurfi að skoða.
„Til dæmis það hvort ríkið eigi
að vera rekstraraðili að komu-
versluninni, eða hvort það eigi
einfaldlega að bjóða slíka þætti
út,“ segir Bjarni. Það sé vilji til
þess að skoða þetta, meðal ann-
ars í þeim tilgangi að losa um
fjármagn og auka viðskipta-
frelsi.
- jhh
Ráðherra segir hugsanlega rétt að ríkið taki ekki á sig alla áhættu við uppbyggingu flugvallarins:
Einkaaðilar komi að uppbyggingu í Keflavík
Á IÐNÞINGI Bjarni Benediktsson fjár-
málaráðherra var á meðal gesta á Iðn-
þingi í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
Mohammed Emwazi, sem flestir
þekkja sem Jihadi John, böðul
Íslamska ríkisins, hefur beðið
fjölskyldu sína afsökunar á að
hafa valdið henni skömm.
Hann sér þó ekki eftir því að
hafa myrt gísla Íslamska ríkisins.
Hann er sagður hafa komið skila-
boðum frá Sýrlandi til fjölskyldu
sinnar, sem hefur farið í felur.
Á vef Independent segir að
Emwazi hafi beðist afsökunar á
þeim „vandamálum“ sem fylgt
hafa opinberun hans sem böðuls
ISIS.
Washington Post var fyrst til
að segja frá því að Emwazi væri
Jihadi John, í lok febrúar. - skó
Böðull Íslamska ríkisins:
Bað fjölskyldu
sína afsökunar
BJÖRGUN Haraldur Gústafsson,
hundaeigandi austur á Héraði,
sýndi snarræði þegar hann bjarg-
aði labradorhundi úr Lagarfljóti
í gær. Haraldur var á gangi með
hundinn sinn um hádegi í gær og
sleppti honum lausum. Hundur-
inn hljóp út á ís á fljótinu. „Hann
fer aðeins of langt og dettur
niður í gegnum ísinn.“ Hundur-
inn reyndi fyrst að synda og að
ná taki á ísnum til að bjarga sér
sjálfur, en tókst ekki og fékk því
hjálp frá Haraldi. - lb
Skreið út á ísilagða tjörn:
Bjargaði hundi
frá drukknun
VIÐSKIPTI Sætanýting hjá íslensku
flugfélögunum Icelandair og
WOW air hefur aldrei verið jafn
góð í febrúar eins og í nýliðn-
um mánuði, eftir því sem fram
kemur á vefnum Túristi.is.
Hjá Icelandair voru 77,7 pró-
sent sætanna nýtt, en hlutfallið
var 4,5 prósentum minna í febrú-
ar í fyrra. Hjá WOW air var hlut-
fallið 88,5 og hefur það aldrei
verið hærra í þessum mánuði.
Betri sætanýting var hjá WOW
air á seinni hluta síðasta árs en
því fyrra. Á fyrri helmingi voru
að meðaltali 76 prósent sætanna
bókuð en á seinni hluta ársins var
nýtingin 91 prósent. - skó
Staða flugfélaga batnar enn:
Næstum 90%
nýting sæta
MISKUNARLAUS Böðullinn sér ekki
eftir gjörðum sínum.
BETRI STAÐA Nýtingarhlutfallið var
88,5 prósent hjá WOW í fyrra.
FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
0
8
-0
3
-2
0
1
5
2
1
:4
0
F
B
0
5
6
s
_
P
0
5
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
4
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
0
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
1
1
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
4
0
F
-3
C
7
C
1
4
0
F
-3
B
4
0
1
4
0
F
-3
A
0
4
1
4
0
F
-3
8
C
8
2
8
0
X
4
0
0
5
B
F
B
0
5
6
s
C
M
Y
K