Fréttablaðið - 09.03.2015, Side 18
FÓLK|HEIMILI
FÓLK ER KYNNINGARBLAÐ sem býður aug lýsendum að kynna vörur og
þjónustu í formi viðtala og umfjallana ásamt hefðbundnum auglýsingum. Blaðið
fylgir Fréttablaðinu daglega.
Útgefandi: 365 miðlar | Ábyrgðarmaður: Svanur Valgeirsson | Hönnun: Silja
Ástþórsdóttir Sölumenn: Bryndís Hauksdóttir, bryndis@365.is, s. 512 5434
Jón Ívar Vilhelmsson, jonivar@365.is, s. 512 5429
Úgáfuhóf Mænu, tímarits útskriftarnema í grafískri hönnun frá Listaháskóla Íslands, verður haldið á miðvikudag 11. mars í SÍM-
salnum, Hafnarstræti 16. Klukkan 18. Þetta er sjötta
árið sem Mæna er gefin út en markmið Mænu er að
þenja mörk grafískrar hönnunar með tilraunastarf-
semi og tilraunakenndum samræðum.
„Mæna er fyrir alla sem hafa áhuga á grafískri
hönnun, vilja kynna sér um hvað hún snýst og sjá
hvað verið er að gera í Listaháskólanum. Þetta blað
er alls ekki bara fyrir faglærða,“ segir Hrefna Lind
Einarsdóttir, ein þeirra fimmtán útskriftarnema
sem vinna blaðið á ár.
„Mæna er alltaf unnin út frá ákveðnu þema
hvert ár og núna var þemað „kerfi“. Við sáum um
útlit blaðsins en það samanstendur af greinum og
ljósmyndum. Mæna er mjög frökk og litrík í ár,“
segir Hrefna. „Við gefum hana út í fimm hundruð
eintökum sem gefin verða í útgáfupartíinu. Fyrstir
koma, fyrstir fá en upplagið klárast yfirleitt alltaf,“
bætir hún við.
Greinarhöfundar eru meðal annarra Ármann
Jakobsson, Ásta Jóhannsdóttir, Bryndís Björgvins-
dóttir, Goddur, Hörður Lárusson og Thomas Pausz
en ritstjórn er í höndum Birnu Geirfinnsdóttur,
fagstjóra og lektors, og Bryndísar Björgvinsdóttur,
fagstjóra fræðagreina.
Hrefna segir vinnuna við blaðið hafa gengið vel
og hópurinn sé ánægður með afraksturinn.
„Við byrjuðum fyrir jól að vinna blaðið og skipt-
um með okkur verkum. Þetta var mikil tilrauna-
starfsemi, við vildum gera eitthvað nýtt og próf-
uðum okkur áfram. Það er lögð áhersla á fræðilega
umræðu, líflegar hugmyndir og skoðanaskipti en í
blaðinu er mikið af flottum greinum. Þetta hjálpaði
okkur sjálfum að víkka sjóndeildarhringinn og að
sjá hvað er hægt að gera hlutina á ólíkan hátt og
skerpti sýn okkar á hönnunarferlið. Blaðið sýnir vel
hvað grafísk hönnun er að gera,“ segir Hrefna Lind.
Hópurinn vann Mænu í samstarfi við prentsmiðj-
una Odda og Gunnar Eggertsson hf. og voru fyrstu
eintökin að koma úr prentun.
„Það er allt að verða tilbúið fyrir útgáfuhófið,“
segir Hrefna.
Á heimasíðunni mæna.is má skoða eldri útgáfur.
Sú nýjasta fer inn á vefinn við útgáfuna 11. mars.
MÆNA ER FRÖKK
OG LITRÍK Í ÁR
HÖNNUNARMARS Útskriftarnemar í grafískri hönnun við LHÍ bjóða í útgáfu-
hóf á miðvikudag í Hafnarstræti 16 en hópurinn gefur út tímaritið Mænu.
ÚTSKRIFTAR-
NEMAR GEFA
ÚT BLAÐ
Fimmtán graf-
ískir hönnuðir
útskrifast frá
Listaháskóla
Íslands í vor.
Hópurinn gefur
út tímaritið
Mænu og býður
í útgáfuhóf á
miðvikudag.
MYND/STEFÁN
Þórunn Árnadóttir hannar áhuga-
verð kerti undir heitinu Pyropet
Candles en skuggaleg „beina-
grind“ úr stáli kemur í ljós þegar
kertin brenna niður.
Fyrir þremur árum kynnti hún
kerti í kattarlíki
sem er nú komið
á alþjóðlegan
markað.
Á Hönnunar-
Mars í ár mun Þór-
unn kynna nýtt kerti
til sögunnar, fuglinn
Bíbí, en hann verður
fáanlegur í versl-
unum fljótlega eftir
að HönnunarMars
lýkur.
Bíbí verður sýnd-
ur í verslununum
SPARK | DE-
SIGN SPACE,
Hrím hönnunarhúsi, Aurum
Icelandic Design, Kraumi, Epal
og Minju.
„Kveikt verður á fyrsta kert-
inu þann 12. mars og á hverjum
degi HönnunarMars mun einn
Bíbí rísa upp úr öskunni líkt og
Fönix.“
Þá mun Þórunn efna til Insta-
gram-leiks þar sem gestir Hönn-
unarMars eru hvattir til að deila
myndum af Bíbí merktum #Pyro-
PetBibi og fær vinningshafinn Bíbí
í verðlaun.
HönnunarMars stendur dagana
12. til 15. mars.
BÍBÍ VERÐUR Í SPARKI
Vöruhönnuðurinn Þórunn Árnadóttir sló rækilega í gegn með kertinu Kisa sem
kynnt var á HönnunarMars árið 2012. Nú hefur fuglinn Bíbí bæst við.
Iðnbúð 2 • Garðabæ • Sími: 565 8070 • okkarbakari.is
Fæst í apótekum og heilsubúðum
P
R
E
N
TU
N
.IS
P
R
E
N
TU
N
IS
Bestu meltingargerlar
sem ég hef prófað
”
“Víðir Þór Þrastarsson,
íþrótta- og heilsufræðingur
frá Háskóla Íslands.
0
8
-0
3
-2
0
1
5
2
1
:4
0
F
B
0
5
6
s
_
P
0
3
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
3
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
1
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
2
7
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
4
0
F
-3
2
9
C
1
4
0
F
-3
1
6
0
1
4
0
F
-3
0
2
4
1
4
0
F
-2
E
E
8
2
8
0
X
4
0
0
4
B
F
B
0
5
6
s
C
M
Y
K