Fréttablaðið - 09.03.2015, Side 44

Fréttablaðið - 09.03.2015, Side 44
9. mars 2015 MÁNUDAGUR| MENNING | 20 NAUTA TATAKI Nautatataki, chili, kóriander, kex TÚNA Kolaður túnfiskur, bonito-gljái beikon, sítrónugrassmajó, kex NÆTURSALTAÐUR ÞORSKHNAKKI Grillað toppkál, blaðlaukur, quinoa, beurre blanc HVÍTSÚKKULAÐI OSTAKAKA Ástaraldin, bakað hvítt súkkulaði, kókosís SKÓLAVÖRÐUSTÍGUR 40 · 101 REYKJAVÍK · KOLRESTAURANT.IS Borðapantanir í síma 517 7474 eða info@kolrestaurant.is NÝR SPENNANDI MATSEÐILL Brot af því besta: LEIKHÚS ★★★★★ Billy Elliot Borgarleikhúsið í samstarfi við Baltasar Kormák HANDRIT LEE HALL TÓNLIST ELTON JOHN LEIKSTJÓRN BERGUR ÞÓR INGÓLFSSON ÞÝÐING KARL ÁGÚST ÚLFSSON LEIKARAR SÖLVI VIGGÓSSON DÝRFJÖRÐ, JÓHANN SIGURÐARSON, HALLDÓRA GEIRHARÐSDÓTTIR, SIGRÚN EDDA BJÖRNSDÓTTIR, HILMIR JENSSON, HILMAR GUÐJÓNSSON, GRETTIR VALSSON, JÓHANNA VIGDÍS ARNARDÓTTIR O.FL. LEIKMYND PETR HLOUSEK BÚNINGAR HELGA I. STEFÁNSDÓTTIR TÓNLISTARSTJÓRN AGNAR MÁR MAGNÚSSON LÝSING ÞÓRÐUR ORRI PÉTURSSON Eftir mikla leit að sjálfum Billy, stöðugar æfingar frá síðasta sumri og gríðarlega spennumögnun er loksins búið að frumsýna söngleik- inn Billy Elliot í Borgarleikhúsinu. Þrekvirki af þessu tagi er sjaldséð í íslenskri sviðslist og ekki þarf að leita lengra en í leikskrána til að sjá þann mikla mannfjölda sem kemur að sýningunni. Sagan er sjálfsagt mörgum þekkt en söngleikurinn Billy Elliot er byggður á margrómaðri bíómynd með sama nafni sem kom út fyrir tæpum fimmtán árum. Hand- ritshöfundur myndarinnar, Lee Hall, og leikstjóri hennar, Stephen Daldry, ákváðu að sagan um unga drenginn frá námuþorpinu í Dur- ham með langsóttan draum um að verða ballettdansari ætti heima á sviði. Elton John tók að sér að skrifa tónlistina fyrir verkið en Hall sjálfur sá um handritið og söngtextana. Áratugur er liðinn frá frumsýningu söngleiksins í London og gengur sýningin enn átta sinn- um í viku fyrir troðfullu húsi. Bergur Þór Ingólfsson ræðst þannig alls ekki á garðinn þar sem hann er lægstur en sú vinna sem hann og allir þeir sem standa að sýningunni hafa lagt í verkið er gjörsamlega þess virði. Sýningin er algjörlega mögnuð upplifun; kraft- mikill og tilfinningaríkur söng- leikur með firnasterkum leikhóp þar sem Billy sjálfur er fremstur í flokki. Sölvi Viggósson Dýrfjörð fór með hlutverk Billys á frumsýn- ingu en orð fá varla lýst hversu magnaður þessi ungi dregur er í sýningunni. Ef frammistaða hans er forsmekkurinn að hæfileikum þeirra Baldvins og Hjartar, sem leika einnig Billy, þá eiga áhorf- endur eitthvað stórkostlegt í vænd- um. Það er unun að fylgjast með honum takast á við burðarhlut- verk af þessu tagi og forréttindi að sjá fjölhæfni hans blómstra. Hann leikur og syngur af mikilli list en það eru dansatriðin sem eru algjörlega sér á parti og þá sér- staklega ballettsenurnar. Áhorf- endur fylgjast með honum vaxa og dafna í gegnum sýninguna, eitt spor í einu, og taka andköf þegar þeir gera sér grein fyrir hversu langt Sölvi/Billy hefur náð. Pabbi Billys, Jackie Elliot, er leikinn af Jóhanni Sigurðarsyni en hann er maður sem reynir að gera sitt allra besta við ómögulegar aðstæður en hreinlega kann ekki að vera einstæður faðir. Umkomu- leysi, sársauki og örvænting lita tilvist þessa manns en Jóhann er algjörlega tilvalinn í þetta hlut- verk, svo ekki sé nú minnst á hversu vel söngröddin hans pass- ar við hlutverkið. Lagið sem hann syngur til látinnar konu sinnar nístir hjartastrengina, húmor- inn er samt sem áður aldrei langt undan en heimsókn þeirra feðga í ballettskólann er bráðfyndin. Halldóra Geirharðsdóttir leik- ur keðjureykjandi danskennar- ann Mrs. Wilkinson sem stýrir litla ballettnámskeiðinu sínu með harðri hendi, þeirri sem heldur ekki á sígarettunni. Ég hef lengi sagt að hún sé ein hæfileikarík- asta leikkona Íslands og hún sann- ar það í þessu hlutverki með frá- bærum dansatriðum í bland við þrusugóðan leik. Hinn ungi Grettir Valsson hreinlega stal senunni í sínu stóra dansatriði þar sem Michael, vinur Bill ys, klæðir þá félaga upp í kjóla en senan endar í gríðarlega skemmtilegu uppbroti sem best er segja sem minnst frá. Eigin- lega er ómögulegt að telja upp alla þá einstaklinga sem ber að nefna þegar kemur að sýningunni en auk þeirra fyrrnefndu er vert að minn- ast á Sigrúnu Eddu í kostulegu hlutverki ömmunnar með ellig- löpin og Hilmi Jensson í hlutverki Tonys, eldri bróður Billys, en hann leysir það bráðvel. Þýðing Karls Ágústs á textan- um sem og lögunum heppnast með ágætum en stundum vottar fyrir of formlegu talmáli. Kynjapólitík- in í verkinu er einnig örlítið gam- aldags þar sem flestar kvenpers- ónurnar hafa í raun lítið að gera nema styðja karlpeninginn fyrir utan frú Wilkinson sem ýtir Billy á rétta braut. Einnig má benda á þá einföldu mynd sem dregin er upp af samkynhneigð í verkinu en þessi upptalning er kannski smá- munasemi. Sviðsmynd Petr Hlousek er einstaklega vel úthugsuð og ekki takmörkuð af hringsviðinu einu saman eins og svo oft sést á íslenskum leiksviðum. Hver fermetri Stóra sviðsins er nýtt- ur; námumennirnir hverfa ofan í jörðina, heill ballettskóli birt- ist ofan úr loftinu og litla þorpið í Norður-Englandi birtist ljóslifandi frá margvíslegum sjónarhornum. Aftur á móti er Bergur Þór ekki banginn við að tæma sviðið algjör- lega bæði í stórum senum sem og smáum, sérlega eftirminnilegt er atriði á milli Sölva og Karls Frið- riks sem leikur Billy síðar á lífs- leiðinni. Bergur Þór leikstýrir þessum risastóra hópi eins og áður sagði en hann hefur firnasterk tök á bæði fagurfræði og framsetningu með góðri aðstoð frá Helgu I. sem sér um búningana, sterkri tón- listarstjórn Agnars Más og feiki- flottri lýsingu Þórs Orra. Billy Elliot er ekkert annað en stórvirki. Hópsenurnar blandast oft virkilega skemmtilega saman þar sem smáar ballerínur, óeirða- lögreglan og námumennirnir þeys- ast um sviðið án þess að glundroð- inn taki öll völd. En sláandi hjarta sýningarinnar er Billy sjálfur og það er sko sjón að sjá. Deila má um hvort sýningin sé gallalaus en aftur á móti er ekki hægt annað en að dást að þeim gríðarlega metn- aði, elju og krafti sem settur er í verkið. Sigríður Jónsdóttir NIÐURSTAÐA: Metnaðarfullt stór- virki. Leiklistarviðburður sem enginn má láta framhjá sér fara. Þrekvirki í íslenskri sviðslist BILLY ELLIOT Sláandi hjarta sýningarinnar er Billy sjálfur og það er sko sjón að sjá. Verk Samuels Beckett eru af ein- hverjum ástæðum furðu sjaldséð í íslenskum leikhúsum. Beckett var ótvírætt eitt merkasta leik- ritaskáld síðustu aldar og hafa verk hans haft gríðarleg áhrif á leikritun víð um heim. Það eru því gleðitíðindi að leikhópurinn Svip- ir hafi nú afráðið að takast á við Endatafl. Þór Tulinius er einn af aðstandendum sýningarinnar og segir hann stefnt að því að frum- sýna í Tjarnarbíói þann fyrsta maí næstkomandi. „Þetta er svo mikil ráðgáta og dásamlegur texti. Þetta er eins og að vera inni í ljóði. Svo skemmtilega torskilið og djúpt en fyndið og skemmtilegt í senn. Beckett er hreint út sagt engum líkur og það er alveg ótrú- lega gaman að vinna með þennan texta.“ Leikstjóri uppfærslunnar er Krist- ín Jóhannesdóttir og á meðal ann- arra aðstandenda auk Þórs eru Þorsteinn Bachmann og Harpa Arnardóttir. „Við erum búin að hrinda af stað söfnun á Karol- ina Fund til að standa straum af kostnaði við sýninguna og biðlum til landsmanna um hjálp við að láta drauminn rætast.“ - mg Eins og að vera inni í ljóði Leikhópurinn Svipir stefnir að uppfærslu á Endatafl i eft ir Samuel Beckett með vorinu. ENDATAFL Þór Tulinius og Þorsteinn Bach- mann í leikhópnum Svipir stefna að frumsýningu með vorinu. MENNING 0 8 -0 3 -2 0 1 5 2 1 :4 0 F B 0 5 6 s _ P 0 5 3 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 4 4 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 0 4 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 1 3 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 4 0 F -2 8 B C 1 4 0 F -2 7 8 0 1 4 0 F -2 6 4 4 1 4 0 F -2 5 0 8 2 8 0 X 4 0 0 3 B F B 0 5 6 s C M Y K

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.