Fréttablaðið - 09.03.2015, Side 48

Fréttablaðið - 09.03.2015, Side 48
9. mars 2015 MÁNUDAGUR| SPORT | 24 DOMINOS KARLA KR - ÞÓR ÞORLÁKSHÖFN 120-78 (52-31) Stig KR: Michael Craion 30/19 fráköst/6 stoðsendingar, Darri Hilmarsson 17, Björn Kristjánsson 17/11 fráköst, Brynjar Þór Björnsson 12, Þórir Guðmundur Þorbjarnarson 10, Illugi Steingrímsson 9, Finnur Atli Magnússon 6, I. Magni Hafsteinsson 6, Helgi Már Magnússon 6/6 stoðsendingar, Þorgeir Kristinn Blöndal 5, Vil- hjálmur Kári Jensson 2. Stig Þórs: Grétar Ingi Erlendsson 18/9 fráköst, Oddur Ólafsson, Tómas Heiðar Tómasson 10/6 fráköst/5 stoðsendingar, Emil Karel Einarsson 10, Darrin Govens 8, Baldur Þór Ragnarsson 6, Nemanja Sovic 4, Þorsteinn Már Ragnarsson 4, Davíð Arnar Ágústsson 3, Halldór Garðar Her- mannsson 2, Sveinn H. Gunnarsson 1. GRINDAVÍK - FJÖLNIR 89-75 (39-40) Stig Grindavíkur: Rodney Alexander 30/11 fráköst, Oddur Rúnar Kristjánsson 16, Ólafur Ólafsson 15/7 fráköst, Jón Axel Guðmundsdóttir 14/8 fráköst/10 stoðsendingar, Daníel Guðni Guð- mundsson 8, Ómar Örn Sævarsson 6/12 fráköst. Stig Fjölnis: Jonathan Mitchell 35/12 fráköst, Davíð Ingi Bustion 12/9 fráköst, Róbert Sigurðs- son 7/10 stoðsendingar, Sindri Már Kárason 6/7 fráköst, Danero Thomas 5, Emil Þór Jóhannsson 4, Valur Sigurðsson 4, Garðar Sveinbjörnsson 2. Valgarðsdóttir 23 Leik Tindastóls og Hauka var ekki lokið þegar blaðið fór í prentun. OLÍS-DEILD KARLA AKUREYRI - VALUR 20-26 (11-12) Akureyri - Mörk (skot): Heiðar Þór Aðalsteins- son 7/2 (9/2), Kristján Orri Jóhannsson 4 (6), Nicklas Selvig 3 (12), Bergvin Þór Gíslason 2 (2), Þrándur Gíslason 1 (1), Heimir Örn Árnason 1 (2), Ingimundur Ingimundarson 1 (3), Halldór Logi Árnason 1 (3), Sigþór Heimisson (1). Varin skot: Hreiðar Levý Guðmundsson 6/1 (19/2, 32%), Tomas Olason 3 (16/1, 19%). Valur - Mörk (skot): Guðmundur Hólmar Helga- son 8 (12), Geir Guðmundsson 5 (9), Kári Kristján Kristjánsson 4/2 (5/2), Vignir Stefánsson 4 (6), Finnur Ingi Stefánsson 4 (8/1), Atli Már Báruson 1 (2), Ómar Ingi Magnússon (1), Alexander Örn Júlíusson (1). Varin skot: Hlynur Morthens 10 (28/2, 36%), Stephen Nielsen 2 (4, 50%). OLÍS-DEILD KVENNA STJARNAN - HAUKAR 20-21 (12-16) Markahæstar: Helena Rut Örvarsdóttir 4, Sólveig Lára Kjærnested 3, Stefanía Theodórsdóttir 3, Hanna Guðrún Stefánsdóttir 3, Nataly Sæunn Valencia 3, Þórhildur Gunnarsdóttir 3 - Marija Gedroit 10, Ragnheiður Ragnarsdóttir 4, Karen Helga Díönudóttir 2, Gunnhildur Pétursdóttir 2. ÍBV - KA/ÞÓR 23-15 (10-6) Markahæstar: Vera Lopes 7, Kristrún Ósk Hlyns- dóttir 5, Elín Anna Baldursdóttir 4, Ester Óskars- dóttir 3 - Paula Chirila 4, Þórunn Eva Sigurbjörns- dóttir 3, Arna Valgerður Erlingsdóttir 2, Birta Fönn Sveinsdóttir 2, Arna Kristín Einarsdóttir 2. GRÓTTA - FH 19-13 (7-7) Markahæstar: Karólína Bæhrenz Lárudóttir 5, Lovísa Thompson 5, Anna Úrsúla Guðmundsdóttir 4 - Ingibjörg Pálmadóttir 4, Aníta Mjöll Ægisdóttir 2, Heiðdís Rún Guðmundsdóttir 2. HK - SELFOSS 25-25 (10-10) Markahæstar: Þórhildur Braga Þórðardóttir 8, Sóley Ívarsdóttir 4, Gerður Arinbjarnar 4 - Carmen Palamariu 8, Perla Ruth Albertsdóttir 4, Elena Birgisdóttir 4. FYLKIR - VALUR 22-28 (14-15) Markahæstar: Patrícia Szölösi 5, Vera Pálsdóttir 4, Sigrún Birna Arnardóttir 4 - Kristín Guðmunds- dóttir 10, Íris Ásta Pétursdóttir 5, Bryndís Elín Wöhler 5. ÍR - FRAM 19-33 Leikskýrsla barst ekki frá ÍR Stig liða: Grótta 36, Fram 32, Stjarnan 32, Haukar 28, ÍBV 24, Valur 22, Fylkir 20, Selfoss 16, HK 15, FH 9, KA/Þór 5, ÍR 1. FÓTBOLTI Klukkan 19:45 í kvöld leiða sigursælustu lið í sögu ensku bikarkeppninnar, Manchester United og Arsenal, saman hesta sína á Old Trafford. Arsenal er ríkjandi bikarmeistari en Skytturnar fögnuðu sínum ellefta bikarmeist- aratitli eftir 3-2 sigur á Hull City í úrslitaleik á síðasta vor. Það var fyrsti titill Arsenal frá árinu 2005. Líkt og fyrir tíu árum er Arsene Wenger við stjórnvölinn hjá Arsenal en það er nýr maður í brúnni hjá Manchester United, Louis van Gaal, sem státar af þeim árangri að hafa unnið titil á sínu fyrsta tímabili hjá öllum þeim félagsliðum sem hann hefur stýrt. Wenger og Van Gaal eru elstu knattspyrnustjórarnir í ensku úrvals- deildinni en leikurinn á morgun verður sá fimmti milli liða Wengers og van Gaals en sá fyrrnefndi á enn eftir að vinna Hollendinginn. Þeir mættust fyrst í riðlakeppni Meistaradeildarinnar 1999 þegar van Gaal stýrði Barcelona. Liðin gerðu 1-1 jafntefli á Nývangi en Börsungar unnu seinni leikinn 2-4. Manchester United hafði svo betur gegn Arsenal, 1-2, í leik liðanna í úrvalsdeildinni í nóvember á síðasta ári. - iþs Tekst Wenger loks að vinna van Gaal? REYNSLAN Van Gaal og Wenger mætast í fjórða sinn í kvöld. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY FRJÁLSAR Hrafnhild Eir R. Hermóðsdóttir, hlaupakona úr ÍR, var nálægt því að slá Íslandsmet sitt í 60 metra hlaupi á EM í frjálsum íþróttum innanhúss í Prag um helgina. Hrafnhild kom í mark á 7,52 sekúndum en Íslandsmetið sem hún setti á Meistaramóti Íslands í byrjun febrúar er 7,50 sekúndur. Þrátt fyrir gott hlaup endaði Hrafnhild í sjöunda og síðasta sæti í sínum riðli í undanrásunum. Dafne Schippers frá Hollandi kom fyrst í mark á 7,07 sekúndum. Liðsfélagi Hrafnhildar úr ÍR, Einar Daði Lárusson, varð að draga sig út úr keppni í sjöþraut vegna veik- inda. Einar, sem var einn af þeim fimmtán sem voru skráðir til leiks í sjöþrautinni, veiktist fyrstu nóttina eftir komuna til Prag og gat af þeim sökum ekki verið með í keppninni. - iþs Hrafnhild nærri Íslandsmeti SPORT BLAK KA og Afturelding urðu bikar meistarar í blaki um helgina, en bikarhelgi Blaksambands Íslands fór þá fram í Laugardals- höllinni. KA vann HK, sem átti titil að verja, en KA vann viðureignina 3-1 (26-24, 25-23, 21-25, 25-21). HK vann bikarinn 2013 og 2014 og hefði fengið hann til eign- ar með sigri í ár. KA-menn voru hins vegar á öðru máli, spiluðu virkilega vel í úrslitaleiknum og tryggðu sér sinn sjötta bikarmeist- aratitil. Líkt og í karlaflokki hafði HK unnið bikarinn tvö síðustu ár hjá konunum og hefði með sigri í ár fengið hann til eignar. Afturelding hefur hins vegar farið á kostum kvennamegin í vetur og ekki tapað leik. Þær eru nýkrýndir deildarmeistarar og tóku lið HK í bakaríið í Höllinni í gær. HK sá aldrei til sólar og Mos- fellingar unnu viðureignina 3-0. Hrinurnar fóru 25-15, 25-15 og 25-17. Þetta var annar bikarmeistara- titillinn sem Afturelding vinnur í sögu félagsins en sá fyrri kom í hús árið 2012, á fyrsta ári Mosfell- inga í úrvalsdeild. - ail Sigurganga HK rofi n KA og Aft urelding sigurvegarar helgarinnar í blaki. BIKARINN Á LOFT KA lagði ríkjandi bikarmeistara HK að velli í úrslitaleiknum. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI FRJÁLSAR Aníta Hinriksdóttir, hlaupakona úr ÍR, hafnaði í 5. sæti í 800 metra hlaupi á Evr- ópumeistaramótinu í frjálsum íþróttum innanhúss sem fram fór í Prag um helgina. Aníta, sem varð 19 ára fyrr á þessu ári, var yngst þeirra fimm sem hlupu til úrslita í gær. Selina Büchel frá Sviss bar sigur úr býtum í hlaup- inu en hún kom í mark á tímanum 2:01,95 sekúndum, fjórum hundr- aðshlutum úr sekúndu á undan Yekaterinu Poistogovu frá Rúss- landi. Markmiðið var að komast í úrslit „Ég veit það ekki alveg,“ sagði Aníta í samtali við Fréttablaðið í gær, aðspurð hvað henni fyndist um úrslitahlaupið. „Aðalmarkmiðið var komast í úrslit og ég er ánægð að hafa náð því. Maður verður að reyna sig gegn þeim bestu á stórmótum og ég er alveg að komast í þennan klassa. Allar stelpurnar í úrslit- unum eru sterkar og jafnar og það gat allt gerst,“ bætti Aníta við. Aníta segir að reynslan frá EM í Prag muni nýtast vel í framtíð- inni: „Ég er ánægð með mótið í heild sinni og þetta var skemmti- leg reynsla. Ég verð með meira sjálfstraust á næsta móti.“ Aníta náði forystu í úrslita- hlaupinu á fyrsta hring en gaf aðeins eftir á lokasprettinum og endaði að lokum í fimmta og neðsta sæti. Aníta kom í mark á 2:02,74 mínútum en Íslandsmetið, sem hún setti í undanrásunum á föstudaginn, er 2:01,56 mínútur. Sá tími var sá næstbesti sem náð- ist á EM í Prag, en sú eina sem náði betri tíma var áðurnefnd Poistogova, bronsverðlaunahafi frá síðustu Ólympíuleikum. Poistogova var í sama riðli og Aníta í undanrásunum en sú rússneska kom í mark á tíman- um 2:01,44, tólf hundraðshlutum úr sekúndu á undan Anítu. Þær mættust svo aftur í úrslitunum. Endaspretturinn skiptir öllu Hlaup sem þessi eru oftar en ekki mjög taktísk, þar sem keppendur reyna að stjórna hraðanum þann- ig að þeir eigi nóg eftir á tankin- um fyrir endasprettinn. „Það gerist mest á síðustu 70 metrunum og ég hélt ekki alveg fókus undir lokin,“ sagði Aníta og bætti því við að á þessum tíma- punkti á ferli hennar væri sú taktík að keyra upp hraðann sú öruggasta. Önnur hlaupakona sem er þekkt fyrir að keyra upp hraðann og taka frumkvæði er hin breska Jenny Meadows sem vann til gull- verðlauna á EM innanhúss árið 2011. Meadows var í sama riðli og Aníta í undanúrslitunum og kom fjórða í mark á tímanum 2:02,40, níu hundraðshlutum úr sekúndu á eftir Anítu sem endaði í þriðja sæti. Staðan breyttist hins vegar eftir að undanúrslitunum lauk. Fyrst var hin rússneska Anast- asiya Bazdyreva dæmd úr leik fyrir að stíga út af hlaupabraut- inni þegar hún tók fram úr Anítu á lokasprettinum. Sjálf sagðist Aníta ekki hafa tekið eftir því í hita augnabliksins og atvikið hafi ekki truflað hana neitt. Bretar kærðu niðurstöðuna og Bazdyreva var í kjölfarið dæmd úr leik. Aníta færðist því upp í annað sætið og Meadows upp í það þriðja og komst þar með í úrslitin. En stuttu fyrir úrslitahlaupið dró sig Meadows út úr keppni vegna veikinda. Þetta breytta landslag hafði áhrif á það hvernig Aníta nálgaðist hlaupið. „Hún vill keyra upp hraðann og það hefði verið þægilegt að hanga fyrir aftan hana,“ sagði Aníta sem á eftir að vinna meira í taktíkinni á næstu mánuðum. En hvað tekur nú við hjá þessari efnilegu hlaupa- konu sem nálgast toppinn óðfluga? „Nú ætla ég að hvíla mig aðeins og síðan taka við æfinga- búðir fyrir sumarið,“ sagði Aníta að lokum. ingvithor@365.is Er að nálgast þær bestu Aníta Hinriksdóttir lenti í 5. sæti í 800 metra hlaupi á EM í frjálsum íþróttum í Prag. Hún kom í mark á tímanum 2:02,74 mínútum. Aníta er reynslunni ríkari og segist mæta sterkari til leiks á næstu stórmótum. Á SPRETTI Aníta Hinriksdóttir var með næstbesta tímann í bæði undanrásunum og undanúrslitunum í 800 metra hlaupi. FRÉT- GULLVERÐLAUN 1977 Hreinn Halldórsson - kúluvarp GULLVERÐLAUN 1996 Vala Flosadóttir - stangarstökk BRONSVERÐLAUN 1994 Pétur Guðmundsson - kúluvarp BRONSVERÐLAUN 1996 Jón Arnar Magnússon -sjöþraut BRONSVERÐLAUN 1998 Vala Flosadóttir - stangarstökk 4. sæti 2000 Vala Flosadóttir - stangarstökk 4. sæti 2002 Jón Arnar Magnússon - sjöþraut 5. sæti 1992 Pétur Guðmundsson - kúluvarp 5. sæti 1998 Jón Arnar Magnússon - sjöþraut 5. sæti 2015 Aníta Hinriksdóttir - 800 metra hlaup 6. sæti 1974 Ágúst Ás- geirsson - 1500 metra hlaup 6. sæti 1981 Hreinn Halldórsson - kúluvarp ➜ Besti árangur Ís- lendinga á EM í frjálsum innanhúss 0 8 -0 3 -2 0 1 5 2 1 :4 0 F B 0 5 6 s _ P 0 4 9 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 4 8 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 0 8 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 0 9 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 4 0 F -5 0 3 C 1 4 0 F -4 F 0 0 1 4 0 F -4 D C 4 1 4 0 F -4 C 8 8 2 8 0 X 4 0 0 7 B F B 0 5 6 s C M Y K

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.