Fréttablaðið - 09.03.2015, Qupperneq 44
9. mars 2015 MÁNUDAGUR| MENNING | 20
NAUTA TATAKI
Nautatataki, chili,
kóriander, kex
TÚNA
Kolaður túnfiskur, bonito-gljái
beikon, sítrónugrassmajó, kex
NÆTURSALTAÐUR
ÞORSKHNAKKI
Grillað toppkál, blaðlaukur, quinoa,
beurre blanc
HVÍTSÚKKULAÐI
OSTAKAKA
Ástaraldin, bakað hvítt
súkkulaði, kókosís
SKÓLAVÖRÐUSTÍGUR 40 · 101 REYKJAVÍK · KOLRESTAURANT.IS
Borðapantanir í síma 517 7474
eða info@kolrestaurant.is
NÝR
SPENNANDI
MATSEÐILL
Brot af því besta: LEIKHÚS ★★★★★
Billy Elliot
Borgarleikhúsið í samstarfi
við Baltasar Kormák
HANDRIT LEE HALL
TÓNLIST ELTON JOHN
LEIKSTJÓRN BERGUR ÞÓR INGÓLFSSON
ÞÝÐING KARL ÁGÚST ÚLFSSON
LEIKARAR SÖLVI VIGGÓSSON DÝRFJÖRÐ,
JÓHANN SIGURÐARSON, HALLDÓRA
GEIRHARÐSDÓTTIR, SIGRÚN EDDA
BJÖRNSDÓTTIR, HILMIR JENSSON, HILMAR
GUÐJÓNSSON, GRETTIR VALSSON,
JÓHANNA VIGDÍS ARNARDÓTTIR O.FL.
LEIKMYND PETR HLOUSEK
BÚNINGAR HELGA I. STEFÁNSDÓTTIR
TÓNLISTARSTJÓRN AGNAR MÁR
MAGNÚSSON
LÝSING ÞÓRÐUR ORRI PÉTURSSON
Eftir mikla leit að sjálfum Billy,
stöðugar æfingar frá síðasta sumri
og gríðarlega spennumögnun er
loksins búið að frumsýna söngleik-
inn Billy Elliot í Borgarleikhúsinu.
Þrekvirki af þessu tagi er sjaldséð
í íslenskri sviðslist og ekki þarf að
leita lengra en í leikskrána til að
sjá þann mikla mannfjölda sem
kemur að sýningunni.
Sagan er sjálfsagt mörgum þekkt
en söngleikurinn Billy Elliot er
byggður á margrómaðri bíómynd
með sama nafni sem kom út fyrir
tæpum fimmtán árum. Hand-
ritshöfundur myndarinnar, Lee
Hall, og leikstjóri hennar, Stephen
Daldry, ákváðu að sagan um unga
drenginn frá námuþorpinu í Dur-
ham með langsóttan draum um að
verða ballettdansari ætti heima
á sviði. Elton John tók að sér að
skrifa tónlistina fyrir verkið en
Hall sjálfur sá um handritið og
söngtextana. Áratugur er liðinn frá
frumsýningu söngleiksins í London
og gengur sýningin enn átta sinn-
um í viku fyrir troðfullu húsi.
Bergur Þór Ingólfsson ræðst
þannig alls ekki á garðinn þar sem
hann er lægstur en sú vinna sem
hann og allir þeir sem standa að
sýningunni hafa lagt í verkið er
gjörsamlega þess virði. Sýningin er
algjörlega mögnuð upplifun; kraft-
mikill og tilfinningaríkur söng-
leikur með firnasterkum leikhóp
þar sem Billy sjálfur er fremstur
í flokki.
Sölvi Viggósson Dýrfjörð fór
með hlutverk Billys á frumsýn-
ingu en orð fá varla lýst hversu
magnaður þessi ungi dregur er í
sýningunni. Ef frammistaða hans
er forsmekkurinn að hæfileikum
þeirra Baldvins og Hjartar, sem
leika einnig Billy, þá eiga áhorf-
endur eitthvað stórkostlegt í vænd-
um. Það er unun að fylgjast með
honum takast á við burðarhlut-
verk af þessu tagi og forréttindi
að sjá fjölhæfni hans blómstra.
Hann leikur og syngur af mikilli
list en það eru dansatriðin sem eru
algjörlega sér á parti og þá sér-
staklega ballettsenurnar. Áhorf-
endur fylgjast með honum vaxa
og dafna í gegnum sýninguna, eitt
spor í einu, og taka andköf þegar
þeir gera sér grein fyrir hversu
langt Sölvi/Billy hefur náð.
Pabbi Billys, Jackie Elliot, er
leikinn af Jóhanni Sigurðarsyni en
hann er maður sem reynir að gera
sitt allra besta við ómögulegar
aðstæður en hreinlega kann ekki
að vera einstæður faðir. Umkomu-
leysi, sársauki og örvænting lita
tilvist þessa manns en Jóhann er
algjörlega tilvalinn í þetta hlut-
verk, svo ekki sé nú minnst á
hversu vel söngröddin hans pass-
ar við hlutverkið. Lagið sem hann
syngur til látinnar konu sinnar
nístir hjartastrengina, húmor-
inn er samt sem áður aldrei langt
undan en heimsókn þeirra feðga í
ballettskólann er bráðfyndin.
Halldóra Geirharðsdóttir leik-
ur keðjureykjandi danskennar-
ann Mrs. Wilkinson sem stýrir
litla ballettnámskeiðinu sínu með
harðri hendi, þeirri sem heldur
ekki á sígarettunni. Ég hef lengi
sagt að hún sé ein hæfileikarík-
asta leikkona Íslands og hún sann-
ar það í þessu hlutverki með frá-
bærum dansatriðum í bland við
þrusugóðan leik.
Hinn ungi Grettir Valsson
hreinlega stal senunni í sínu stóra
dansatriði þar sem Michael, vinur
Bill ys, klæðir þá félaga upp í
kjóla en senan endar í gríðarlega
skemmtilegu uppbroti sem best
er segja sem minnst frá. Eigin-
lega er ómögulegt að telja upp alla
þá einstaklinga sem ber að nefna
þegar kemur að sýningunni en auk
þeirra fyrrnefndu er vert að minn-
ast á Sigrúnu Eddu í kostulegu
hlutverki ömmunnar með ellig-
löpin og Hilmi Jensson í hlutverki
Tonys, eldri bróður Billys, en hann
leysir það bráðvel.
Þýðing Karls Ágústs á textan-
um sem og lögunum heppnast með
ágætum en stundum vottar fyrir
of formlegu talmáli. Kynjapólitík-
in í verkinu er einnig örlítið gam-
aldags þar sem flestar kvenpers-
ónurnar hafa í raun lítið að gera
nema styðja karlpeninginn fyrir
utan frú Wilkinson sem ýtir Billy
á rétta braut. Einnig má benda á
þá einföldu mynd sem dregin er
upp af samkynhneigð í verkinu en
þessi upptalning er kannski smá-
munasemi.
Sviðsmynd Petr Hlousek er
einstaklega vel úthugsuð og
ekki takmörkuð af hringsviðinu
einu saman eins og svo oft sést
á íslenskum leiksviðum. Hver
fermetri Stóra sviðsins er nýtt-
ur; námumennirnir hverfa ofan
í jörðina, heill ballettskóli birt-
ist ofan úr loftinu og litla þorpið í
Norður-Englandi birtist ljóslifandi
frá margvíslegum sjónarhornum.
Aftur á móti er Bergur Þór ekki
banginn við að tæma sviðið algjör-
lega bæði í stórum senum sem og
smáum, sérlega eftirminnilegt er
atriði á milli Sölva og Karls Frið-
riks sem leikur Billy síðar á lífs-
leiðinni.
Bergur Þór leikstýrir þessum
risastóra hópi eins og áður sagði
en hann hefur firnasterk tök á
bæði fagurfræði og framsetningu
með góðri aðstoð frá Helgu I. sem
sér um búningana, sterkri tón-
listarstjórn Agnars Más og feiki-
flottri lýsingu Þórs Orra.
Billy Elliot er ekkert annað en
stórvirki. Hópsenurnar blandast
oft virkilega skemmtilega saman
þar sem smáar ballerínur, óeirða-
lögreglan og námumennirnir þeys-
ast um sviðið án þess að glundroð-
inn taki öll völd. En sláandi hjarta
sýningarinnar er Billy sjálfur og
það er sko sjón að sjá. Deila má
um hvort sýningin sé gallalaus en
aftur á móti er ekki hægt annað en
að dást að þeim gríðarlega metn-
aði, elju og krafti sem settur er í
verkið. Sigríður Jónsdóttir
NIÐURSTAÐA: Metnaðarfullt stór-
virki. Leiklistarviðburður sem enginn
má láta framhjá sér fara.
Þrekvirki í íslenskri sviðslist
BILLY ELLIOT Sláandi hjarta sýningarinnar er Billy sjálfur og það er sko sjón að sjá.
Verk Samuels Beckett eru af ein-
hverjum ástæðum furðu sjaldséð
í íslenskum leikhúsum. Beckett
var ótvírætt eitt merkasta leik-
ritaskáld síðustu aldar og hafa
verk hans haft gríðarleg áhrif á
leikritun víð um heim. Það eru því
gleðitíðindi að leikhópurinn Svip-
ir hafi nú afráðið að takast á við
Endatafl. Þór Tulinius er einn af
aðstandendum sýningarinnar og
segir hann stefnt að því að frum-
sýna í Tjarnarbíói þann fyrsta
maí næstkomandi. „Þetta er svo
mikil ráðgáta og dásamlegur
texti. Þetta er eins og að vera inni
í ljóði. Svo skemmtilega torskilið
og djúpt en fyndið og skemmtilegt
í senn. Beckett er hreint út sagt
engum líkur og það er alveg ótrú-
lega gaman að vinna með þennan
texta.“
Leikstjóri uppfærslunnar er Krist-
ín Jóhannesdóttir og á meðal ann-
arra aðstandenda auk Þórs eru
Þorsteinn Bachmann og Harpa
Arnardóttir. „Við erum búin að
hrinda af stað söfnun á Karol-
ina Fund til að standa straum af
kostnaði við sýninguna og biðlum
til landsmanna um hjálp við að láta
drauminn rætast.“
- mg
Eins og að vera inni í ljóði
Leikhópurinn Svipir stefnir að uppfærslu á Endatafl i eft ir Samuel Beckett með vorinu.
ENDATAFL
Þór Tulinius og
Þorsteinn Bach-
mann í leikhópnum
Svipir stefna að
frumsýningu með
vorinu.
MENNING
0
8
-0
3
-2
0
1
5
2
1
:4
0
F
B
0
5
6
s
_
P
0
5
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
4
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
0
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
1
3
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
4
0
F
-2
8
B
C
1
4
0
F
-2
7
8
0
1
4
0
F
-2
6
4
4
1
4
0
F
-2
5
0
8
2
8
0
X
4
0
0
3
B
F
B
0
5
6
s
C
M
Y
K