Fréttir - Eyjafréttir


Fréttir - Eyjafréttir - 29.08.1991, Síða 2

Fréttir - Eyjafréttir - 29.08.1991, Síða 2
Fímmtudaginn 29. ágúst 1991 - FRÉTTIR Þungt hljóð i útgerð- armönnum wegno skertra afflaheimilda - Rekstrargrundvellí kippt undan rekstri margra báta? Það er þungt hljóð í útgerðar- mönnum hér eftir að þeir fengu í hendurnar aflahlutdeild sína næstu tólf mánuðina. Af samtölum við þá má ráða að um verulegan samdrátt er að ræða, mun meiri en þeir gerðu ráð fyrir og eru aflaheimildir álíka næstu tólf mánuði og þær eru á átta mánaða tímabilinu sem rennur sitt skeið á enda um mánaðamótin næstu. Einn útgerðarmaður lét hafa eftir sér að oft hefði útlitið verið dökkt en aldrei eins og nú. „Ég veit ekki hvernig við förum að hjá mínu fyrir- tæki. Það hefur verið nógu mikið bras að láta enda ná saman, en nú sýnist mér að megi boða til útfarar- innar. Við erum að fá það sama í tonnum fyrir næstu tólf mánuði og við fengum fyrir síðustu átta,“ sagði þessi útgerðarmaður sem talar fyrir munn margra. Hilmar Rósmundsson formaður Útvegsbændafélags Vestmannaeyja sagði að félagsmenn væru heldur óhressir með úthlutunina. „Ég sé ekki betur en að skerðingin sé á bilinu 20 til 30% og flestir sem koma til mín eru með svipað næstu tólf mánuði og þeir voru með fyrir átta mánuðina," sagði Hilmar. Hann sagði að skerðing á þorskafla hefði ekki komið mönnum á óvart. „En að ýsan skuli skert um 33% kemur okkur í opna skjöldu því aldrei hefur verið minnst á að skerða veiðar á henni.“ Hilmar telur að hluta skýringar- innar sé að leita í því að sjávarútvegs- ráðuneytið miðar við óslægðan fisk þegar það gefur upp heildaraflamark en úthlutun miðist við slægðan fisk. „En ég skil ekki þetta hringl og hvaða tilgangi það þjónar veit ég ekki nema að það sé til að blekkja • Hilmar Rósmundsson. okkur." Tók hann þorskinn sem dæmi. Leyfilegt er að veiða 250 þúsund tonn af þorski en af úthlutun báta hér má ráða að 200 þúsund tónnum sé skipt niður á flotann sem er eðlilcgt ef um slægðan fisk er að ræða. „Við höfum leitað skýringa á þessu en ekki fengið," sagði Hilmar. Hagsmunaaðilar höfðu orð sjávar- útvegsráðherra fyrir því að ýsuaflinn yrði óbreyttur, 50 þúsund tonn, en gerðu þá ráð fyrir að 8 þúsund tonna viðbótin fengi að halda sér, en nú er komið í Ijós að svo er ekki og nú veröa menn að sætta sig við 50 þúsund tonn af ýsu næsta árið í stað 58 eins og menn héldu, en fyrstu átta mánuði þessa árs mátti veiða 48 þúsund tonn með viðbótinni. Eyja- Blaðið hefur undir höndum til- kynningu frá sjávarútvegsráðuneyt- inu um aflamark Eyjabáts fyrir tíma- bilið 1. september 1991 til 31. ágúst 1992. Við samanburð á aflamarki sama báts fyrstu átta mánuði þessa árs kemur í Ijós að munurinn er lítill þó næsta tímabil sé 50% lengra. Lítill munur er á þorski á þessum tveimur tímabilum, um 143 tonn bæði tímabilin sem er um þriðjungs samdráttur en ætti að vera tæplega. fjórðungur. Ýsukvóti yfirstandandi tímabils er 195 tonn en á að vera rúm í samanburðarkönnun á vegum Neytendafélags Suðurlands á verði 68 vörutegunda í kaupfélögum K.Á. á Suðurlandi, kom í Ijós að matvöru- verslunin Betri bónus í Eyjum var ódýrasta kaupfélagsbúðin á Suður- landi. Blaðið hefur þessa könnun undir höndum og þar sést að af þeim 44 vörutegundum sem til voru í verslun- inni þegar könnunin varð gerð þann 23. ágúst sl., var Betri bónus með lægsta verðið á 20 vörutegundum og bátar veiddu 13.500 tonn af 60 þús- und tonnum af ýsu á síðasta ári, eða um 20%, þannig að miklu skiptir fyrir Vestmannaeyjar að einhver leiðrétting fáist. Þessi skerðing á hcildaraflamarki er mikið áfall fyrir þjóðarbúið og fyrir stað eins og Vestmannaeyjar, sem byggir allt sitt á sjávarfangi, er um stóráfall að ræða. í fréttatilkynn- ingu frá sjávarútvegsráðuneytinu segir að verömæti botnfisksafla minnki um 10-12% sem þýði sjö til átta milljarða samdrátt í útflutnings- tekjum. Nú lætur nærri að hlutur Vestmannaeyinga sé um 10% af útflutningsverðmæti sjávarafurða þannig að þessi skerðing þýðir tæp- lega 800 milljónir króna í töpuðum útflutningstekjum fyrir byggðarlag- ið. 206 tonn næstu tólf mánuði, þrátt fyrir að gert sé ráð fyrir óbreyttum heildarafla. Ufsakvóti verður rúm 106 tonn en er 94 tonn á fyrstu átta mánuðum þessa árs. Karfakvótinn er rúm 16 tonn cn verður rúm 29 tonn næsta ár sem er eðlilegt þar sem gert er ráð fyrir óbreyttum karfaafla. Þessi bátur mátti veiða tæp 24 tonn af skarkola fram til mánaðarmóta en hann fær að veiða 37,5 tonn næstu tólf mánuði. Þetta aflamark miðast við slægðan fisk nema karfa. yrði of langt mál að telja þær allar upp hér. Kaupfélagið Goðahrauni kom einnig ágætlega út úr þessari verð- könnun. Verslunin var með lægsta verð á 6 vörutegundum, á Nesquick Kakómalt (400 g), Libby's tómat- sósu, Campells sveppasúpu, Pepsi Cola 33 cl dós, Hreinol og Johnson barnasjampó. Aftur á móti var versl- unin með hæsta verð á fimm vöruteg- undum, svínakótilettum, kjötfarsi. Léttu og laggóðu. Léttu sólblóma og Toro piparsósu. Poemi um qflamqrk eins báts: Er svipað á tólf mánuðum og átta Samanburðarkönnun K.Á. á Suðurlandi: Betri bónus ódýrust • Hljómsveitin Skid Row. Hvalreki ffyrír þungarokksunnentiur í Eyjum: Skid Row á tvennum tón- leikum i Laugardalshöll Þungarokksunnendur í Vest- mannaeyjum og á íslandi hafa fengið mikið fyrir sinn snúð síðustu misseri. Enn hafa þeir ástæðu til að kætast því bandaríska hljómsveitin Skid Row kcmur hingað til lands í næstu viku og efnir til tvennra tónleika í Laugardalshöllinni dagana 6. og 7. september. Islcnska stórhljómsveit- in GCD „hitar upp“ á báðum tón- leikunum. Orðrómur er á kreiki þess efnis að Axl Rose, söngvari hljómsveitarinn- ar Guns'n'Roses komi hingað til lands í slagtogi með Skid Row og taki jafnvel lagið á öðrum tónleikum. Ferill Skid Row hefur verið með ólíkindum. Sveitin sendi fyrir tveim- ur árum frá sér frumraun sína, Youth Gone Wild. Tvö laga þeirrar plötu náðu hátt á vinsældalista austan hafs og vestan hafs, titillagið og lagið 18 and Life. Platan seldist í milljónum eintaka. Skid Row sendi fyrir skömmu frá sér nýja breiðskífu, Slave To The Grind. Hún fór rakleitt í 1. sæti bandaríska breiðskífulistans í fyrstu viku. Það afrek hefur ekki verið leikið af nokkurri annarri hljóm- sveit. Nýja platan hefur þegar náð milljónum eintökum í sölu vestan- hafs og selst enn grimmt. Miðasala á tónleikana er þegar hafin víða um land og er forsala aðgöngumiða í Eyjum í versluninni Adam og Evu. Verð aðgöngumiða er kr. 3.500 en þeir sem kaupa miða sína í síðasta lagi 30. ágúst fá 500 kr. afslátt af miðaverði. ÁRNAÐ HEILLA Ingibjörg Marínósdóttir er eins árs í dag. 29, ágúst. Innilegar hamingjuóskir með afmælið litla frænka. Fríða og Ágúst i Hunangsflugca Harpa Kolbeinsdóttir kom að máli við blaðið um daginn með krukku sem hafði að geyma heldur ófrýnilegt kvikindi sem sést hér á mvndinni til hliðar. Þarna er á ferð ansi stór hunangs- fluga sem fannst í sólhúsinu hjá Birgi lögregluþjóni á Illugagötunni. Flug- an sem er tæpir þrír sentimetrar á lengd er hættulaus en getur þó stungið illa. Uppi varð fótur og fit í sólhúsinu þegar tilvist hunangsflugunnar upp- götvaðist en Birgi tókst að góma hana í krukkuna. Eftir því sem næst verður komist er þetta með stærri flugum sem hér hafa sést en hunangsflugur eru mjög sjaldséður gestur á þessum slóðum. Ódýrir bílaleigubílar f útlöndum Loksins getum við boðið íslendingum Budget bílaleigubíla frá 3600 skrifstofum í 140 löndum Einnig bíla á Islandi Gullfoss bílaleiga sf. á hagkvæmum kjörum. Færum þér bílinn á flugvöllinn. Dalvegi 20 Kópavogi s 91-641255

x

Fréttir - Eyjafréttir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttir - Eyjafréttir
https://timarit.is/publication/977

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.