Fréttir - Eyjafréttir - 29.08.1991, Blaðsíða 10
Fimmtudaginn 29. ágúst 1991 - FRÉTTIR
• Vestmannaeyjamótinu í 6. aldursflokki lauk sl. Hmmtudag með sigri Týs bæði í A og B. Hjá A-liðunum sigraði Týr 5 leiki en Þór 1 en hjá
B-liðunum sigraði Týr alla leikina. Á vinstri myndinni má sjá 6. nokk A beggja félaga ásamt þjálfurum sínum, þeim Inga Sigurðssyni Þór og Heimi
Hallgrímssyni Tý og á hægri myndinni eru B-lið Týs og Þórs ásamt þjálfurum sínum.
Knattspyma:
Stúlkurnar í 2. flokki kvenna Týs
gerðu sér lítið fyrir og kræktu sér í
Islandsmeistaratitilinn í sínum
aldursflokki í úrslitakeppninni sem
var haldin í Evjum um sl. helgi. Er
þetta fyrsti Islandsmeistaratitill í
yngri flokkunum sem fer til Eyja
síðan 1980 þegar 2. fl. ÍBV bar sigur
úr býtum og fyrsti titillinn síðan
yngri flokkamir hófu að leika undir
merki Týs og Þórs 1980. Auk þessa
er þetta fyrsti íslandsmeistaratitillinn
í knattspyrnu utanhúss í sögu Týs
þannig að stúlkurnar skráðu sig held-
ur betur á spjöld sögunnar. Stúlkurn-
ar í 2. flokki Týs eru vel að þessum
sigri komnar, hafa sýpt mikinn stíg-
anda ■ allt sumar undir röggsamri
stjórn þjálfaranna Þorsteins Gunn-
arssonar og Jóns Ólafs Daníelssonar.
Þær töpuðu ekki leik í öllu íslands-
mótinu, sigruðu 9 leiki og gerðu 2
jafntefli, skoruðu 51 mark en fengu
aðeins á sig þrjú mörk í allt sumar.
Fjögur lið tóku þátt í úrslitakeppn-
inni; Týr, Breiðablik, KR og KA og
var leikin einföld umferð.
Týr mætti Breiðablik í fyrstu um-
ferðinni en þessi lið höfðu mæst einu
sinni áður í sumar og lyktaði þeim
leik með jafntefli 1-1. Þetta varð
mikill baráttuleikur og ckkert gefið
eftir. Þórunn Ragnarsdóttir náði for-
ystunni fyrir Tý með poti af stuttu
færi en Breiðablik jafnaði beint úr
hornspyrnu undir lok fyrri hálfleiks.
í seinni hálfleik áttu Týsstúlkurnar
hættulegri færi og það var íris Sæ-
mundsdóttir fyrirliði sem skoraði
sigurmark Týs úr vítaspyrnu um
miðjan síðari hálfleik. Lokatölur2-l
og var sigurinn sanngjarn.
í fyrstu umferðinni sigraði KR lið
KA4-1.
í 2. umferð mættust Týr og KR.
Þetta var líka mikill baráttuleikur
enda nánast um úrslitaleik að ræða.
KR náði forystunni í fyrri hálfleik
eftir varnarmistök en Týsstúlkunum
tókst á jafna á síðustu mínútu fyrri
hálfleiksins. Það var reyndar sjálfs-
mark KR en þær Elísa Sigurðardóttir
og Dögg Lára Sigurgeirsdóttir áttu
allan heiðurinn að markinu. 1-1 urðu
lokatölur leiksins og voru það sann-
gjörn úrslit.
í 2. umferðinni sigraði Breiðablik
lið KA 4-1 þannig að ljóst var að
baráttan um titilinn stóð á milli Týs
og KR en KR hafði vinninginn fyrir
síðustu umferðina á betri markahlut-
falli.
í síðustu umferðinni mætti Týr liði
KA og varð sigur að vinnast til að
halda í vonina um titilinn. Þetta var
mikill rokleikur og þrátt fyrir tölu-
verða yfirburði Týs gekk þeim erfið-
lega að skapa sér marktækifæri. Það
var Dögg Lára Sigurgeirsdóttir sem
tókst að skora fyrra markið fyrir Tý
eftir hornspyrnu undir lok fyrri hálf-
leiks en Sara Ólafsdóttir skoraði
seinna markið og var það sérlega
glæsilegt, þrumuskot af 30 metra
færi og það í mótvindi. Lokatölur2-0
fyrir Tý en nú þurfti Týr að treysta á
að Breiðablik myndi ná stigi af KR
til að tryggja sér titilinn.
Það gerði Breiðablik oggott betur.
Þær sigruðu KR hvorki meira né
minna en 6-0 og náöu 2. sætinu en
það varð Knattspyrnufélagiö Týr
sem hampaði íslandsmeistaratitlin-
um, þeim fyrsta í sögu félagsins.
Það var fris Sæmundsdóttir fyrir-
liði sem tók við bikarnum úr hönd
formanns fBV, Ómars Garðarsson-
ar. Týrararnir fögnuðu sigri sínum
gífurlega, hlupu heiðurshring á Týs-
vellinum og tolleruðu þjálfara sína,
þá Þorstein og Jón Ólaf.
Lokastaðan í úrslitakeppninni varð
því þessi:
Týr 3 2 1 0 5-2 5
UBK 3 2 1 1 11-3 4
KR 3 111 5-10 3
KA 3 0 0 3 1-10 0
Það var Breiðablik sem fékk Hátt-
vísisverðlaunin fyrir prúðasta lið
mótsins.
Þorsteinn Gunnnnrsson
þiónori 2.H. Tys:
Mjög stoltur
af stúlkunum
Þjálfari íslandsmeistara 2. fl.
kvenna Týs heitir Þorsteinn Gunn-
arsson og hans sérlegi aðstoðarþjálf-
ari í sumar hefur verið Jón Ólafur
Daníelsson, báðir kunnir úr meist-
araflokki ÍBV. Þeir voru að vonum
kampakátir eftir að titillinn var kom-
inn í höfn og fögnuðu vel og innilega.
„Þótt maður hafi verið með um
ýmislegt sem leikmaður með ÍBV þá
held ég að þetta slái allt út," sagði
Þorsteinn.
„Ég er mjög stoltur af stúlkunum.
Þær hafa æft mjög vel í allt sumar,
verið mjög áhugasamar og eru svo
sannarlega vel að þessum titli
komnar. Allar þessar stelpur leika
einnig í meistaraflokknum og þótt
gengið hafi verið rysjótt þar, hafa
þær haft mjög gott af því að spila
svona upp fyrir sig. Það sýndi sig svo
sannarlega í úrslitakeppninni um
helgina. Þar spiluðu þær mjög agað-
an fótbolta en það var fyrst og fremst
sterk vörn sem var aðall liðsins,"
sagði Þorsteinn og vildi að lokum
þakka Jóni Ólafi aðstoðarþjálfara
fyrir frábært samstarf í sumar, hann
ætti stóran þátt í þessum sigri.
Áttum skilið oð
vinna þetta
Fyrirliði íslandsmcistura 2. flokks
Týs heitir íris Sæmundsdóttir og
vcrður ekki annað sagt en að hún
hafi farið á kostum í úrslitakeppn-
inni.
( samtali við blaðið sagði (ris að
þetta hefði verið alveg stórkostlegt.
„Tilfinningin að vinna íslandsmeist-
aratitilinn er ólýsanleg. Ég trúi þessu
varla enn. Þetta var fyrst og fremst
sigur liðsheildarinnar en við erum
með mikið baráttulið og áttum alveg
að skilið að vinna þetta.
Leikurinn í fyrstu umferðinni gegn
Breiðablik fannst mér vera hinn eig-
inlegi úrslitaleikur. Þarna mættu
bæðin liöin óþreytt með sinn sterk-
asta mannskap til leiks én við unnum
mjög verðskuldað. Við komumst
taplausar í gegnum allt íslandsmótið
og það segir sína sögu,“ sagði íris
Sæmundsdóttir fyrirliði að lokum.
ÍBV-stúlkurnar í œfingaferð í Svíþjóð
• Stúlkurnar í 2. fl. kv. Týs tollera annan þjálfara sinn, Þorstein Gunnarsson.
Hinn þjalfarinn, Jón Ólafur fékk sömu meðferð.
9 íris Sæmundsdóttir.
íris Soemundsdóttir
fyrirliði 2.f I. Týs:
Annar flokkur og meistaraflokkur
ÍBV kvenna eru þessa dagana í
æfingaferð í Svíþjóð hjá sænska lið-
inu I.K. Sávehof í Gautaborg. Er
þessi ferð hápunktur undirbúnings-
tímabilsins sem hófst um miðjan
júlí.
Ólöf Heiða Elíasdóttir í hand-
knattleiksráði ÍBV sagði að stelpurn-
ar hefðu farið utan á mánudaginn og
hófu þær strax æfingar af fullum
krafti. Æft er á hverjum morgni og á
kvöldin eru æfingaleikir. Frá föstu-
degi til sunnudag? tekur meistara-
flokkur þátt í 15 liða fjölliðamóti og
verður gaman að sjá hvernig þeim
vegnar þar og munum við reyna að
greina frá því í næsta blaði.
islandsmeistarar 2. flokks kvenna Týs
Þetta eru stúlkurnar í Tý sem
tryggðu sér íslandsmeistaratitil-
inn í knattspyrnu í 2. aldursflokki
(15-17 ára);
Elísabet Sveinsdóttir 16 ára, markvörður:
Tók fram hanskana í vor og hefur sýnt
ótrúlegar framfarir í allt sumar og er
orðin einn besti markvörður landsins í
sínum aldursflokki. Lét stem meiðsli
ekki aftra sér frá að leika í úrslitunum.
Sara Ólafsdóttir 17 ára, varnarmaður:
Hálfgert undrabarn í íþróttum. Getur
leikið allar stöður en lék aftast í vörninni
í úrslitunum og stjórnaði varnarleiknum
eins og herforingi. Lék frábærlega vel í
úrslitunum.
Eva Sveinsdóttir, 17 ára, varnarmaður:
Það fer enginn sóknarmaður framhjá
Evu. Er mjög föst fyrir, traust og örugg
og á mikla framtíð fyrirsér í fótboltanum.
Leikur með stúlknalandsliði íslands.
Guðbjörg Þórðardóttir 15 ára, varnar-
maður: Er á yngsta ári í 2. flokki en er
mjög hörð í horn að taka. Hefur tekið
gífurlegum framförum í sumar og lék
mjögvel í úrslitunum.
Ragna Jenný Friðríksdóttir 16 ára, tengi-
liður: Sterkur leikmaður og þær gerast
ekki betri til að sinna varnarhlutverkinu
á miðjunni. Hefur einnig tekið miklum
framförum í sumar og lék sérlega vel í
úrslitunum.
Anna Lilja Tómasdóttir 17 ára, tengilið-
ur: Getur leikið allar stöður á vellinum en
lék í úrslitakeppninni á hægri kantinum
og fórst það mjög vel úr hendi. Sýndi sína
langbestu leiki í sumar í úrslitunum. lét
skynsemina ráða eins og henni einni er
lagið.
Sigþóra Guðmundsdóttir 17 ára, tengilið-
ur: Lék framan af sumri í vörninni en var
færð á miðjuna í úr'slitunum og lék mjög
vel þrátt fyrir að hafa átt við meiðsli að
stríða. Föst fyrir og gefur aldrei þumlung
eftir.
Elísa Sigurðardóttir 15 ára, tengiliður:
Ein sú efnilegasta í fótboltanum í Eyjum.
Leikur á vinstri vængnum og átti margar
góðar rispur upp kantinn í úrslitunum.
Iris Sæmundsdóttir 17 ára, tengiliður:
Fyrirliði liðsins og lék stórkostlega vel í
úrslitunum. Hefur mikla yfirferð á veflin-
um og er stórhættuleg í vítateig andstæð-
inganna. Leikur með stúlknalandsliðinu.
Dögg Lára Sigurgeirsdóttir 17 ára fram-
herji: Ein af þeim sem hefur sýnt miklar
framfarir. Er mjög hættuleg hvaða vörn
sem er og þegar hún er í stuði getur hún
gert ótrúlegustu kúnstir. Lék vel í
úrslitunum og skoraði hið þýðingamikla
fyrsta mark gegn KA.
Þórunn Raguarsdóttir 15 ára framhcrji:
Ein sú fljótasta í sínum aldursflokki.
Mjög hættulegur sóknarmaður og áttu
andstæðingarnir í úrslitnunum í hinum
mestu vandræðum með hana.
Petra Bragadóttir 15 ára markvörður:
Varamarkvörður liðsins. Hefur æft vel í
sumar en ekki tekist að komast í liðið.
Laufey Jörgensdóttir 16 ára tengiliður:
Er ný stigin upp úr meiðslum. Var frá í
allt sumar cn rétt slapp í úrslitakeppnina.
Kom inná í tveimur leikjanna og stóð sig
með mikill prýði.
Matthildur Halldórsdóttir 15 ára fram-
herji: Mjög efnileg stúlka en varð að
sætta sig við að sitja á bekknum í
úrslitunum. Kom inn á á móti KA ogstóð
sig mjögvei.
Jóhanna Fannarsdóttir 17 ára markvörð-
ur: Varamarkvörður liðsins. Æfði vel
framan af og hefur mjög gott grip.
Auk þessa voru þrjár 3. flokks stúlkur í
hópnum. þær Asa Ingibergsdóttir.
Thelma Róbertsdóttir og Ragna Ragnars-
dóttir sem allar eru mjög efnilegar. Ása
kom inná gegn KR og stóð sig með prýði.
Islandsmótið byrjar 9. október og
þá mæta stelpurnar KR hér heima. í
meistarflokki er keppt í einni deild.
leikið heima og heiman og eftir það
verður úrslitakeppni efstu liða.
Forföll
hjó ÍBV
Ljóst er að ÍBV kemur ekki til
með að geta stillt upp sínu sterk-
asta liði gegn Breiðablik í 1.
deildinni á laugardaginn þegar
liðin mætast í Kópavogi og eru
það varnarmenn liðsins sem for-
fallast nú hver á eftir öðrum.
Tveir varnarleikmenn eru í
leikbanni. þeir Sigurður Ingason
og Bergur Ágústsson sem reynd-
ar er farinn út til Noregs í nám.
Þá á varnatröllið Friðrik Sæ-
björnsson enn við meiðsli að
stríða en flest bendir til þess að
hann verði ekki tilbúinn í slaginn
á laugardaginn.
Leikurinn er mikilvægur fyrir
bæði lið. ÍBV er í 4. sæti með 23
stig en Breiðablik í 5.-7. sæti með
20 stig.
Týs islandsmeistari
- fyrsti islundsmeistaratítillinn í yngri f lokkunum til Eyja síðan 1980.
2. flokkur kvenno