Fréttir - Eyjafréttir - 25.06.1992, Blaðsíða 11
FRÉTTIR - fimmtudaginn 25. júní 1992
• „Kemur hann til mín?“ Eftirvæntingin leynir sér ekki í svip þeirra Sindra, Leifs Geirs og Martins
Samskipadeildin, IBV 0 -
7 gul spjöld, 1 rautt og 1 mark
Sigbjörn sigraði
Jónsmessugolfið
Árlegt golfmót, tengt Jónsmess-
unni, svonefnd Jónsmessukeppni,
var haldin um síðustu helgi. Leiknar
voru 12 holur, þar af 3 af nýju
holunum, sem Golfklúbburinn er að
byggja. Og eins og oft vill verða í
ákveðnum íþróttagreinum, kom við
sögu ættboginn frá Grímsstöðum.
Að þessu sinni Sigbjörn Óskarsson.
Annar í röðinni kom einnig úr mikilli
golfaraætt, Leifur Ársælsson og í
þriðja sæti varð Magnús Kristleifs-
son. Keppnin var spottakeppni, sem
byggist á því að viðkomandi fær
spotta í hendur, og ræðst lengd hans
af forgjöfinni.
Um næstu helgi verður svo áfram
golfað og þá Meistaramót Öldunga.
Verða leiknar 36 holur en tímasetn-
ing ekki ákveðin, hún kemur til með
að ráðast af þátttakendafjölda. Á
sama tíma fer einnig fram Meistara-
mót unglinga, pilta og stúll ua.
Knattspyrnuskólar Týs og Þórs
-sem Akurnesingar hnupluðu af Eyjamönnum.
• Bojan Bevc, kennari, með nokkra hressa stráka í Knattspyrnuskóla Týs.
Enn einn rokleikurinn í Samskip-
adeildinni var leikinn síðastliðið
þriðjudagskvöld þegar ÍBV fékk Ak-
urnesinga í heimsókn.
Það var greinilegt á Eyjamönnum,
að þeir komu til þessa leiks í fluggír,
byrjuðu strax af miklum krafti og
áttu nánast allan fyrri hálfleikinn.
Þeir léku undan allsterkum vindi
sem eitthvað hjálpaði til.
Ekki var þó mikið um opin færi,
en nokkur dúndurskot smugu utan
markstanganna og Tómas Ingi átti
hörkuskot í stöng. Þrátt fyrir stífa
sókn Eyjamanna var lánið ekki með
þeim, eða klaufaskapurinn við mark-
ið láninu yfirsterkari.
Eyjamenn héldu uppteknum hætti
framan af seinni hálfleik, þrátt fyrir
mótvindinn. En um miðjan seinni
hálfleikinn fékk Heimir Hallgríms-
son að sjá rauða spjaldið eftir hafa
varið boltann viljandi með hendi.
Annar dómur kom ekki til greina þar
sem hann hafði áður í leiknum fengið
að líta það gula. Þetta atvik er
ófyrirgefanlegt. Eftir að Eyjapey-
jarnir voru aðeins 10 á vellinum
jafnaðist leikurinn og Akurnesingar
fóru að eiga meira í honum en áður.
Á 87. mínútu fékk Leifur Geir eitt
besta marktækifæri leiksins, á mark-
teig Akurnesinga, en boltinn smaug
rétt utan stangar. Og mínútu síðar
var boltinn gefinn á Arnar Gunn-
laugsson sem stóð óvaldaður á miðj-
um vítateig Eyjalfðsins. Þrátt fyrir
að færið væri ekkert afbragðsgott,
afgreiddi hann boltann snyrtilega í
marknetið og þvert á gang leiksins
Mætum Víkingum
í gærkvöld var dregið í 16-liða úrslit-
um Bikarkeppni KSÍ. Elías Jörundur
Friðriksson, okkar maður á drátt-
arstað, hafði það ekki af að útvega
heimaleik í bikarkeppninni, enda er
leiðinleg hefð fyrir því að ÍBV leiki á
útivöllum í bikarnum. í þetta skiptið
verða mótherjarnir íslandsmeistarar
Víkings, og fer leikurinn fram þriðj-
udaginn 7. júlí í Stjörnugrófinni.
Um möguleika okkar manna er erfitt
að segja. Þeir eiga harma að hefna,
þar sem Víkingar hafa unnið þrjár
síðustu viðureignir liðanna, einnig
má telja fullvíst að Eyjamenn vilji
leggja ofuráherslu á gott gengi í
bikarnum eftir slæma útreið í deild-
inni, og mæti þvt' grimmir til leiks.
9 Þessar hressu konur tóku þátt í Kvennahlaupi ÍSÍ sem fram fór síöastliöinn laugardag. Þetta voru konur á öllum aldri og var ekki aö sjá á þeini
þrevtumerki, en ánægja og stolt skein úr hverju andliti.
höfðu Akurnesingar tekið forystuna
í leiknum og henni héldu þeir til
leiksloka.
Enn einu sinni tapaði ÍBV leik á
síðustu mínútum. Þetta er mál sem
liðið og þjálfarinn þurfa að skoða
betur. Getur verið að einbeiting
liðsins sé eitthvað farinn að sljóvgast
undir lokin.
Leikurinn var mikill spjaldaleikur,
alls 8 spjöld, þar af eitt rautt sem
Heimir fékk. Hlýtur hann þvf sjálf-
krafa leikbann sem hann væntanlega
tekur út á móti Fram á sunnudaginn.
Þá meiddist Ómar Jóhannsson í
leiknum og leikur heldur ekki með á
sunnudaginn. Uppstokkun í vörn-
inni í þeim leik er því nokkuð
fyrirsjáanleg.
Það verður ekki annað sagt en
úrslit leiksins við Akurnesinga hafi
verið á skjön við gang hans. Mikil
barátta einkenndi ÍBV liðið og vilj-
inn til sigra var óslökkvandi allt til
leiksloka. En lánið var ekki þeim
megin. Annars er það athyglivert, að
liðið hefur aðeins skorað 4 mörk í 6
leikjum, þar af hafa sóknarmennirnir
aðeins skorað 2 mörk, bæði gegn
FH, eða eitt og hálft, því annað
markið var hálfgert sjálfsmark. Hin
mörkin hafa skorað Bojan og Ingi.
• í gær lauk fyrra námskeiöi Knattspyrnuskóla Þórs og var ýmislegt gert sér
til skemmtunar. Á myndinni eru nemendur með kennurum sínum.