Fréttir - Eyjafréttir - 10.12.1992, Qupperneq 12
Fimmtudaginn 10. desember 1992
liWM—IW -j
Jólafundur Kven-
félags Landakirkju
Við undirbúum jólin oft eins og
þau séu endanlegt takmark. En jólin
eru margslungin, þau eru eins og
hamingjan. Því meir sem hún er elt,
því fjarlægari verður hún, því ham-
ingjan og jólin koma ekki til okkar
fyrir dugnað okkar sjálfra eða
útsjónarsamar reddingar. Heldur
læðast þau að hjarta okkar bakdyra-
megin þegar síst varir. Einmitt þeg-
ar hugur okkar hvílist. Því þá eru
augu okkar og eyru tilbúin að nema
það sem öllu skiptir - boðskapinn
um það að frelsarinn er fæddur í
heiminn. Viðleitni manna hér í bæ
til að staldra við á aðventunni birtist
vel í öllum þeim jólafundum sem
haldnir eru. Það er gott mál, að fólk
skuli hittast í notalegu umhverfi,
tala saman, borða saman og síðast
en ekki síst íhuga boðskap jólanna.
Kvenfélag Landakirkju lætur ekki
sitt eftir liggja og boðar nú til jóla-
fundar miðvikudagskvöldið 16. des-
ember kl. 20:30 í safnaðarheimilinu.
Félagskonur eru hvattar til að mæta
á hlýlega og innihaldsríka kvöldst-
und í kirkjunni.
Nýir félagar eru ávallt velkomnir.
Þakklæti frá
Kiwanisfélögum
Félagar Kiwanisklúbbsins Helgafells vilja þakka
bæjarbúum fyrir frábærar viðtökur um síðustu helgi,
þegar þeir gengu í hús og seldu jólasælgætið sitt. Þá
vilja þeir benda þeim bæjarbúum á, sem ekki fengu
eldvarnarteppin, að þau er hægt að fá í versluninni
Brimnes og hjá 01 ís við Græðisbraut. Þar er einnig
hægt að fá jólasælgætið, vanti einhverjum meira
nammi á hagstæðu verði.
Opnunartími í desember
í desember verður póst og símstöðin opin umfram
venjulegan afgreiðslutíma sem hér segir:
Laugardaginn 12. desember frá kl. 10:00 til 16:00.
Fimmtudaginn 17. desember opið til kl. 19:00.
Föstudaginn 18. desember opið til kl. 19:00.
Mánudaginn 21. desember opið til kl. 19:00.
Skiladagar á pósti:
Til landa utan Evrópu
Föstudaginn 11. desember
Til Evrópulanda nema Norðurlanda
Mánudaginn 14. desember
Til Norðurlanda
Miðvikudaginn 16. desember
Innanlands
Fimmtudaginn 17. desember
Innanbæjar
Mánudaginn 21. desember
PÓSTUR OG SÍMI
VESTMANNAEYJUM
# Þorleifur Hjálmarsson ásamt Agli Skúla Ingibergssyni sem er einn eigandi
Raftcikningar hf.
Rqffteikning opnar
útibú í Eyjum
Skíðaskáiinn i Hveradöium
Býður upp á danska jólaveislu
Rafteikning hf. hefur opnað útibú
í Eyjum, sem Þorleifur Hjálmarsson
rafmagnsiðnfræðingur veitir for-
stöðu.
Helsta verksvið Rafteikingar er
rafkerfi, lýsingarkerfí, virkjanir, að-
veitu- og dreifistöðvar, varavélar og
varaaflgjafar, stýri- stjórnkerfi svo
eitthvað sé nefnt. Meðal verkefna
eru Blönduvirkjun, Nesjavalla-
virkjun, Borgarleikhúsið og Perlan.
Þorleifur hefur unnið hjá Raf-
teikningu síðan 1988 og sagði hann í
viðtali við FRÉTTIR, að hugmynd-
in, að opna útibú hér, hefði kviknað
í síðasta mánuði. „Hingað til hefur
mikið af hönnun raflagna og stýri- og
tölvukerfa verið unnin í Reykjavík,
en nú er ætlunin að reyna að vinna
sem mest af þessu hér á staðnum,"
sagði Þorleifur.
Þorleifur hefur aðgang að tölvu
fyrirtækisins í Reykjavík. „Það auð-
veldar allan flutning gagna á tölvu-
tæku formi milli staða. En ekki
dugar að vera bjartsýnn og vel útbú-
inn, þannig að ég verð að treysta á að
menn leiti ekki langt yfir skammt,
svo hægt verði að halda þessari
biónustu í bænum. Hvet ég menn til
að kynna sér þjónustuna og eru allir
velkomnir til skrafs og ráðagerða,"
sagði Þorleifur.
Fyrirtækið er til húsa í íslands-
bankahúsinu, 3. hæð við hlið Teikni-
stofu Páls Zóphóníassonar.
Það væri synd að segja að maður
hafi ekki komist í sannkallaðan
„Þorláksmessufíling“ þegar komið
var inn í Skíðaskálann í Hveradölum
og búið að hrista af sér snjóinn.
Staðurinn var alsettur jólaskreyt-
ingum og grenitrjám. Meðan beðið
var eftir matnum var haldið á barinn
(auðvitað) á neðstu hæð og var
soltnum blaðamönnum boðið upp á
jólaglögg að hætti hússins. Einnig
var kynning á Tuborg bjór og Ála-
borgar ákavíti. Þetta rann allt Ijúf-
lega niður í bland við dans/íslenska
harmoníkumúsík. Loks var kallað til
matar upp á næstu hæð þar sem
hlaðborðið beið.
Flestir sem eytt hafa jólunum í
Danmörku kannast við þann sið að
hafa margréttað hlaðborð á jóladag,
svokallaðan „julefrokost". Útgáfa
Skíðaskálans á þessari hefð er að
mínu mati til fyrirmyndar. Þar er
tjaldað flestu af því besta sem dönsk
matargerð býður upp á, t.d. í forrétt
graflax, síld, kofareyktum lax, og í
aðalrétt, jólaskinku, „leverpojstej",
• Eyjamaðurinn, Sveinn Valtýsson,
matsveinn.
reyktu svínslæri, „frikkadeller",
flæsksteg, svo og allskonar sósum og
salötum, en þá er fátt eitt talið. Enda
var ekki nema fyrir mestu matar-
menn að smakka á öllum tegundun-
um.
Það var mál manna að nýi skíða-
skálinn væri hið glæsilegasta hús í
alla staði. Þetta er bjálkahús, eitt af
fáum slíkum hér á landi, og var flutt
inn frá Noregi í pörtum.
Það er á þremur hæðum og saman-
stendur af bar, tveimur borðsölum
og litlum sal á efstu hæð. Húsið tekur
um 300 manns í sæti.
Þarna er líka til húsa snjósleða-
leiga og geta menn leigt sér slíkt
tæki undir leiðsögn. Einnig er hægt
að fara í ekta hverabað. Rútur
ganga til og frá staðnum og tekur
ferðin um hálftíma, sem er svipað og
að taka strætó úr miðbænum í
Reykjavík upp í Breiðholt.
Sem sagt ég mæli eindregið með
þessu fyrir þá sem eru á leiðinni upp
á land fyrir jólin og vilja gera sér
dagamun. Verðið er hagstætt og eru
rútuferðir báðar leiðir innifaldar.
Dagný Amarsdóttir.
MENNTAMÁLARÁÐUNEVTIÐ
AUGLÝSING UM
SVEINSPRÓF
Sveinspróf í löggiltum iðgreinum fara
fram í ianúar og febrúar 1993
Umsóknarfrestur er til
22. desember 1992
Upplýsingar og umsóknareyðublöð
eru í Menntamálaráðuneytinu
Sölvhólsgötu 4, 2. hæð
Reykjavík sími 91-609000 og
Iðnfulltrúanum í Vestmannaevium
Hrauntúni 41 sími 12198