Skessuhorn


Skessuhorn - 08.02.2012, Blaðsíða 3

Skessuhorn - 08.02.2012, Blaðsíða 3
VENJULEGT FÓLK Í ÓVENJULEGUM AÐSTÆÐUM GETUR ÞÚ HJÁLPAÐ ÞEGAR Á REYNIR? Slys, áverkar og veikindi gera sjaldnast boð á undan sér. Það getur því oltið á þeim sem eru nærstaddir, til dæmis ættingjum eða samstarfsmönnum, að veita viðeigandi aðstoð. Skyndihjálp er fyrsta aðstoð sem veitt er slösuðu eða bráðveiku fólki þar til viðeigandi læknishjálp fæst.   Rauði krossinn hefur haft forystu um fræðslu í skyndihjálp, og hefur útbreiðsla skyndihjálpar verið eitt af meginverkefnum Rauða kross Íslands í um 80 ár. Rauði kross Íslands-Akranesdeild og Borgarfjarðardeild bjóða upp á vönduð og hagnýt námskeið sem sniðin eru að þörfum almennings, fagaðila, eða starfsmanna fyrirtækja og stofnana.   Eins bjóðum við upp á styttri námskeið í heimahús fyrir saumaklúbba, vinahópa eða  stórfjölskyldu.   Dæmi um námskeið sem eru í boði.      Endurlífgun 2 klukkustundir     Lengd :    2 klukkustundir (fjöldi kennslustunda 3) Markmið:    Að þátttakendur öðlist færni í að beita hjartahnoði og blæstri og kunni að nota         hjartarafstuðtæki við endurlífgun.  Viðfangsefni:  Grunnendurlífgun og sjálfvirkt hjartastuð; að athuga viðbrögð, að opna         öndunarveg, að athuga öndun, hjartahnoð og blástursaðferð, sjálfvirkt hjartastuð        (AED), endurlífgunarkeðjan og losun aðskotahlutar úr öndunarvegi.   Skyndihjálp 4 klukkustundir   Lengd:     4 klukkustundir með hléum (fjöldi kennslustunda 5) Markmið:    Að þátttakendur öðlist grunnfærni í að beita skyndihjálp og sálrænum stuðningi í         neyðartilvikum.  Viðfangsefni:  Kynning; hvað er skyndihjálp?        Undirstöðuatriði; streita í neyðartilfellum, tilfinningaleg viðbrögð eftir að hafa         veitt skyndihjálp, sálrænn stuðningur og að forðast sýkingar.        Fjögur skref skyndihjálpar; tryggja öryggi á vettvangi, meta ástand slasaðra eða         sjúkra, sækja hjálp og veita skyndihjálp.        Grunnendurlífgun og sjálfvirkt hjartastuð; að athuga viðbrögð, að opna        öndunarveg, að athuga öndun, hjartahnoð og blástursaðferð, sjálfvirkt hjartastuð        (AED), endurlífgunarkeðjan, hliðarlega og losun aðskotahlutar úr öndunarvegi.         Skyndihjálp; stutt umfjöllun um innvortis- og útvortis blæðingar, bruni,         höfuðhögg, brjóstverkur (hjartaáfall), bráðaofnæmi og heilablóðfall.     Það er einfalt að fá námskeið.   Þið finnið dag og tíma dags sem hentar ykkur með ca. viku fyrirvara  •  og við komum á staðinn. Pantið námskeið hjá Akranesdeild í síma 431 2270 / 861 3336 •  eða í tölvupósti á akranes@redcross.is  •  Einnig hjá Borgarfjarðardeild í síma 430 5700 / 857-7100 •  eða í tölvupósti á borgarfjordur@redcross.is  •  S K E S S U H O R N 2 01 2

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.