Skessuhorn - 07.11.2012, Qupperneq 20
20 MIÐVIKUDAGUR 7. NÓVEMBER 2012
Á þessu ári fagn ar Kirkjukór Borg
ar ness 70 ára af mæli sínu. Kór inn
var stofn að ur í mars 1942 í kjöl far
þess að Borg ar nes sókn varð til við
skipt ingu eldri Borg ar sókn ar árið
1940. Starf kórs ins hef ur sett rík an
svip á bæj ar og menn ing ar líf Borg
nes inga og nær sveit unga öll starfs ár
hans, og kór fé lag ar hafa ætíð stað
ið sína vakt á kirkju leg um at höfn
um. Þórólf ur Sveins son á Ferju
bakka, fé lagi í Kirkjukór Borg ar
ness, hef ur unn ið sam an tekt um
sögu kórs ins í til efni af mæl is ins.
Hér á eft ir fara nokkr ar stikl ur úr
sam an tekt Þór ólfs, sem sann ar lega
varpa ljósi á hversu mik ið menn
ing ar og fé lags líf fylg ir starfi kóra
líkt og Kirkjukórs Borg ar ness, en
kór ar finn ast hvar vetna í sókn um
lands ins.
Leggi fram söng krafta
við at hafn ir
Borg ar nes sókn varð til með form
legri skipt ingu eldri Borg ar sókn
ar sem sam þykkt var í hinni eldri
Borg ar sókn árið 1938, en form lega
á kveð in af yf ir völd um árið 1940.
Fyrsti safn að ar fund ur inn í Borg
ar nes sókn var hald inn 14. mars
1940. Kirkjukór Borg ar ness er síð
an form lega stofn að ur 24. mars
1942. Kirkja í Borg ar nesi er svo
vígð 1959. Um kirkju leg ar at hafn ir
í Borg ar nes sókn til árs ins 1959 fór
eins og seg ir í bréfi Sig ur geirs Sig
urðs son ar bisk ups 11. mars 1940,
þar sem sókna skipt ing in er form
lega til kynnt: ,,1) Að Borg ar nes
sókn hafi af not af Borg ar kirkju til
kirkju legra at hafna, svo sem ferm
ing ar barna, jarð ar fara, skírn ar og
hjóna vígslu þar til kirkja verð ur
reist í Borg ar nesi, enda leggi Borg
ar nes sókn fram söng krafta eins og
þörf kref ur við þess ar at hafn ir.“ Í
lið 2) og 3) er síð an fjall að um af
not af kirkju garði og fjár hags mál
efni. Þess ir söng kraft ar mynd uðu
að sjálf sögðu kirkjukór og á fyrsta
sókn ar nefnd ar fund in um, 15. mars
1940, var ,,for manni falið að tala
við söng stjóra og söng fólk við víkj
andi kaup greiðslu,“ eins og seg ir í
fund ar gerð. Fyrsta stjórn kórs ins
var skip uð þeim Guð rúnu Dan í els
dótt ur for manni, Frið riki Þor valds
syni rit ara og Ing unni Ein ars dótt ur
gjald kera. Fyrsti org anisti var Unn
ur Gísla dótt ir og söng stjóri var
Hall dór Sig urðs son.
Öfl ugt söng líf var í Borg ar nesi
á þess um árum, Barna kór Borg ar
ness var lands þekkt ur, og starf andi
var karla kór und ir stjórn Hall dórs,
og að því er heim ild ir greina gengu
nokkr ir karla kórs menn til liðs við
kirkjukór inn.
Um sögn hin fyrsta góð
Fyrsta starfs ár sitt naut Kirkjukór
Borg ar ness leið sagn ar Sig urð ar
Birk is söng mála stjóra Þjóð kirkj
unn ar. Til er frá sögn Kjart ans Sig
ur jóns son ar að stoð ar manns Sig urð
ar Birk is í Kirkju rit inu árið 1943 af
leið sögn Sig urð ar sem ferð að
ist víða um land ið til að leið beina
kirkjukór um. ,, Næsti við komu
stað ur okk ar var Borg ar nes. Þar
hafði tek ist sam starf milli Karla
kórs Borg ar ness og kirkjukórs ins,
báð um til ó met an legs gagns, og
mætti það verða öðr um til fyr ir
mynd ar. Kirkjukór inn í Borg ar nesi
tók nú að æfa af kappi und ir hljóm
leika, og voru þeir haldn ir þann 15.
nóv. 1942 í sam komu hús inu í Borg
ar nesi fyr ir hús fylli og hin um bestu
und ir tekt um. Það er mjög freist
andi að geta þess, að kvöld ið eft
ir hljóm leik ana, bauð séra Björn
Magn ús son öll um kórn um á samt
söng mála stjóra, sókn ar nefnd o.fl.
heim til sín á Borg. Átti fólk þetta
þarna hina á nægju leg asta kvöld
stund. Það er sann ar lega til mik ill ar
upp örv un ar fyr ir hvaða kór sem er
að finna, að prest ur inn fylgist svona
vel með starfi hans og meti það að
verð leik um. Kirkjukór inn í Borg
ar nesi hef ir á gæt um kröft um á að
skipa og Borg nes ing ar þurfa sann
ar lega engu að kvíða í þeim efn um,
er þeir hafa reist hina fyr ir hug uðu
kirkju sína í Borg ar nesi.“ Þetta er
lík lega fyrsta op in bera um sögn in
sem Kirkjukór Borg ar ness fékk og
hef ur get að vel við unað.
Vígsla Borg ar nes kirkju
minn is stæð
Starfs að stæð ur kór fé laga og org
anista voru erf ið ar með an ekki var
kirkja í Borg ar nesi. Þá var mess að í
Barna skól an um eða Sam komu hús
inu, æf ing ar voru þar sem hús næði
fékkst. Út far ir og flest ar kirkju leg
ar at hafn ir fóru hins veg ar fram á
Borg. Allt varð þetta miklu létt ara
þeg ar kirkja var vígð í Borg ar nesi
árið 1959, og mik ill mun ur hef
ur það líka ver ið þeg ar pípu org el ið
kom árið 1967. ,,Áður var í Borg
ar nes kirkju hefð bund ið fót stig ið
org el, gott hljóð færi,“ seg ir Odd
ný Þor kels dótt ir, org anisti um tíma
og kór fé lagi til margra ára. Síð
an kem ur flyg ill inn 1976 og í kjöl
far þess verð ur Borg ar nes kirkja það
vin sæla tón leika hús sem hún hef ur
ver ið all ar göt ur síð an. Raun ar var
hljóm burð ur í kirkj unni ekki tal inn
góð ur fyrr en eft ir þær breyt ing
ar sem lok ið var við árið 1993, en
þá varð hann líka mjög góð ur. Þá
breytti það allri starfs að stöðu kórs
og sókn ar mjög til hins betra þeg ar
Borg ar nes kirkja eign að ist Safn að ar
heim il ið (Fé lags bæ) síðla árs 2003,
og æfir kór inn oft ast þar, enda að
staða ágæt. Áður hafði kirkj an átt
hús næði að Bröttu götu 6 í nokk ur
ár, en það nýtt ist kórn um ekki.
Rekstr ar for send ur
kórs ins
Alla tíð frá stofn un kórs ins hef ur
org anisti ver ið starfs mað ur sókn
ar inn ar. Með an sér staks söng stjóra
naut við, hef ur hann lík lega ver ið al
far ið á veg um kórs ins. Ekki er al veg
ljóst hvern ig fjár hags sam bandi kórs
og sókn ar var hátt að í upp hafi og
nokk uð fram eft ir starfs tíma kórs
ins. Kór inn virð ist hafa þurft að sjá
fyr ir sér hús næði og hljóð færi til æf
inga, en sókn in síð an end ur greitt
þann kostn að að mestu eða öllu. Að
minnsta kosti um tíma virð ist kór
inn hafa greitt á kveðna upp hæð til
org anista fyrir hverja þá at höfn sem
kirkjukór inn fékk greitt fyr ir. Ekki
er vit að til að söng stjór ar væru laun
að ir, og að því best er vit að hafa kór
fé lag ar alltaf ver ið ó laun að ir. Alltaf,
eða lengst af hef ur ver ið tek ið gjald
fyr ir söng við út far ir, frem ur lágt að
vísu. Þetta gjald hef ur lík lega alltaf,
og að minnsta kosti eft ir 1986 far
ið til kórs ins. Í fylgi skjöl um með
árs reikn ing um kórs ins árið 1986 er
hand skrif að ur miði þar sem seg ir:
,, Greiðsla til sókn ar nefnd ar kr. 500
fell ur nið ur. Kirkjukór inn fær alla
greiðslu fyr ir jarð ar far ir.“ Þetta er
í sam ræmi við bók un á fundi sókn
ar nefnd ar 24. októ ber 1984: ,,Sam
þykkt var að gjald fyr ir jarð ar far ir
renni til kirkjukórs ins.“ Kór inn hef
ur einnig not ið stuðn ings fjölda að ila
sem styrkt hafa starf hans og ferða
lög þeg ar þau hafa ver ið á dag skrá.
Marg vís leg
söngverk efni
Söng ur sem hluti af kirkju legri þjón
ustu hef ur frá upp hafi ver ið veiga
mesta verk efni Kirkjukórs Borg ar
ness. Þannig hef ur kór inn sung ið
við flest ar út far ir frá Borg ar kirkju og
síð an Borg ar nes kirkju síð ustu sjö tíu
ár, kór Borg ar kirkju söng þó oft við
út far ir fólks úr þeirri sókn. Á fyrri
árum söng Kirkjukór Borg ar ness oft
við út far ir frá öðr um kirkj um. Hann
hef ur sung ið við ferm ing ar, skírn
ir og nær all ar mess ur í Borg ar nes
kirkju og á Dval ar heim ili aldr aðra í
Borg ar nesi, jafnt á há tíð um sem við
al menn ar mess ur. Þá hef ur kór inn
sung ið í út varps og sjón varps mess
um. Þess er áður get ið að kór fé lag ar
hafi alltaf ver ið ó laun að ir. Þeir hafa
hins veg ar not ið á nægj unn ar af fé
lags skapn um og söngn um, og þeirri
lífs fyll ingu sem hann veit ir, kór fé lag
ar hafa þannig tek ið þátt í gleð inni
þeg ar það átti við, og reynt að miðla
hugg un á stund um sorg ar. Kór inn
hef ur með þessu reynt að leggja sitt
af mörk um sem virk ur þátt tak andi
í sam fé lag inu, og að vera til stað ar
þeg ar þörf er á. Einnig hef ur kór
inn sung ið utan hins kirkju lega hlut
verks. Ferða lög og tón leika hald hafa
vissu lega ver ið gott krydd í til ver
una. Þannig hef ur kór inn far ið í tvær
ut an lands ferð ir og fjöl marg ar styttri
ferð ir inn an lands, og hald ið tón
leika, einn sér eða með öðr um.
Tón eyra org anista réði
Fram boð á góðu söng fólki virð ist
hafa ver ið nægt, en vissu lega kom
það fyr ir að gott söng fólk gat ekki
tek ið þátt í starfi kórs ins vegna
vinnu eða heim il is á stæðna. Org
anist ar voru lagn ir að ná í það fólk
sem þeir töldu henta, og al mennt
virð ist mönn un kórs ins ekki hafa
ver ið neitt vanda mál fyrstu fimm tíu
árin í starfi hans. Það er fyrst árið
1991 sem þess er get ið í frétta til
kynn ingu, sem kór inn birti í Borg
firð ingi og greindi frá því að fimm
tug asta starfs ár kórs ins væri að hefj
ast og nýir fé lag ar boðn ir vel komn
ir, að gott væri að fá fleiri til liðs við
kór inn. ,,Brýn ust nauð syn er okk ur
þó að fá fleiri karl radd ir, bassa og
ten óra.“ Kröf ur til söng fólks hafa
aldrei ver ið skráð ar, þar réði tón
eyra org anista. Í upp hafi hef ur lík
lega ver ið fimmt án til tutt ugu með
lim ir í kórn um, en síð an lengst
af ver ið á milli tutt ugu og þrjá
tíu. Hall dór söng stjóri seg ir í lok
starfs skýrslu sinn ar dags. 19. júní
1947 ,,Kór fé lag ar eru nú 15 tals
ins.“ Í dag eru kór fé lag ar hins veg ar
30. Láta mun nærri að sá kór fé lagi
sem kem ur á all ar æf ing ar og alltaf
þeg ar kór inn syng ur, mæti um átta
tíu til hund rað sinn um á ári.
Stef an ía Þor bjarn ar dótt ir og Jón
Þ. Björns son voru lengst org anist ar
við Borg ar nes kirkju, org anisti frá
2004 er Stein unn Árna dótt ir.
hlh
Bút ar úr sam an tekt Þór ólfs Sveins son ar um
70 ára sögu Kirkjukórs Borg ar ness. Heild ar
verk ið er til sölu hjá Katrínu Magn ús dótt ir
kór fé laga í Borg ar nesi gegn vægu verði.
Borg ar nes kirkja á að ventu.
Ljósm. mm.
Nokk ur brot úr 70 ára sögu Kirkjukórs Borg ar ness
Kirkjukór Borg ar ness í dag á æf ingu í Fé lags bæ á samt Stein unni Árna dótt ur org anista. Ljósm. hlh.
Kór inn árið 1949. Mynd in er tek in við vígslu Barna skóla Borg ar ness 1949. Ljósm. Árni Böðv ars son.
Kór inn á fimm tíu ára af mæli sínu 1992 í Borg ar nes kirkju.