Skessuhorn


Skessuhorn - 06.03.2013, Blaðsíða 28

Skessuhorn - 06.03.2013, Blaðsíða 28
28 MIÐVIKUDAGUR 6. MARS 2013 Ár leg út hlut un Menn ing ar­ ráðs Vest ur lands var föstu dag inn 1. mars síð ast lið inn við at höfn í Stykk is hólms kirkju. Þetta var í átt­ unda sinn sem Menn ing ar ráð Vest­ ur lands út hlut ar styrkj um en ráð ið var stofn að í árs lok 2005 á grund­ velli samn ings á milli sveit ar fé laga á Vest ur landi og rík is ins. Að þessu sinni komu til út hlut un ar tæp ar 25 millj ón ir króna auk 9,2 millj óna í stofn­ og rekstr ar styrki. Um sókn­ ir um menn ing ar styrki voru 121 í ár að upp hæð tæp lega 81 millj ón króna. Að þessu sinni var út hlut­ að til 72 verk efna. Alls fengu 25 verk efni yfir fjög ur hund ruð þús­ und krón um út hlut að og voru þeir styrk ir af hent ir í Stykk is hólmi. Að auki var stofn­ og rekstr ar styrkj um út hlut að í ann að sinn en þar fengu þrett án stofn an ir alls 9,2 millj ón ir króna. Það var Stein grím ur J. Sig­ fús son at vinnu vega­ og ný sköp un­ ar ráð herra sem út hlut aði styrkj un­ um á samt Höllu Stein ólfs dótt ur for manns Menn ing ar ráðs og El­ ísa betu Har alds dótt ur menn ing ar­ full trúa Vest ur lands. Ör nefna skrán ing fékk sér staka við ur kenn ingu Stærstu menn ing ar styrki fengu að þessu sinni Byggða safn Dala manna og Hér aðs skjala safn ið í sam starfi við Nýp ur hyrnu og Stofn un Árna Magn ús son ar, Ís lensk ir eldsmið ir og Mark aðs stofa Vest ur lands, eina millj ón hver. Þá veitti Menn ing ar­ ráð Vest ur lands að auki við ur kenn­ ingu fyr ir fram úr skar andi starf en sú við ur kenn ing féll í skaut Fé lags aldr aðra í Borg ar fjarð ar döl um. Við ur kenn ing in er veitt fyr ir tutt­ ugu ára ó eig in gjarnt starf við að safna og varð veita ör nefni í Borg­ ar fjarð ar döl um. Það var Þor steinn Þor steins son á Skálpa stöð um sem veitti við ur kenn ing unni við töku fyr ir hönd fé lags ins og flutti stutt á varp. Rakti hann sögu verk efn is­ ins frá upp hafi og til dags ins í dag en fé lag ar binda von ir við að ör­ nefn in verði kom in inn í korta­ grunn Land mæl inga Ís lands fyr­ ir árs lok 2014. Hann á rétt aði að hér væri um að ræða þekk ingu sem ann ars hefði glat ast með elstu kyn­ slóð inni. Þessi kyn slóð hefði þurft að þekkja ör nefn in með al ann­ ars þeg ar bú fén að ur var sótt ur til fjalla á árum áður. Bú skap ar hætt ir hafi hins veg ar breyst mik ið á síð­ ustu árum og þekk ing in því ekki eins þörf í dag. Efla skap andi grein ar sem sjálf stæð an at vinnu veg Við at höfn ina voru flutt þrjú tón­ list ar at riði. Fyrst flutti Ísól Lilja Ró berts dótt ir lag ið Be arcat Boogie eft ir Faber & Faber á pí anó, þá lék László Petö org anisti lag ið Ach bleib bei uns, Herr Jesu Christ eft­ ir Bach á nýja Klais org el ið í kirkj­ unni og að lok um lék Stór sveit Snæ fells ness tvö lög að at höfn lok­ inni, Birdland og Ent er Sand m an, und ir stjórn Bald urs Orra Rafns­ son ar. Í á varpi Höllu Stein ólfs dótt­ ur for manns Menn ing ar ráðs kom fram að á næstu árum megi bú ast við breyt ing um á starf semi Menn­ ing ar ráðs með til komu vinnu vegna Sókn ar á ætl un ar 2020 en Menn ing ar ráð Vest ur lands hef ur á síð ustu átta árum styrkt hin ýmsu og ó lík leg ustu verk efni. „Sum verk efni hafa ver ið árs ins dæg ur­ fluga en önn ur vax ið og eru enn að vaxa. Það má sjá á fjöl breytt um við burð um all an árs ins hring. Ég nefni tón list, leik list, list sýn ing ar, sögu sýn ing ar, ekki má gera lít ið úr því hversu mik il vægt það er að kór ar hafi að gang að tón mennt uð­ um starfs mönn um og á hinn bóg­ inn að tón mennt að fólk geti feng­ ið laun aða vinnu við sitt hæfi. Kór­ ar hafa ekki í aðra sjóði að sækja. Sama má segja um leik list ina, að leik hóp ar geti feng ið fag fólk til að fara út fyr ir þæg inda mörk in í þétt­ býl inu og setja upp leik verk með á huga leik ur um víðs veg ar um land. Þarna hlú um við að gras rót inni og margt hef ur kvikn að af því sem sáð hef ur ver ið á þeim vett vangi. Að þessu sinni renna styrk ir Menn­ ing ar ráðs Vest ur lands sem fyrr til verk efna sem efla skap andi grein ar sem sjálf stæð an at vinnu veg. Horft er til þess að verk efni fjölgi at­ vinnu tæki fær um í menn ingu, list­ um og menn ing ar tengdri ferða­ þjón ustu, að verk efn in styrki list­ sköp un ein stak linga og styrki list­ ræna sköp un og skap andi hugs un í verk efn um barna og ung linga," sagði Halla með al ann ars. ákj László Petö org anisti lék lag á nýja Klais org el ið í Stykk is hólms kirkju við til efn ið. Tæp um 25 millj ón um króna út hlut að til menn ing ar mála á Vest ur landi Styrk þeg ar og full trú ar þeirra. Stór sveit Snæ fells ness spil aði tvö lög við at höfn ina. Stein grím ur J. Sig fús son at vinnu­ vega­ og ný sköp un ar ráð herra hélt stutt á varp áður en hann út hlut aði styrkj un um. Halla Steinólfsdóttir formaður Menningarráðs Vesturlands.

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.