Skessuhorn


Skessuhorn - 06.03.2013, Blaðsíða 14

Skessuhorn - 06.03.2013, Blaðsíða 14
14 MIÐVIKUDAGUR 6. MARS 2013 Frá því öldr un ar lækn inga deild inni, E­ deild, var lok að á Heil brigð is­ stofn un Vest ur lands á Akra nesi vor­ ið 2012, hef ur lít ið frést af af drif um þeirr ar starf semi sem þar var, en um ræð an á stund um ver ið á þann veg eins og öll þjón usta sem henni fylgdi hafi horf ið við lok un deild ar­ inn ar. Svo er þó al deil is ekki og að því komst blaða mað ur Skessu horns þeg ar hann leit í heim sókn í síð ustu viku. Frá haustinu 2012 hef ur end­ ur hæf ing fyr ir aldr aða á göngu deild ver ið í boði hjá Heil brigð is stofn­ un Vest ur lands á Akra nesi. Um er að ræða sama end ur hæf ing ar pró­ gramm og var áður í boði á E­deild­ inni. „ Þessi breyt ing hef ur fylgt annarri þró un í heil brigð is kerf­ inu og er þessi þjón usta nú í boði á göngu deild. Það er á nægju legt og mik il vægt að geta boð ið upp á þessa þjón ustu á fram og hef ur þetta nýja göngu deild ar fyr ir komu lag mælst vel fyr ir. Einnig hafa hvíld ar inn­ lagn ir sem áður voru á E­ deild nú flust á lyf lækn inga deild," seg ir Þór­ lína Svein björns dótt ir hjúkr un ar­ fræð ing ur á göngu deild inni. Fagteymi sér um mat Þór lína seg ir um að ræða sér hæfða end ur hæf ingu fyr ir eldri borg­ ara sem búa heima, ætl uð ein­ stak ling um með miðl ungs skerta færni. Mark mið ið sé að styrkja þá til á fram hald andi bú setu á eig­ in heim ili. Fagteymi ber á byrgð á end ur hæf ing unni og met ur heilsu­ far fólks ins og færni. Það er skip að lækni, sjúkra þjálf ur um, iðju þjálfa og hjúkr un ar fræð ing um frá göngu­ deild og heima hjúkr un. Beiðni um end ur hæf ingu berst til teym is ins frá fag að il um, er tekin fyr ir á fund­ um þess og í fram hald inu eru ein­ stak ling arn ir kall að ir inn. Í upp­ hafi með ferð ar fara fram við töl við lækni og hjúkr un ar fræð ing, þar sem far ið er yfir heilsu fars upp lýs­ ing ar og í fram haldi met ið hvaða Af 101 bíl sem kom í tjóna skoð un­ ar stöð Vá trygg inga fé lags Ís lands fyrstu átta vik ur árs ins reynd ust 13% þeirra vera á sum ar dekkj­ um, 28% á negld um dekkj um og 59% á vetr ar­ eða heils árs dekkj­ um. Á fimmt ungi bíla voru dekk in of slit in til að heim ilt væri að aka á þeim, þ.e. dýpt mynsturs ins var inn an við 1,6 milli metr ar. „Í jan ú­ ar bár ust VÍS yfir 100 til kynn ing­ ar um afta ná keyrsl ur. Bil á milli bíla, háll veg ur, slæmt skyggni, at­ hygli öku manns, hraði og á stand dekkja eru allt þætt ir sem hafa sitt að segja í afta ná keyrsl um. Á hálum vegi og í slæmu skyggni skap ast ytri að stæð ur sem krefj­ ast þess að ekið sé af enn meiri var færni en ella. Hin ir þætt irn ir, bil á milli bíla, at hygli, hraði og á stand dekkja eru aft ur á móti al­ far ið und ir öku mönn um komn­ ir. Með góð um dekkj um, rétt um loft þrýst ingi og reglu legri tjöru­ hreins un eykst ör yggi dekkj anna," seg ir í til kynn ingu frá Sig rúnu A Þor steins dótt ur upp lýs inga full­ trúa VÍS. Þá seg ir að dekk séu eini snerti­ flöt ur bíla við vegi og mik il vægt að þau séu í not hæfu á standi. „Miða þarf teg und dekkja við árs tíma og þær að stæð ur sem ekið er við. Á lé leg um dekkj um leng ist stöðv­ un ar vega lengd in, meiri hætta er á að missa stjórn á bíln um og meiri lík ur eru á að hann fljóti upp á blaut um vegi. Bíl belti auka einnig ör ygg ið í afta ná keyrsl um og rétt stillt ur höf uð púði skipt ir höf uð­ máli til að minnka lík ur á hálsá­ verk um." mm Slitn ir hjól barð ar und ir tjóna bíl. Fimmt ung ur bíla reynd ist á ó nýt um dekkj um End ur hæf ing ar prógram mið frá E­ deild nú í boði í göngu deild ar formi rann sókn ir eru gerð ar. Lækn ir og hjúkr un ar fræð ing ur fylgist síð an með við kom andi eft ir þörf um með­ an á end ur hæf ingu stend ur. Heil mik ill fé lags skap ur Á tíma bil inu sept em ber til des­ em ber síð ast lið inn fóru 13 í gegn­ um end ur hæf ing ar prógram mið á HVE. Flest ir voru þess ir ein stak­ ling ar af Akra nesi og ná grenni, en Þór lína hjúkr un ar fræð ing ur seg­ ir þessa þjón ustu einnig í boði fyr ir aðra á starfs svæði HVE. Hún seg ir út kom una hafa ver ið góða og fyr ir­ byggj andi. „Við höf um séð ó trú leg­ an ár ang ur og fólk full yrð ir að því líði bet ur, bæði and lega og lík am­ lega. Það er líka auð séð að fólk fær heil mik inn fé lags skap út úr þessu," seg ir Þór lína. Fjór ir ein stak ling ar taka þátt í end ur hæf ing unni í senn og er hún virka daga klukk an 9­12, fjór ar vik ur í einu. Greitt er fyr ir þjón ust una og rann sókn ir. Inni falið í gjald inu er létt morg un hress ing, handa vinnu efni og ýmis til fallandi að stoð eft ir þörf um hvers og eins. Blaða mað ur gat ekki bet ur séð en öll að staða væri góð, hvort held­ ur er í æf inga sal sjúkra þjálf un ar eða að stöðu iðju þjálf un ar. Dag leg færni fólks er m.a. met in í æf inga eld húsi sem til heyr ir iðju þjálf un. Þar eru still an leg ar inn rétt ing ar og tæki, á samt eld hús á höld um sem henta fólki vel með skerta færni af ýms­ um toga. Fram far ir metn ar Í sjúkra þjálf un er æf inga með ferð í styrkj andi og jafn væg is bæt andi æf­ ing um sem og göngu æf ing um til að auka út hald. Reynt er að laga æf­ ing arn ar að færni og þörf um hvers og eins. Tek in eru próf við upp haf og lok með ferð ar til að meta fram­ far ir. Ekki er um ræða aðra sjúkra­ þjálf un sam hliða. Í iðju þjálf un er met in al menn færni til sjálfs bjarg ar og virkni á samt því að verk leg geta er met in. Al geng hjálp ar tæki eru kynnt, þörf­ in fyr ir þau met in og far ið í heim­ sókn á heim ili ef þörf kref ur að kanna að stæð ur heima fyr ir. Fé lags­ leg virkni og staða er skoð uð. Met­ in þörf fyr ir að stoð, ein stak ling­ in um kynnt hvaða þjón usta og af­ þrey ing stend ur til boða og hvern ig megi nálg ast hana. Við lok end ur­ hæf ing ar er ár ang ur inn met inn og ein stak ling ur inn hvatt ur til að við­ halda þeim ár angri sem náðst hef ur. Í sam ræmi við þarf ir ein stak lings ins er eft ir fylgni skipu lögð. Líf ið gjör breytt ist Blaða mað ur Skessu horns hitti í iðju þjálfun inni þrjár kon ur sem mis lengi höfðu ver ið í end ur hæf­ ing ar próf gramm inu. Ein þeirra Bjarn ey Gunn ars dótt ir var í þessu prógrammi líka fyr ir ári, en dæmi eru um að fólk komi nokkrum sinn um í end ur hæf ing una, þá með ein hverju milli bili til að skerpa á skrokkn um að nýju. „Ég er bú in að vera hérna í tvær vik ur og þetta er al veg dá sam legt. Ég var hérna fyr ir ári og þá gjör breytt ist al veg mitt líf eft ir þá með ferð. Ég fæ mun meira þrek og styrk og end ur nær ist al veg í þessu," seg ir Bjarn ey. Guð rún Jak obs dótt ir var langt kom in með fjór ar vik urn ar. „Ég hef mjög gott af þessu. Það er alltaf gott þeg ar mað ur ger ir hlut ina við leið­ sögn. Ég get til dæm is ekki stund­ að leik fim ina nema und ir eft ir liti," seg ir Guð rún. Sig ur veig Guð jóns dótt ir var að ljúka þriðju vik unni. „ Þetta er mjög styrkj andi og ég er á nægð með út­ kom una. Ég var þrek laus þeg ar ég kom en er að fá þrek ið aft ur," sagði Sig ur veig. þá Í end ur hæf ing unni er æf inga sal ur inn nýtt ur vel til að byggja upp þrek og styrk. Starfs fólk á dag deild inni: Rík ey Andr és dótt ir að stoð ar mann eskja í iðju, Ing unn Við ars dótt ir sjúkra þjálf ari, Ingi björg Ósk ars­ dótt ir sjúkra þjálf ari, Sig rún Ás munds dótt ir iðju þjálfi og Þór lína Sveins björns dótt ir hjúkr un ar fræð ing ur. Sig ur veig Guð jóns dótt ir, Bjarn ey Gunn ars dótt ir og Guð rún Jak obs dótt ir.

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.