Skessuhorn - 17.07.2013, Síða 6
6 MIÐVIKUDAGUR 17. JÚLÍ 2013
Lárus tekur við
sem forseti ÍSÍ
LANDIÐ: Eftir fráfall Ólafs
E. Rafnssonar forseta Íþrótta-
og Ólympíusambands Íslands
19. júní sl. tók Lárus L. Blön-
dal varaforseti ÍSÍ við emb-
ætti forseta ÍSÍ, eins og lög
ÍSÍ kveða á um. Á fundi fram-
kvæmdastjórnar ÍSÍ 11. júlí sl.
var síðan endurskipað í emb-
ætti stjórnar sambandsins. Nú
skipar Helga Steinunn Guð-
mundsdóttir embætti vara-
forseta og Sigríður Jóns-
dóttir embætti ritara. Gunn-
ar Bragason verður eftir sem
áður gjaldkeri ÍSÍ.
–hlh
Umferð jókst
um göngin
HVALFJ.SV: Samkvæmt töl-
um frá Vegagerðinni jókst
umferð um Hvalfjarðargöng-
in lítillega fyrstu tvær vikurn-
ar í júlí samanborið við sömu
vikur í fyrra. Nemur aukn-
ingin um hálfu prósentustigi.
Á sama tímabili dróst um-
ferð um Hellisheiði saman
um 7,3%. Það sem af er sumri
hefur umferð um göngin auk-
ist um 1,5%. Að meðaltali er
vöxtur í umferð á virkum dög-
um 2,1%, á meðan umferð um
helgar og á föstudögum drógst
saman um 1,3% í Hvalfjarðar-
göngum.
–hlh
Breytingar á trú-
og lífsskoðunar-
félagsaðild
LANDIÐ: Þjóðskrá Íslands
hefur tekið saman tölur um
breytingar á trú- og lífsskoð-
unarfélagsaðild sem skráðar
hafa verið frá 1. apríl til 30. júní
á þessu ári. Þann 13. febrúar
2013 tóku gildi breytingar á
lögum um skráð trúfélög nr.
108/1999, (lífsskoðunarfélög,
aðild barna að skráðum trú-
félögum, lífsskoðunarfélög-
um o.fl.). Þessar lagabreyt-
ingar miðuðu að því að jafna
stöðu lífsskoðunarfélaga á við
stöðu skráðra trúfélaga. Sam-
kvæmt frétt Hagstofunnar
gengu 325 fleiri úr Þjóðkirkj-
unni en í hana á tímabilinu. Í
fríkirkjurnar þrjár gengu 43
fleiri en úr þeim og 138 fleiri
í önnur trúfélög en úr þeim.
Í Siðmennt, sem er nýskráð
lífsskoðunarfélag, gengu 213.
Nýskráðir utan félaga voru 69
færri en gengu í félög eftir að
hafa verið utan félaga. –mm
Enn dregur úr
atvinnuleysi
LANDIÐ: Samkvæmt nýj-
ustu tölum frá Vinnumála-
stofnun er atvinnuleysi á Ís-
landi 3,9%. Þetta þýðir að
atvinnuleysi minnkaði milli
mánaða, en það mældist 4,3%
í maí. Atvinnuleysi hefur frá
áramótum dregist saman um
1,6 prósentustig, var 5,5% í
janúar. Staðan á vinnumarkaði
er einnig betri miðað við júní
í fyrra en þá mældist atvinnu-
leysi 4,8% og 6,7% í júnímán-
uði árið 2011. Sé atvinnuleysi
á landinu skoðað á grunni ein-
stakra landshluta kemur í ljós
að atvinnuleysi á Vesturlandi
er einungis 2% en var 2,3% í
maí. Mest mælist atvinnuleysi
á Suðurnesjum, eða 5,3%.
–hlh
Karen Líndal í
landsliðið
HVALFJ.SV: Landslið Íslands
í hestaíþróttum er nú fullskipað
fyrir Heimsleika íslenska hestsins
sem verða í Berlín í byrjun ágúst
eftir að liðsstjórinn valdi Karen
Líndal Marteinsdóttur í liðið á
mánudaginn. Karen er frá Vestri-
Leirárgörðum í Hvalfjarðarsveit
og keppir á stóðhestinum Tý frá
Þverá II en þau urðu í þriðja sæti í
fjórgangi á Íslandsmótinu í Borg-
arnesi um nýliðna helgi. Karen er
reyndur tamningamaður og þjálf-
ari í hestaíþróttum. Hafa hún og
hinn átta ára gamli Týr átt góðu
gengi að fagna á síðastliðnum fjór-
um árum og hefur sá góði árangur
nú skilað þeim í landsliðshópinn.
Karen keppir í hópi fullorðinna en
alls er 21 knapi sem fer til Þýska-
lands ásamt hrossum og er þeim
skipt í þrjá hópa, fullorðna, ung-
menni og knapa kynbótahrossa.
-jsb
Hross flækt í
gaddavírsgirðingu
AKRANES: Síðastliðinn laugar-
dag klipptu lögreglumenn hross
laust sem flækst hafði í gaddavírs-
girðingu skammt utan við Akra-
nes. Því hafði eflaust þótt grasið
grænna á næsta stykki og fest sig
í girðingunni í tilraun sinni til að
komast í herlegheitin. Hrossinu
varð ekki meint af. –sko
Ferðamönnum
fjölgar áfram
LANDIÐ: Um 90 þúsund erlend-
ir ferðamenn héldu úr landi um
Flugstöð Leifs Eiríkssonar í júní.
Þetta kom fram í tölum frá Ferða-
málastofu Íslands sem birtar voru
sl. fimmtudag. Þetta þýðir að ferða-
mönnum fjölgaði um 20,9% frá því
á sama tíma í fyrra þegar þeir voru
tæplega 74 þúsund. Fjölgunin er í
takt við aukningu í fyrri mánuðum
ársins en samtals hefur aukningin
á fyrstu sex mánuðum ársins ver-
ið 27,2%. Brottfarir eru nú orðn-
ar fleiri en voru allt árið 2003 en
nokkuð ljóst er að árið 2013 verður
metár í þessu tilliti. –hlh
Garðar Bergendal byrjaði árið
2000 að mæla rafbylgjur úr jörðu
og rafbylgjur sem koma úr tengl-
um, tölvum, gsm símum og ljós-
um. Allar þessar bylgjur hafa áhrif
á fólk og skepnur og geta valdið
ýmsum kvillum á borð við; mí-
greni og annan höfuðverk, svefn-
truflunum, vöðvabólgu, exemi,
þurrk í húð vegna tölvu, fóta-
verkjum og fleira. Þá geta raf-
bylgjur haft áhrif á búfénað, svo
sem sauðfé og valdið t.d. júgur-
bólgu í kúm. Garðar býður íbúum
á Vesturlandi að koma og mæla
bylgjurnar og framkvæma þær að-
gerðir sem þarf. Upplýsingar gef-
ur Garðar í síma 581-1564 og
892-3341.
-fréttatilkynning
Á miðvikudaginn í liðinni viku
heimsóttu sautján ungmenni á veg-
um Skemmtismiðjunnar á Akranesi,
Björgunarfélag Akraness. Aðstand-
endur Skemmtismiðjunnar eru Haf-
dís Bergsdóttir og Hildur Björns-
dóttir en þær stofnuðu smiðjuna fyrr
á þessu ári. Markmið heimsóknar-
innar var að gefa krökkunum færi
á að kynnast starfsemi björgunar-
félagsins og um leið að kynnast störf-
um björgunarmannsins. Krakkarn-
ir fengu að spreyta sig á klifri í klif-
uraðstöðunni í K2, höfuðstöðvum
björgunarfélagsins og einnig að fara í
sjóferð að baujunni við Akraneshöfn.
Góð stemning var í hópnum og voru
ungmennin afar ánægð með heim-
sóknina. hlh/ Ljósm. Kolla Ingvars.
Töluverður fjöldi af
spánarsniglum fund-
ust í garði við íbúð-
arhús á Akranesi
um helgina. Spán-
arsniglar af þeirri
tegund sem sjást á
meðfylgjandi mynd
hafa gert vart við
sig ítrekað á liðn-
um árum en fyrst
var tekið eftir þeim
árið 2003 í Reykja-
vík. Þeirra varð fyrst
vart á Akranesi sum-
arið 2011. Sam-
kvæmt upplýsingum
af vef Náttúrufræðistofnunar Ís-
lands eru sniglarnir afar algengir í
nágrannalöndunum og eru til mik-
ils skaða í görðum og garðrækt. Það
sem gerir hann að slíkum vágesti er
frjósemi hans, stærð og græðgi, en
hann er talinn geta étið hálfa þyngd
sína á dag af öllu sem lífrænt er,
ekki síst garðplöntum. Hann þrífst
best í röku og úrkomusömu lofts-
lagi en ætla má að veðrátta sumars-
ins hafi verið fjölg-
un hans hagfelld.
Snigillinn er að öllu
jöfnu auðþekkt-
ur frá öðrum snigl-
um hér á landi, þar
sem hann er einlit-
ur rauður, þótt rauði
liturinn geti verið
breytilegur. Fullvax-
inn er hann tröllvax-
inn, miklu stærri en
aðrir sniglar af sinni
ættkvísl. Á vef Nátt-
úrufræðistofnunn-
ar segir ennfremur
að mikilvægt sé að
sporna gegn landnámi spánarsnig-
ils eins og frekast er unnt og skal
því tortíma þeim sniglum sem ekki
gefst kostur á að skila til Náttúru-
fræðistofnunar. hlh
Hópurinn sem heimsótti Björgunarfélag Akraness á miðvikudaginn.
Kynntust starfi björgunarmannsins
Býður upp á rafbylgjumælingar
Hluti þeirra Spánarsnigla sem fundust í garði á Akranesi um liðna helgi.
Ljósm. ki.
Spánarsniglum fjölgar í vætutíð