Skessuhorn


Skessuhorn - 17.07.2013, Qupperneq 16

Skessuhorn - 17.07.2013, Qupperneq 16
16 MIÐVIKUDAGUR 17. JÚLÍ 2013 „Þáverandi bæjarstjóri, Gísli Gísla- son, sakaði mig um að hafa stolið þessum skipsskrúfum en hann stal þeim sjálfur,“ segir Hafsteinn Jó- hannsson Akurnesingur og kafari með meiru, þegar blaðamaður sett- ist niður með honum að ræða um skipsskrúfur sem eru við hafnarhús- ið á Akranesi. „Þessar skrúfur voru á síðustu Eldingunni minni en ekki á annarri tveggja ferja sem keyptar voru hingað árið 1946, eins og bæj- arstjórinn hélt fram. Meira að segja var þetta fullyrt í Skagablaðinu sem þá var gefið út hér á Skagan- um. Þetta er nú svolítið athyglisvert að lögfræðimenntaður maður skuli haga sér svona án þess að kanna málið því framleiðsluár skrúfanna er grafið í þær. Svona er þetta. Það er háttur lögfræðinga að þæfa mál- in,“ segir Hafsteinn sem síðustu 40 ár hefur búið í Noregi. „Það eina sem ég fer fram á er að skrúfunum verði skilað og þá er málið búið,“ segir hann. Átti þessar skipsskrúfur frá upphafi Hafsteinn segist hafa frétt af því fyrir tilviljun að skrúfurnar hefðu verið fjarlægðar af lóð æskuheimil- is síns við Krókatún. „Geiri bróð- ir bjó þar um tíma og hann kom skrúfunum fyrir í gamla hænsna- skúrnum sem er á lóðamörkunum. Þegar þetta gerðist átti Óli Þórðar á Hvítanesi þetta hús en leigði það út meðan hann var í fótboltanum í Noregi. Leigjandinn sagði bæj- arstjóranum að hann vissi ekkert um þessar skrúfur svo hann þyrfti að hafa samband við Óla. Það var ekki gert og skrúfurnar fjarlægð- ar. Ég hef átt þessar koparskrúf- ur frá upphafi því þær voru á síð- ustu Eldingunni minni,“ segir Haf- steinn. Honum er mikið niðri fyr- ir að leiðrétta þetta og vill ekki sitja undir því, orðinn 78 ára gamall, að vera stimplaður þjófur á Akra- nesi. „Það er alveg rétt að við gerð- um mikið af okkur nokkrir strákar á Skaganum á þessum árum. Þetta voru svo sem engin skipulögð sam- tök hjá okkur með formann og slíkt en með mér voru oft Binni skarfur, Hilmar hressilegi, Andri á Sunnu- hvoli, Maggi bróðir, Stjáni meik og fleiri. Það sem ég gerði af mér á þessum árum gæti ég skrifað á eina A-4 síðu og svo gæti ég alveg skrif- að aðra með því sem ég var sakaður um, en kom hvergi nærri. Við vor- um bara það sem er í dag ADHD plús eða mínus fimm. Eins ofvirkir og hægt var. Við vorum bara fædd- ir svona og engin ráð til við því þá. Um tíma var farið að kenna okk- ur um alla mögulega hluti sem úr- skeiðis fóru á Akranesi, sérstaklega mér. „Ég man vel eftir því þegar ná- granni minn, Stebbi lögga, breytti þrisvar framburði sínum í ákæru á mig fyrir að hafa brotist inn í Fiski- ver. Hann kærði mig fyrir að hafa skotið máv út um eldhúsgluggann heima og það var alveg rétt. Hann var í svo góðu færi þessi mávur að ég stóðst það ekki að skjóta hann en þegar hvert ákæruatriðið af öðru var hrakið fannst mér nóg kom- ið. Nóg var það samt,“ segir Haf- steinn sem er með reiðhjól með- ferðis í húsbílnum sínum. Á hjólinu fer hann á um allar trissur. Vegurinn grafinn Hafsteinn var líka oft í stríði við Stefán nágranna sinn. Einu sinni fannst honum hann ganga of langt. Þá hafði Stefán byggt bílskúr sam- hliða skúr foreldra Hafsteins og steypti síðan rúmlega eins metra háan steinvegg á milli aðkeyrsln- anna að skúrunum. „Hann steypti vegginn ekki inni á sinni lóð því veggurinn var allur á okkar lóð og því minnkaði lóðin hans ekkert. Við margbáðum hann um að hafa vegginn lægri en hann sinnti því ekki. Þetta var svo þröngt að ég gat ekki opnað hurðir á bílnum hjá mér án þess að reka þær utan í vegg- inn, enda var ég yfirleitt á stórum amerískum bílum. Ég tók mig því til einn daginn og gróf rúmlega metra breiðan skurð meðfram öll- um veggnum, gekk svo út að götu og gaf veggnum létt spark og hann lagðist allur snyrtilega ofan í skurð- inn. Svo mokaði ég bara yfir. Þetta var auðvitað svolítið kvikindislega gert en úr þessu varð samt ekkert kærumál, því karlinn hefur eflaust vitað upp á sig sökina.“ Vill ekki vera dæmdur glæpamaður á Skaganum Hafsteinn er greinilega bitur út í það orðspor sem sveitungar hans á Akranesi hafa komið á hann. Hann er reglumaður og hefur aldrei bragðað áfengi né reykt. Þess vegna segir hann alltaf meira inni á banka- bókinni sinni þegar hann komi úr Íslandsferðum en þegar hann fer að heiman. Hafsteinn ferðast nú um landið á sendiferðabíl og ætl- ar að vera í rúma þrjá mánuði áður en hann heldur til Noregs á ný. Þar býr Geiri bróðir hans með hon- um. „Þetta gekk svo langt um tíma að Sveina systir varð fyrir barðinu á þessu þegar hún var að vinna í Skútunni. Þangað kom smá gutti og benti á myndina af skútunni minni á vegg þar og sagði að sá sem ætti þessa skútu væri glæpamaður. Þeg- ar hún gekk á hann og spurði hvað- an hann hefði það, varla hefði hann lært þetta í skólanum, var hann fljótur til svars og svaraði um hæl. „Pabbi sagði það.“ Það er ekki gott þegar svona rangfærslur eru hafðar fyrir börnum. Ég var búinn að reyna lengi að fá byssuleyfi og ég var því öruggt skotmark hjá lögreglunni sem aldrei vildi láta mig hafa leyf- ið. Maður var búinn að vera fasta- gestur hjá Þórhalli Sæmundssyni bæjarfógeta um tíma.“ Hafsteinn er með öll viðurnefni Skagamanna á hreinu frá því að hann var að alast upp. „Það þýddi ekkert að nefna menn með fullu nafni hér áður fyrr. Þeir þekktust ekki. Ég var með les- blindu og var í tossabekknum, ef- laust væri ég greindur þannig núna. Ég man ekki í hvaða bekk ég var þegar ég loks náði að lesa 100 at- kvæði á mínútu og þá klappaði allur bekkurinn, nema Gvendur Skolli, sem var kennari, hann sagði að ekki ætti að klappa fyrir mér. Karlinn var ekki nokkur kennari og skyldi ekki okkur krakkana. Alli Sí var með mér í bekk og Hálfdán kennari sagði einu sinni að annar okkar yrði að fara. Á þessum tíma vorum við bara óþekkir og ódælir. Nú værum við settir á rítalín en það sem átti að gera var að virkja kraftinn í okk- ur til einhvers nýtilegs. Það er ekk- ert vafamál að þetta átti að gera við okkur.“ Hafsteinn segist ekki hafa haldið dagbók en þetta byggi hann á dagbókum vinar síns. Allar dagsetningar á hreinu „Við skiptum um skrúfur á Elding- unni í Sandgerðishöfn, renndum henni þar upp í fjöru. Þær voru svo settar inn í skúrinn á Krókatúninu og þetta eru sömu skrúfurnar, sem ég hef átt alla tíð. Óli Þórðar sagði mér að á þessum tíma hafi hann verið úti í Noregi og leigt íbúð- ina. Leigjandinn hafði sagt honum að hann gæti ekkert gert í þessu því verið væri að taka þær. Gísli bæj- arstjóri stal þeim þar.“ Skrúfurn- ar verðmætu eru nú til skrauts við hafnarskrifstofuna á horni Fax- abrautar og Akursbrautar. Merk- ingin á þeim er greinileg 11-1965 og merki skipasmíðastöðvarinn- ar greypt í koparinn. Betri sönn- un fyrir eignarhaldi Hafsteins er því vandfundin. „Við skiptum um skrúfur á Eldingunni þriðjudag- inn 6. júní árið 1967, það er skjal- fest í dagbókum og hún var með tvær skrúfur. Þetta var síðasta Eld- ingin, sem smíðuð var í Kópavog- inum. Ég var nú sagður hafa stol- ið henni en þannig var að báturinn var kyrrsettur þegar fyrirtækið fór á hausinn og þeir voru margir fleiri en ég sem töpuðu peningum í þessu gjaldþroti. T.d. Þórður Óskarsson, útgerðarmaður hér á Akranesi, sem var búinn að borga inn á nýsmíði sem aldrei varð neitt úr og svo voru þeir nýju búnir að smíða nýj- an Baldur á Breiðafjörðinn. Ég fór því þarna niður á bryggju um borð í bátinn og sýslumaðurinn æddi þangað til að kanna hvað ég væri að gera. „Ég man að hann benti á koparrör í vélarrúminu og sagði við mig að þau væru nú mikils virði en svaraði með því að segja nei. „Þá lýsi ég því hér með yfir að þú ert löglegur eigandi bátsins,“ sagði hann þá. Málið er að ég var búinn að borga vélina í bátnum og miklu meira en það en skipasmíðastöðin notaði peningana til að klára Bald- ur og þangað fóru líka peningarn- ir sem Þórður hafði borgað þeim. Þessi Skipasmiðja Kópavogs ætl- aði bara að velta þessu öllu á und- an sér. Eldingin var síðasti báturinn sem þar var smíðaður en hún var 107 brúttótonn. Við Geiri bróð- ir keyptum hana svo aftur á níunda áratugnum og hann gerði hana út um tíma og hann aðstoðaði skip. Í dag er þetta hvalaskoðunarbát- ur og ber ennþá sama nafnið. Við ætluðum í fyrstu bara að taka vél- arnar úr bátnum og henda honum því skrokkurinn var svo illa farinn. Það var einhver köfunarþjónusta sem átti bátinn og það hafði verið hroðalega illa gengið um hann. T.d. var búið að eyðileggja allar innrétt- ingar í honum. Við lögðum svolitla peninga í púkk og keyptum bát- inn og Geiri gerði hann út. Hann setti bátinn í slipp hér á Akranesi og gerði hann fínan. Á fjölda ljósmynda Í gegnum árin hefur Hafsteinn tek- ið mikið af ljósmyndum og ekki síst á síldarárunum þegar hann fylgdi síldarflotanum eftir á Eldingunni og bjargaði þá ófáum bátum frá því að sökkva, þegar næturnar festust í skrúfum og fóru jafnvel inn á dekk. Þær eru margar sögurnar sem sjó- menn þeirra tíma kunna af afrek- um Hafsteins þá, en hann þótti einkar kaldur og tefldi oft á tæp- asta vað þegar hann kafaði und- ir báta sem áhafnirnar voru bún- ar að yfirgefa. „Ég gaf Ljósmynda- safni Akraness mikið af myndum og nú hafa um 500 þeirra verið settar inn á síðu safnsins. Hins vegar tap- aði ég talsverðu af filmum á sín- um tíma. Snorri Snorrason, flug- maður og ljósmyndari, fékk hjá mér tvær fullar möppur af filmum en þegar ég loks náði filmunum til baka aftur vantaði um helminginn Vill gera upp fortíðina á Akranesi Hafsteinn Jóhannsson kafari og siglingakappi er búsettur í Noregi en í heimsókn á Akranesi Hafsteinn við tjaldstæðið í Kalmansvík sem hann segir það ódýrasta á landinu. Nýjasta Eldingin. Bátur sem Hafsteinn smíðaði sjálfur en fékk ekki skráðan hér á landi. Myndin er af málverki en Hafsteinn man ekki nafn málarans.

x

Skessuhorn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.