Skessuhorn - 17.07.2013, Side 24
24 MIÐVIKUDAGUR 17. JÚLÍ 2013
Lengi er hægt að horfa á og fylgj-
ast með aðgerðarleysi án þess að
tjá sig. Segja við sjálfan sig: „Þetta
kemur mér ekki lengur við.“ En
nú get ég ekki orða bundist leng-
ur. Á nýafstöðnu 27. Landsmóti
UMFÍ á Selfossi var ég oft spurður
af ungmennafélögum víða af land-
inu: Hvað er eiginlega að gerast hjá
UMSB? Spurningin var sennilega
borin fram vegna þess að ég hef
lengi tengst undirbúningi UMSB
fyrir landsmótin. Einnig vegna þess
að Ungmennasamband Borgar-
fjarðar hefur ætíð verið áberandi á
landsmótum UMFÍ. En þátttakan
á nýloknu Landsmóti UMFÍ var í
æpandi ósamræmi við fyrri mót.
Metnaður lagður í
undirbúning
Allt frá því að ég kynntist fyrst
starfi UMSB árið 1974 hefur ver-
ið lagt mikið kapp á góða þátttöku
á Landsmótum UMFÍ. Einnig að
hafa glæsilegar tjaldbúðir. Skipaðar
voru landsmótsnefndir fyrir hvert
mót sem unnu ötullega að undir-
búningi. Reynt var að fá keppend-
ur í sem flestar greinar mótsins. Oft
þurfti mikla vinnu og fortölur til að
ná þeirri þátttöku sem þótti æski-
leg. Margir brugðust við kallinu.
Komu ýmsir sjálfum sér og öðrum
á óvart með góðum árangri. Burt-
fluttir borgfirskir ungmennafélag-
ar sóttust eftir því að leggja fram
krafta sína á Landsmótinu og þar
myndaðist ætíð skemmtileg stemn-
ing. Hægt væri að nafngreina marga
sem komu að undirbúningi UMSB
fyrir Landsmót UMFÍ í áratugi og
unnu á mörgum mótum sjálfir, en
það verður ekki gert hér.
Árið 1997 sá Ungmennasam-
band Borgarfjarðar um 22. Lands-
mót UMFÍ í Borgarnesi. Mik-
il vinna var lögð í undirbúning og
mótið var UMSB til sóma. Fjöl-
margir lögðu á sig mikla sjálfboða-
vinnu. Voru það ekki einungis ung-
mennafélagar sem lögðu þar hönd
á plóginn. Fjöldi keppenda tók þátt
í mótinu fyrir hönd UMSB í hin-
um ýmsu greinum og margir unnu
til verðlauna. UMSB hlaut þriðja
sætið í heildar stigakeppni mótsins
á eftir Héraðssambandinu Skarp-
héðni og Kjalnesingum.
Íþróttaaðstaðan sem byggð var
upp kringum Landsmótið í Borgar-
nesi bauð upp á að þar yrðu haldin
glæsileg mót. Á næstu árum á eft-
ir Landsmótinu sá UMSB meðal
annars um Norðurlandsmót ung-
linga í frjálsum íþróttum, Aldurs-
flokkameistaramót Íslands í sundi
og Unglingalandsmót UMFÍ. Öll
þessi mót voru haldin með miklum
glæsibrag og starfsmenn frá UMSB
voru eftirsóttir við framkvæmd
hinna ýmsu móta á landsvísu.
Hver er staðan í dag?
Á undanförnum árum hefur hallað
verulega undan í starfi UMSB. Svo
virðist sem forusta UMSB hafi ekki
haft sama áhuga, þekkingu né dug
til að halda upp merki sambands-
ins líkt og fyrri forusta. Sem lagði
sig t.d. fram um að á Landsmót-
um UMFÍ væri fjölmennur hóp-
ur starfsmanna og keppenda. Það
krafðist mikillar vinnu og ósér-
hlífni. Nú hefur keyrt um þverbak.
Mörg afdrifarík mistök hafa verið
gerð. Eitt það alvarlegasta er vafa-
laust þegar lagðar voru niður starfs-
nefndir sambandsins. Í dag er ekki
til staðar hið sterka bakland öflugra
stuðningsmanna sem hægt var að
leita til og ávallt hægt að treysta á.
Að minnsta kosti virðist ekki áhugi
fyrir að leita til þessa hóps leng-
ur og nýir merkisberar virðast ekki
hafa komið í staðinn.
Áhugaleysi?
Landsmót UMFÍ 50+ fór fram í
Vík í Mýrdal 7. – 9. júní sl. Aldrei
heyrðist eitt einasta hvatningarorð
til þessa aldursflokks frá UMSB
fyrir mótið. Þar kepptu þrír félagar
í sundi og komu heim með átta gull
og þrenn silfurverðlaun í einstak-
lingsgreinum. Unnu einnig boð-
sundið (ásamt Skagfirðingi) með
miklum yfirburðum. Á það hef-
ur ekki verið minnst einu einasta
orði!
Rýr hlutur UMSB á
Landsmótinu á Selfossi?
Mér dauðbrá þegar ég frétti að
keppendur frá UMSB á mótinu
væru einungis fimm talsins og að
UMSB hefði lent í 17. sæti á mótinu.
Það var von að félagar okkar úr
öðrum landshlutum yrðu undrandi.
Hvað er stjórn UMSB eiginlega að
hugsa? Er enginn metnaður leng-
ur til að halda merki sambandsins
á lofti? Ekki er vitað til að skipuð
hafi verið undirbúningsnefnd fyrir
Landsmótið og hvatning var nánast
engin. Metnaður fyrir mótið virtist
lítill og lítið leitað eftir þátttöku hjá
okkar unga íþróttafólki sem halda
á uppi merki UMSB í framtíðinni.
Með þessu áhugaleysi geta forráða-
menn UMSB ekki vænst þess að
fá eftirleiðis verkefni hjá UMFÍ á
landsvísu.
UMSB á inneign!
Ég leyni því ekki að fyrir gamlan
félagsmálamann eins og mig er erf-
itt að horfa upp á að slíkt dugleysi
ríki innan gamla stórveldisins Ung-
mennasambands Borgarfjarðar. Það
„sýður“ hreinlega á okkur sem und-
anfarna áratugi höfum lagt á okk-
ur mikla vinnu til að halda uppi öfl-
ugu starfi hjá UMSB. En tími okk-
ar er liðinn. Forusta UMSB verður
að taka sig taki og „gera eitthvað“.
Það er ekki nóg að skipuleggja og
skrifa undir einhverja samninga.
Aðgerða er þörf. Nú er komið að
því að það unga fólk sem naut starfs
ungmennasambandsins áður fyrr
skili einhverju til baka. Skili til baka
þeirri miklu vinnu sem fjölmargir
lögðu á sig til að þið gætuð stund-
að ykkar áhugamál. Það er komið
að því að þið hefjið merki UMSB
á loft á ný eftir mögur ár. Á Ung-
mennasamband Borgarfjarðar ekki
eitthvað inni hjá ykkur?
Ingimundur Ingimundarson.
Í ljósi umfjöllun-
ar í Skessuhorni um
skipulagsmál í Borg-
arnesi undanfar-
ið langar mig að leggja orð í belg.
Borgarnes hefur margt umfram
aðra bæi hvað varðar fegurð.
Hefur þú ekið þjóðveginn í átt að
Borgarnesi um miðjan nótt og séð
kirkjuna rísa yfir byggðina í myrkr-
inu? Götuljósin eru slökkt, að-
eins kirkjan og fáar aðrar bygging-
ar eru upplýstar. Næturhimininn er
fallegur með sína litadýrð, sjórinn
kyrr og byggðin sem rís á klettun-
um speglast í honum. Í forgrunni
dökka birkikjarrið. Brúin teygir sig
í boga þvert yfir fjörðinn, byggð-
in í Borgarnesi stendur hafinn yfir
hann í öryggi og smeygir sig upp
og niður klettana, fylgir mishæð-
óttu landinu.
Eða hefur þú komið að Borgar-
nes að vetralagi, í myrkri yfir brúna
og séð götuljósin speglast í sjónum?
Langar ljóskeilurnar mynda ljósa-
spil í alls konar litabrigðum, aðal-
lega gul, rauð og appelsínugul, en
einnig græn. Alveg eins og rönd-
ótti veggurinn í menntaskólanum,
Hjálmakletti. Ég held að arkitekt
hússins hafi séð það! Þessi sýn eru
óvenju falleg. Óvíða er jafn falleg
aðkoma að bæ!
Þegar nær er komið að sunn-
an mætir manni nútíma verslunar-
svæði. Stór bílastæði við vöruhúsa-
skemmu og bensínstöðvar. Getur
þú nefnt bæ þar sem bensínstöðv-
ar og nútíma verslunarhúsnæði eru
ekki í jaðri byggðar? Hvernig er að-
koma Hafnarfjarðar, Selfoss, Blön-
dóss eða Akureyrar?
Ef ekið er að Borgarnesi að norð-
an mætir manni líka falleg sýn. Vel
viðhaldinn golfvöllur með miklum
trjágróðri, Hvíti bærinn hvítmál-
aður trónir yfir völlinn. Aspar trjá-
aröð sem er yfir kílómeters löng
fylgir manni inn í bæinn, alla leið
framhjá Borgarvognum og tjald-
svæðinu.
Þjóðvegur 1 liggur um Borg-
arnes sem er verslunarbær og lif-
ir af heimsóknum viðskiptamanna.
Verslun og þjónusta krefst mikils
rýmis og góðs aðgengis fyrir flutn-
ingabíla og viðskiptavini sem marg-
ir koma akandi langt að. Á sumrin
eru stórir bílar með allar tegund-
ir af aftanívögnum í eftirdragi. Öll
krefjast ökutækin orku og við þurf-
um að fá umferðina og viðskipta-
vinina í bæinn. Miðsvæði Borgar-
ness var nokkur ár í uppbyggingu.
Tvær bensínstöðvar við Brúartorg
hafa verið byggðar upp og búið er
að ganga frá vegköntum.
Sem betur fer er þessi nútíma
þjónusta staðsett í jaðri byggð-
ar Borgarness. Gamli miðbærinn,
hjarta staðarins, hefur sloppið við
niðurrif til þess að rýmka fyrir nýju
verslunarhúsnæði og bensínstöðv-
um. Margt hefði geta farið verr og
ýmislegt hefði mátt gera betur.
Í heildina séð tel ég samt að
Borgarnes sé vel sett hvað varðar
fegurð byggðar. Hér eru falin ótal
tækifæra í fallegri byggð og aðlað-
andi umhverfi. Það er brýnt að við
sem erum heimamenn opnum augu
okkar fyrir þessu og nýtum tæki-
færin. Við getum ekki gert ráð fyr-
ir að aðrir gerir það ef að við gerum
það ekki sjálf!
Ulla R. Pedersen, landslagsarkitekt
og heimamaður.
Einn af dagskrárliðum á Írskum
dögum sem fram fóru nýverið á
Akranesi, var söngkeppni barna í
risatjaldi við höfnina. Í myndatexta
féll niður nafn söngvarans sem
söng til sigurs. Hún heitir Isabella
Cabrita en hún söng lagið Hallelu-
jah með stæl. Beðist er velvirðingar
á þessu og myndin af Isabellu birt
aftur.
mm/ Ljósm. Guðmundur Bjarki
Halldórsson.
Söngtónleikar verða í Reykholts-
kirkju þriðjudaginn 23. júlí kl.
20.30. Fluttar verða kirkjulegar arí-
ur stórskáldanna og frönsk og ís-
lensk sönglög. Flytjendur eru þau
Hólmfríður Friðjónsdóttir sópr-
ansöngkona og Fabien Fonteneau,
sem spilar undir á orgel og píanó.
-fréttatilkynning
Pennagrein
Frá Landsmóti UMFÍ á Akureyri 1980.
Að loknu 27. landsmóti UMFÍ - Fallið stórveldi
Pennagrein
Fegurð Borgarness
Borgarnes. Ljósm. Áskell Þórisson.
Hólmfríður Friðjónsdóttir.
Söngtónleikar í
Reykholtskirkju
Söng til sigurs á
Írskum dögum