Skessuhorn - 02.10.2013, Blaðsíða 1
FRÉTTAVEITA VESTURLANDS – www.skessuhorn.is 40. tbl. 16. árg. 2. október 2013 - kr. 600 í lausasölu
HVAR OG HVENÆR
SEM ER
Með Arion appinu tekur þú stöðuna
með einum smelli og borgar reikningana,
hvar og hvenær sem er.
Þú færð appið á Arionbanki.is.
Skannaðu QR kóðann
og sæktu appið frítt
í símann þinn
H
V
ÍT
A
H
Ú
S
IÐ
/S
ÍA
–
1
3
-1
8
9
2
10 töflur
25%
afslát
tur
Tilbod vikunnar
Fersk ýsuflök med roði
990 kr/kg
BORGARNESI
LAGERSALA
Kalmansvöllum 1A
(Húsgagnaverslunin Bjarg)
SÍÐUSTU
DAGARNIR
70% AFSLÁTTUR
OG MEIRA AF
DÖMU OG
HERRAFATNAÐI
OPIÐ:
FIMMTUDAG 13-18
FÖSTUDAG 13-18
LAUGARDAG 11-15
Segja má að hugmyndin um stórt
sameinað sveitarfélag á sunnan-
verðu Vesturlandi, stundum kall-
að Akraborg manna á meðal, sem
sett var fram fyrir nokkrum árum,
hafi verið endurvakin á fundi bæj-
arstjórnar Akraness í síðustu viku.
Þar var samþykkt að Akraneskaup-
staður hefði forgöngu um að bjóða
þremur öðrum sveitarfélögum til
sameiningarviðræðna. Þetta eru
Hvalfjarðarsveit, Borgarbyggð og
Skorradalshreppur. Samanlagt yrði
um 11 þúsund manna sveitarfé-
lag að ræða. Frásögn af þessu, við-
brögð oddvita og fréttaskýring um
hvernig sveitarfélagið „Akraborg“
hugsanlega yrði ef af þessari sam-
einingu verður má lesa á bls. 24. og
25 í blaðinu í dag.
þá
Línu- og handfæraveiðum á mak-
ríl lauk 30. september síðastliðinn
eftir að þær höfðu verið framlengd-
ar í tvígang. Til línu- og handfæra-
veiða var 3.200 tonnum úthlutað
í fyrstu sem skipt var niður á tvö
tímabil. Þegar þær heimildir klár-
uðust voru veiðarnar gerðar frjálsar
fram til 20. september, sem svo var
framlengt um tíu daga til viðbótar.
Bátum hafði þó fækkað mjög áður
en veiðitímabilinu lauk og höfðu
margir snúið sér að hefðbundnum
veiðum og vinnslu. Í heildina voru
veiðarnar stundaðar á 98 bátum og
komu þeir með 4.655 tonn af mak-
ríl að landi yfir sumarið. Stór hluti
bátanna var gerður út frá Snæfells-
nesi í sumar og eru 37 af makríl-
bátunum skráðir á Vesturlandi.
Vinnslur á Snæfellsnesi og víð-
ar voru margar hverjar opnar í allt
sumar og er það m.a. makrílveiðun-
um að þakka. Þar hefur skólafólki
og fleirum boðist vinna, en greini-
legt er að veiðar og vinnsla á makríl
er mikil búbót.
sko
Makrílveiðar á línu- og handfæri hafa
mikla þýðingu fyrir Vesturland
Mikill fjöldi báta á makrílveiðum hefur verið gerður út frá Ólafsvík í sumar.
Tíu aflahæstu bátar á línu-
og handfæraveiðum:
1. Særif SH 180.626 kíló.
2. Brynja SH 176.450 kíló.
3. Ólafur HF 174.011 kíló.
4. Ísak AK 162.399 kíló.
5. Herja ST 155.796 kíló.
6. Fjóla GK 145.786 kíló.
7. Litli Hamar SH 138.740 kíló.
8. Siggi Bessa SH 133.743 kíló.
9. Addi afi GK 133.419 kíló.
10. Hlökk ST 131. 219 kíló
Sigurgeir Erlendsson, Geiri bakari
í Borgarnesi, er einnig frístunda-
bóndi ásamt fleirum á Kárastöð-
um. Ærin Dimma bar í vor þremur
myndarlegum lömbum. Saman fóru
þau svo á afrétt í sumar eins og ger-
ist og gengur. Þegar lömbin þrjú,
tvær gimbrar og hrútur, voru vikt-
uð um helgina kom í ljós að sam-
anlagður þungi þeirra var 140 kíló,
eða 46,7 kíló að meðaltali hvert
lamb á fæti. Án þess að framkvæmd
hafi verið vísindaleg úttekt á því er
ekki ósennilegt að um Íslandsmet
sé að ræða eftir eina á. Fallþungi
dilka er ríflega 40% af lífþunga og
því gæti Geiri átt von á hátt í 60
kílóum eftir Dimmu, tími hann að
slátra lömbunum. Dimma er í eigu
Arons Elí Magnússonar barnabarns
Geira. Dimma og afkvæmi hennar
verða til sýnis á Sauðamessu næsta
laugardag í Borgarnesi.
mm/Ljósm. sko.
Hugmyndin um
Akraborg
endurvakin
Rígvænir
dilkar
bakarans