Skessuhorn - 02.10.2013, Síða 8
8 MIÐVIKUDAGUR 2. OKTÓBER 2013
Leggja til að auk-
inn mjólkurkvóta
LANDIÐ: Stjórn Samtaka
afurðastöðva í mjólkuriðn-
aði ákvað á fundi sínum í lið-
inni viku að gera tillögu um
123 milljón lítra greiðslumark
í mjólk árið 2014. Gangi tillag-
an eftir, þýðir hún aukningu á
greiðslumarki um sjö milljónir
lítra frá yfirstandandi ári, meira
en dæmi eru um áður. Til-
laga um þessa miklu aukningu
er til komin vegna verulegrar
söluaukningar mjólkurafurða á
innanlandsmarkaði undanfar-
in misseri, sérstaklega á fitu-
ríkari afurðum. Landssamband
kúabænda segir þessa þróun á
neyslu mjólkurafurða afar já-
kvæða fyrir íslenska kúabændur
og feli í sér margvísleg tækifæri
fyrir greinina. Sjávarútvegs-
og landbúnaðarráðherra gefur
út reglugerð um greiðslumark
mjólkur á næstu vikum. Aukn-
ing greiðslumarksins hefur ekki
áhrif á umfang stuðnings hins
opinbera við búgreinina. –mm
Kostnaður á
grunnskólanem-
endur hækkar
LANDIÐ: Áætlaður rekstr-
arkostnaður á hvern nem-
anda í grunnskóla var að jafn-
aði 1.467.000 krónur í septem-
ber 2013. Á síðasta ári var þessi
kostnaður 1.411.587 krónur og
árið 2011 var hann 1.321.308
krónur. Þetta kemur fram á vef
Hagstofu Íslands, sem reiknar
meðal rekstrarkostnað á hvern
nemanda í grunnskólum lands-
ins á hverju ári. Útreikningur-
inn er byggður á ársreikning-
um sveitarfélaga fyrir liðið ár
að gefnu tilliti til verðlagsbreyt-
inga til þess dags sem útreikn-
ingurinn er gerður. –sko
Aflatölur fyrir
Vesturland
21. - 27. sept.
Tölur (í kílóum)
frá Fiskistofu:
Akranes 6 bátar.
Heildarlöndun: 11.784 kg.
Mestur afli: Ebbi AK: 8.007
kg í fjórum löndunum.
Arnarstapi 9 bátar.
Heildarlöndun: 42.759 kg.
Mestur afli: Tryggvi Eðvarðs
SH: 15.888 kg í þremur lönd-
unum.
Grundarfjörður 7 bátar.
Heildarlöndun: 260.458 kg.
Mestur afli: Hringur SH:
64.078 kg í einni löndun.
Ólafsvík 17 bátar.
Heildarlöndun: 113.866 kg.
Mestur afli: Kristinn SH:
33.425 kg í sex löndunum.
Rif 9 bátar.
Heildarlöndun: 80.118 kg.
Mestur afli: Lilja SH: 20.233
kg í sex löndunum.
Stykkishólmur 3 bátar.
Heildarlöndun: 9.333 kg.
Mestur afli: Kári SH: 5.184 kg
í þremur löndunum.
Topp fimm landanir
á tímabilinu:
1. Hringur SH – GRU:
64.078 kg. 25. sept.
2. Grundfirðingur SH –
GRU: 51.113 kg. 26. sept.
3. Helgi SH – GRU:
48.026 kg. 22. sept.
4. Sóley SH – GRU:
45.524 kg. 24. sept.
5. Farsæll SH – GRU:
40.769 kg. 23. sept.
mþh
Afli, aflaverð-
mæti og ráð-
stöfun afla
LANDIÐ: Út er komið rit-
ið Afli, aflaverðmæti og ráð-
stöfun afla 2012 í Hagtíðind-
um sem Hagstofan gefur út.
Þar kemur m.a. fram að árið
2012 var afli íslenskra skipa
tæp 1.449 þúsund tonn sem
er 300 þúsund tonnum meiri
afli en árið 2011. Aflaverð-
mæti árið 2012 nam rúm-
um 159 milljörðum króna
á verðlagi ársins og hækk-
aði um tæplega 5,5 millj-
arða króna frá 2011 (3,5%).
Á föstu verðlagi miðað við
verðvísitölu sjávarafurða var
aflaverðmæti 3,4% lægra en
árið á undan. Stærsti hluti
afla íslenskra fiskiskipa var
unninn á Austurlandi, mest
uppsjávarafli sem verkaður
var þar. Stærsti hluti botn-
fisksaflans var unninn á höf-
uðborgarsvæðinu og á Suð-
urnesjum (48,9%). Hlutur
uppsjávarafla var um 68,4%
af aflamagninu en 29,4%
af verðmæti landaðs afla.
Verðmæti botnfiskstegunda
var hins vegar tæp 60,6%
af heildarverðmæti en að
magni aðeins 28,6%. Verð-
mæti aukaafurða sem féllu
til við vinnslu fiskaflans nam
4,5 milljörðum króna á árinu
2012 og jókst um 21,8% frá
árinu áður. Verðmæti auka-
afurða telst þó ekki ennþá
inni í heildaraflaverðmæti.
–mm
Segja upp
samningi við
Mostra
STYKKISH: Samþykkt var
á fundi bæjarstjórnar Stykkis-
hólms í síðustu viku að segja
upp samningi við Golfklúbb-
inn Mostra um rekstur upp-
lýsingamiðstöðvar. Mostri
hefur starfrækt upplýsinga-
miðstöðina síðustu sumur.
Uppsagnartími samningsins
er á tímabilinu 1. september
til 15. október á ári hverju og
nýtti bæjarstjórn það ákvæði.
Bæjarstjórn samþykkti einn-
ig ákvörðun bæjarráðs á dög-
unum, þar sem samþykkt var
að í vetur mun fara fram end-
urskoðun á starfsemi upplýs-
ingamiðstöðvar í Stykkis-
hólmi, með það að markmiði
að skoða mögulegar leiðir til
að hafa upplýsingamiðstöð
starfandi allt árið um kring.
–þá
Minna atvinnu-
leysi kvenna
LANDIÐ: Samkvæmt
Vinnumarkaðsrannsókn
Hagstofu Íslands voru í ágúst
2013 að jafnaði 188.300
manns á vinnumarkaði. Þar
af voru 180.000 starfandi og
8.300 án vinnu og í atvinnu-
leit. Þetta kemur fram á vef
Hagstofu Íslands. Atvinnu-
leysi var 4,4% og hefur það
minnkað um 1,3 prósentu-
stig frá ágúst 2012. Meðal
karla var atvinnuleysi í ágúst
síðastliðnum 4,6% mið-
að við 4,9% í ágúst 2012 og
meðal kvenna var það 4,2%
miðað við 6,7% í ágúst 2012.
Atvinnuþátttaka mældist
82,9% og hlutfall starfandi
79,3%.
–sko
Þessa dagana standa yfir flutn-
ingar á bókasafni Grundarfjarð-
ar yfir í upplýsingamiðstöð bæjar-
ins sem áður hýsti Sögumiðstöðina.
Sunna Njálsdóttir forstöðumað-
ur bókasafnsins stendur í ströngu
við flutningana en hún hefur feng-
ið vaska félaga úr Nemendafélagi
Fjölbrautaskóla Snæfellinga til liðs
við sig við mesta bókaburðinn. Að-
spurð segir Sunna að þessu miði
vel áfram og stefnir hún á að opna
bókasafnið fimmtudaginn 3. októ-
ber næstkomandi. Í viðtali sem ný-
verið birtist hér í Skessuhorni við
Sunnu kom fram að einungis hluti
safnkostsins muni verða aðgengi-
legur á nýja staðnum, enda rýmið
minna. Hluti bókanna á safninu fer
því til geymslu. tfk
Síðastliðinn miðvikudagsmorgun
afhenti Gísli V. Halldórsson í Borg-
arnesi MS-félaginu 434.646 krónur
sem söfnuðust í afmælishófi í til-
efni 70 ára afmælis hans sem haldið
var í Hjálmakletti 19. september sl.
Berglind Guðmundsdóttir formað-
ur MS-félagsins tók við hinni höfð-
inglegu gjöf fyrir hönd félagsins.
Gísli afhenti félaginu þó ekki ein-
göngu peningagjöf heldur einnig
forláta söfnunarbauk til eignar sem
hann hafði látið hanna og smíða af
tilefninu. Málefni MS-félagsins eru
Gísla einkar hugleikin en tengda-
sonur hans, mágur og hans sonur
eru allir með MS-sjúkdóminn.
Gísli var ákveðinn í að afþakka
allar afmælisgjafir og við undir-
búning fjölskyldunnar fyrir afmæl-
ið kom upp sú hugmynd að gera
einhvern grip eða söfnunarbauk
sem hafa mætti frammi í afmælinu.
Fékk Gísli Hlyn Ólafsson, tengda-
son sinn sem er í námi í bygginga-
fræði, til að hanna og gera teikningu
að veglegum söfnunarbauk. Síðan
fékk hann Borgfirðingana Ingólf
Eiríksson til að smíða gripinn eft-
ir teikningunni, Pétur Jónsson til
að sprauta hann og Björk Jóhanns-
dóttur til að skreyta. Öll gáfu þau
vinnu sína af miklu örlæti. Óhætt er
að segja að útkoma samvinnu allra
þeirra sem að komu er virkilega fal-
legur söfnunarbaukur sem heldur
betur stendur fyrir sínu.
„MS-félagið óskar Gísla V. Hall-
dórssyni til hamingju með stóraf-
mælið og þakkar honum, fjölskyldu
hans og vinum, kærlega fyrir hug
þeirra í verki til félagsins.“
mm
Orkuveita Reykjavíkur hyggst á
næstu árum greiða skuldir fyrirtæk-
isins niður um 80,3 milljarða króna
samkvæmt fjárhags-
áætlun sem sam-
þykkt hefur verið í
stjórn fyrirtækisins.
Í fjárhagsáætlun fyr-
ir árið 2014 og lang-
tímaáætlun fyrir
árin 2015 til og með
2019 er áhersla lögð
á áframhaldandi að-
hald í rekstrinum
meðan staðinn er
vörður um grunn-
þjónustu fyrirtæk-
isins. Áætlunin er í
samræmi við „Plan“
OR og eigenda frá
árinu 2011. „Sparnaður í rekstri
Orkuveitunnar hefur skilað góð-
um árangri undanfarin ár og telja
stjórnendur fyrirtækisins að nú-
verandi umfang henti viðfangsefn-
um þess. Orkuveitan rekur vatns-
veitur, hitaveitur, rafmagnsveitur
og fráveitur í um 20 sveitarfélögum
auk þess að framleiða orku í fjór-
um virkjunum. Fyrirhugaðar fjár-
festingar á næstu árum eru einkum
í veitukerfum en líka í umhverfis-
verkefnum við virkjanirnar tvær á
Hengilssvæðinu.
Eins og ákveðið var með Plan-
inu vorið 2011 er gert ráð fyrir að
gjaldskrár Orkuveit-
unnar fylgi verð-
lagi. Á árunum 2005
til 2010 rýrnuðu
gjaldskrár fyrir raf-
magn og heitt vatn
um u.þ.b. þriðjung.
Aðrar forsendur
fjárhagsáætlunar eru
í samræmi við þjóð-
hagsspá. Ljóst er að
þróun ytri þátta, svo
sem gengis, vaxta og
álverðs, getur rask-
að þeim áformum
sem í þeim birtast.
Þung skuldabyrði í
erlendum gjaldmiðlum gerir fyr-
irtækið viðkvæmara fyrir sveiflum
þessara þátta, jafnvel þótt brugðist
sé við með áhættuvörnum,“ segir í
tilkynningu frá OR. mm
Orkuveitan leggur áherslu á
lækkun skulda út þennan áratug
Bókasafnið í Grundarfirði
flutt í upplýsingamiðstöðina
Baukurinn góði sem var hluti
gjafarinnar og er samstarfsverkefni
nokkurra Borgfirðinga eins og fram
kemur í fréttinni.
Gísli færði MS félaginu
höfðinglega gjöf
Með Gísla í för við afhendingu gjafarinnar voru Guðrún Birna Haraldsdóttir
eiginkona hans, dóttir þeirra Sigrún Halla Gísladóttir, tengdasonurinn Ronny
Mathiasen og barnabarnið Sebastian Gísli. Berglind Guðmundsdóttir formaður
MS félagsins er einnig á myndinni.