Skessuhorn - 02.10.2013, Page 10
10 MIÐVIKUDAGUR 2. OKTÓBER 2013
Framkvæmdastjóri
Þörungaverksmiðjan hf. á Reykhólum framleiðir
þang- og þaramjöl í háum gæðaflokki. Sérstaða
fyrirtækisins er lífræn vottun framleiðslunnar
og öflun hráefnisins miðar að sjálfbærni nátt-
úrunnar. Fyrirtækið er að stærstum hluta í eigu
FMC BioPolymer (71%) og Byggðastofnunar
(28%). Ársverk hjá fyrirtækinu s.l. ár voru 16 auk
starfa verktaka við þangslátt. Áætluð ársvelta
er 400 milljónir kr. Afurðirnar eru að langmestu
leyti fluttar út og m.a. nýttar til framleiðslu
alginats, fóðurbætis, áburðar og snyrtivara.
Rekstur Þörungaverksmiðjunnar hf. hefur
gengið vel s.l. ár og er fyrirhugað að efla hann
enn frekar á komandi árum. Rík áhersla er lögð
á öryggismál og velferð starfsmanna.
Á Reykhólum er mikil náttúrufegurð og þar m.a.
starfræktur gunnskóli, leikskóli, sundlaug og
bókasafn. Nánar á www.thorverk.is
Helstu verkefni
• Dagleg framkvæmdastjórn með áherslu á
öryggi og ábyrgð í rekstri, fjármál, markaðs- og
sölumál, starfsmannastjórnun, vöruþróun og
dreifingu
• Setning markmiða og stefnumótun til
framtíðar í samvinnu við stjórn fyrirtækisins
• Áhersla er lögð á að viðhalda góðum tengslum
við eigendur fyrirtækisins, viðskiptavini og
samfélagið
Menntunar- og hæfniskröfur
• Háskólamenntun á sviði stjórnunar, viðskipta-, verk-
eða tæknifræði – eða sambærileg menntun
• Reynsla af stjórnun í framleiðslufyrirtæki
• Reynsla af öryggis- og gæðamálum
• Áhersla er lögð á að viðkomandi hafi góða kunnáttu í
ritaðri og talaðri ensku og íslensku
• Viðkomandi þarf að vera framsækinn og sjálfstæður,
sýna frumkvæði og hafa áræði til að takast á við
krefjandi stjórnunarstarf hjá traustu og vel reknu
fyrirtæki
Stjórn Þörungaverksmiðjunnar hf. á Reykhólum óskar eftir að ráða
framkvæmdastjóra til að takast á við krefjandi stjórnunarstarf í alþjóðlegu umhverfi Nánari upplýsingar um starfið veita Ari Eyberg (ari@intellecta.is) og Helga Rún Runólfsdóttir (helga@intellecta.is) í síma 511 1225.
Umsóknarfrestur er til og með 6. október n.k. Umsókn óskast fyllt út á www.intellecta.is. Farið verður með allar umsóknir og
fyrirspurnir sem trúnaðarmál og þeim svarað. Umsókn um starfið þarf að fylgja ítarleg starfsferilsskrá og kynningarbréf.
ráðgjöf ráðningar rannsóknir
Intellecta, Síðumúla 5, 108 Reykjavík, sími 511 1225
Í boði er áhugavert og krefjandi starf í fallegu umhverfi Reykhóla, með góðum kjörum og húsnæði.
Í sumar hafa staðið yfir fram-
kvæmdir við heimavirkjun á Leirár-
görðum í Hvalfjarðarsveit, svokall-
aða Bugavirkjun. Bændur á Eystri-
og Vestri-Leirárgörðum hafa lengi
horft til hagkvæmni þess að koma
upp virkjun og rafstöð við Buga-
læk. Áætlað er að umrædd virkjun
skili allt að 40 kílóvöttum raforku.
Bugavirkjun ehf. er félag tveggja
lögbýla og fjögurra bænda á Leir-
árgörðum, þar sem Magnús Hann-
esson bóndi á Eystri-Leirárgörð-
um er framkvæmdastjóri og Mar-
teinn Njálsson á Vestri-Leirár-
görðum stjórnarformaður. Áætl-
að er að framkvæmdum við stíflu-
gerð og inntaksmarkvirki verði lok-
ið í byrjun vetrar, en von er á túrb-
ínunni í desembermánuði. Magnús
á Eystri-Leirárgörðum segist ekki
geta sagt til um hvenær raforku-
framleiðsla hefjist.
Búið er að steypa stífluna fyr-
ir virkjunina og uppsteypa veggjar
til hliðar við stífluna sem ramma á
af miðlunarlónið eru komnar vel á
veg. Sá veggur er 36 metra lang-
ur og að jafnaði fimm metra hár.
Að sögn Magnúsar bónda reyndist
hann nauðsynlegur sökum þess að
jarðvegurinn á þessu svæði er möl
og því ekki nógu þéttur til að halda
vatninu í lóninu. Þá er lagnaefni í
virkjunina komið og bíður þess að
verða komið fyrir í haust í farveg-
inum frá stíflunni niður að Leirá.
Nokkuð var fjallað um Bugavirkj-
un á síðasta vetri sökum kæru-
mála nágranna hinum megin Leir-
ár, Leirárskógar ehf, sem eiga þó
ekki land að Bugalæk. Í lok síðasta
árs var sett lögbann á framkvæmd-
ir. Í byrjun árs gaf síðan Orkustofn-
un út nýtt leyfi fyrir vatnsmiðlun
í virkjunina. Í framhaldi af því gaf
umhverfis-, skipulags- og náttúru-
verndarnefnd Hvalfjarðarsveitar út
nýtt framkvæmdaleyfi og var það í
sjötta sinn sem nefndin samþykkti
leyfi fyrir virkjun til bænda á Leir-
árgörðum, en að virkja Bugalækinn
hefur reynst þeim ansi torsótt.
Miðlunar- og inntakslón fyr-
irhugaðrar Bugavirkjunar verður
allt að einum og hálfum hektara af
flatarmáli. Í greinargerð með leyfi
Orkustofnunar segir að fyrir liggi
að landeigendur og hagsmunaaðil-
ar í Veiðifélagi Leirár hafi ekki lagst
gegn umræddri framkvæmd, aðr-
ir en Leirárskógar ehf. Veiðifélag-
ið áskilji sér þó rétt til skaðabóta,
ef reynslan af rekstri Bugavirkjunar
sýnir fram á tjón á Leirá hvað varð-
ar fiskgengd og veiði.
þá
Nafn: Inga Jóhanna Kristins-
dóttir.
Starfsheiti/fyrirtæki: Forstöðu-
maður á Dvalar- og hjúkrunar-
heimilinu Jaðri í Ólafsvík.
Fjölskylduhagir/búseta: Bý í
Ólafsvík, er gift og á fjögur börn
og sjö barnabörn.
Áhugamál: Fjölskyldan, útivera
og ferðalög.
Vinnudagurinn: Miðvikudagur-
inn 25. september 2013.
Mætt til vinnu og fyrstu verk?
Mæti í vinnuna klukkan 8, hress
og endurnærð enda hófst morg-
uninn í ræktinni kl. 6! Býð sam-
starfskonum mínum góðan dag
og næturvaktinni góðan svefn.
Síðan fer ég með starfsfólkinu í
okkar daglega „rappport,“ þ.e.a.s.
farið yfir stöðumat hjá öllu heim-
ilisfólki sl. sólarhringinn.
Klukkan 10: Þá var ég að ganga
frá ráðningu tveggja nýrra starfs-
manna.
Hádegið: Spjallaði við vistfólk,
snæddi hádegismat með starfs-
stúlkum og fór síðan í apótekið
að sækja lyf.
Klukkan 14: Yfirfór og sam-
þykkti reikninga, svaraði tölvu-
póstum og undirbjó starfs-
mannafund sem ég var með dag-
inn eftir.
Hvenær hætt og síðasta verk í
vinnunni? Var til klukkan 16. Þá
þakkaði ég heimilisfólki og starfs-
mönnum fyrir daginn.
Fastir liðir alla daga: Rapport-
tímar á morgnana, svara tölvu-
póstum, fer yfir vinnuplan, rabba
við heimilisfólk og ýmislegt fleira
enda viðfangsefnin fjölbreytt
flesta daga.
Hvað stendur upp úr eft-
ir vinnudaginn? Alltaf gam-
an að ráða nýtt starfsfólk og end-
urskipuleggja vinnuplanið út frá
því.
Var dagurinn hefðbundinn? Já
og nei! Þetta var mjög fjölbreytt-
ur og skemmtilegur starfsdagur í
vinnunni.
Hvenær byrjaðir þú í þessu
starfi? Ég byrjaði árið 2002.
Er þetta framtíðarstarfið þitt?
Ég vona að mér verði treyst
áfram til að gegna þessu starfi.
Hef fullan áhuga á að sinna þessu
starfi áfram.
Hlakkar þú til að mæta í vinn-
una? Já, yfirleitt.
Eitthvað að lokum? Er mjög
heppin með að fá að starfa með
svona duglegu og skemmtilegu
fólki og umgangast allt þetta
yndislega heimilisfólk sem hér
býr. Jaðar er góður vinnustaður.
Dag ur í lífi...
Forstöðumanns dvalarheimilis
Virkjunarframkvæmdir komnar
á fullt við Bugalæk
Bugalækur er ekki stórfljót en mun
nýtast vel til framleiðslu raforku.
Stífla- og virkjunarstæði við Bugalæk.
Unnið að fráslætti á steyptum vegg til hliðar við stífluna sem rammar af lónið.