Skessuhorn - 02.10.2013, Blaðsíða 11
11MIÐVIKUDAGUR 2. OKTÓBER 2013
Grunnskóli Grundarfjarðar
Laus er staða íþróttakennara við Grunnskóla Grundarfjarðar
Um er að ræða 70% starf
Umsóknarfrestur er til 15. október
Nánari upplýsingar gefur
Anna Bergsdóttir, skólastjóri í síma 430 8555
GRUNDARFJARÐARBÆR
S
K
E
S
S
U
H
O
R
N
2
01
3
Tveir nýir blaðamenn hafa verið
ráðnir til starfa á ritstjórn Skessu-
horns. Þetta eru þau Guðný Ruth
Þorfinnsdóttir viðskiptafræðingur
og Magnús Þór Hafsteinsson rit-
höfundur en hann starfaði um ára-
bil við blaðamennsku í Noregi og
sat auk þess eitt kjörtímabil á Al-
þingi. Heiðar Lind Hansson blaða-
maður er nú í 6 vikna námsfríi en
kemur aftur til starfa um miðj-
an nóvember. Samúel Karl Ólason
hefur nú látið af störfum á ritstjórn
en hann er byrjaður sem blaðamað-
ur á Fréttablaðinu. Samúel Karli er
þakkað góð störf og nýtt starfsfólk
boðið velkomið.
mm
Síðastliðinn föstudag var skrif-
að undir samning milli Hval-
fjarðarsveitar og Þjótanda ehf
um lagningu ljósleiðara um
sveitarfélagið. Verkfræðistofan
Efla yfirfór tilboðin sem bár-
ust og reyndust þau öll upp-
fylla skilyrði og skilmála sem
sett voru fram í útboðinu. Við
opnun tilboða fyrir um mán-
uði síðan reyndist Þjótandi ehf
vera lægstbjóðandi í verkið.
Hafist verður handa við lagn-
ingu og blástur ljósleiðarans
í þessari viku en verkinu á að
vera lokið 15. júní á næsta ári.
Að sögn Laufeyjar Jóhanns-
dóttur sveitarstjóra var tilboð í
lagningu og blástur ljósleiðar-
ans upp á 197 milljónir króna
og efniskaup þar að auki fyrir
75 milljónir. Heildarkostnaður
við að tengja alla bæi í sveitar-
félaginu, þar sem föst búseta er,
verður því 272 milljónir króna.
„Þetta bætir búsetuskilyrði hér
gríðarlega. Raunar svo mikið
að hægt er að bera saman dag
og nótt í því sambandi,“ seg-
ir Laufey sveitarstjóri í samtali
við Skessuhorn. Hún segir að
þrátt fyrir að Hvalfjarðarsveit
sé vel í stakk búin til að ráðast í
svo kostnaðarsama framkvæmd,
sé það hennar skoðun að ríkið
verði að koma að því að styðja
við landsbyggðina til að lands-
menn allir eigi sama kost á að
búa við viðunandi búsetuskil-
yrði í fjarskiptamálum. mm
Guðný Ruth Þorfinnsdóttir og Magnús Þór Hafsteinsson blaðamenn.
Nýir blaðamenn á Skessuhorn
Myndin er tekin við undirritunina og eru það
Ólafur Einarsson fyrir hönd Þjótanda ehf og Laufey
Jóhannsdóttir sveitarstjóri fyrir hönd Hvalfjarðar-
sveitar sem skrifa undir samningana. Sigurður
Sverrir Jónsson oddviti og Gunnar Bachmann frá
verkfræðistofunni Eflu vottuðu samningana.
Skrifað undir samning um
lagningu ljósleiðarans