Skessuhorn - 02.10.2013, Síða 12
12 MIÐVIKUDAGUR 2. OKTÓBER 2013
Regína Ásvaldsdóttir bæjarstjóri
Akraneskaupstaðar og Ágúst Sig-
urðsson rektor Landbúnaðarhá-
skólans á Hvanneyri undirrituðu
samstarfssamning á föstudaginn.
Samkomulagið felur í sér samstarf
um afmörkuð verkefni sem um-
hverfisskipulagsbraut LBHÍ vinn-
ur að í tengslum við Akranes. Hlut-
verk Akraneskaupstaðar er að verða
innan handar í upplýsingagjöf
ásamt því að kynna fyrir starfsfólki
og nemendum umhverfi og skipu-
lag á Akranesi. Nemendur deild-
arinnar munu síðan kynna niður-
stöður hvers verkefnis í samstarfi
við kaupstaðinn. Frá árinu 2004
hafa ellefu Akurnesingar lokið BS
námi af þessari braut skólans og
átta nemendur unnið BS – verkefni
sín með Akranes sem viðfangsefni.
„Það er kjörið að nýta þessi tengsl
til að styrkja tengsl fræða og fram-
kvæmda,“ sagði Helena Guttorms-
dóttir námsbrautarstjóri umhverf-
isdeildar við undirritun samnings-
ins á föstudasginn. grþ
Blaðamaður Skessuhorns kíkti
í heimsókn á Holtsflöt 9, nýja
íbúðakjarna fatlaða á Akranesi,
en þar búa tíu einstaklingar í mis-
stórum íbúum á neðstu hæðum
blokkarinnar. Þá er einnig félags-
og starfsmannaaðstaða í sérstakri
íbúð í blokkinni. Það voru glað-
ir íbúar sem tóku á móti blaða-
manni en þeir voru reyndar ný-
komnir heim úr vinnunni í Fjöl-
iðjunni. Meðal þeirra var Sindri
Víðir Einarsson sem búið hefur
á Akranesi í nokkur ár, en er úr
Reykhólasveitinni. „Það er frá-
bært að vera kominn hingað. Ég
leigði áður hjá frænda mínum á
Einigrund 8. Hérna er miklu
þægilegra að hitta vini mína og
kunningja. Það er meira að gera
hérna og meiri félagsskapur. Ég
vildi reyndar fá meira kaup í
vinnunni, vantar meiri peninga,
enda er ég í hljómsveit sem heitir
Rósin og svo er ég líka sundmað-
ur. Já, það er pottþétt að það er
gott að búa hérna,“ sagði Sindri
Víðir.
Meiri vinna
og félagsskapur
Eva Dögg Héðinsdóttir kom á
Holtsflötina frá Borgarnesi, en
hún hefur í nokkur ár beðið eft-
ir því að komast á Akranes þar
sem foreldrar hennar búa. „Ég er
mjög ánægð með að vera komin
á Akranes, þótt ég sé ennþá pínu
með hugann í Borgarnesi. Ég er
ánægðust með að vera komin ná-
lægt pabba og mömmu og það er
ekki verra að pabbi er við næt-
urvörsluna í næstu íbúð. Hérna
hef ég líka meiri félagsskap en
ég hafði í Borgarnesi. Það er líka
meiri vinna hérna en þar. Þar vann
ég tvo tíma á morgnana. Núna get
ég slappað af fram á daginn. Mæti
í Fjöliðjuna klukkan tólf og þá
byrjum við á því að borða. Vinnan
byrjar svo klukkan eitt og ég vinn
til fjögur. Þetta er mjög gott og ég
er mjög ánægð með íbúðina,“ seg-
ir Eva Dögg og sýnir blaðamanni
sína íbúð, en íbúðirnar á Holts-
flötinni eru mjög vistlegar. þá
Bæjarstjórn Stykkishólms sam-
þykkti á fundi sínum sl. fimmtu-
dag áskorun til Kristjáns Þórs Júlí-
ussonar heilbrigðisráðherra að
tryggja að fyrirhuguðum fram-
kvæmdum við húsnæði Heilbrigð-
isstofnunar Vesturlands í Stykk-
ishólmi verði fram haldið eins og
áætlanir gerðu ráð fyrir. Forsendur
framkvæmdanna er m.a. að öldr-
unarþjónusta í bænum verði færð
á einn stað. Í bókun bæjarstjórnar
segir að ljóst sé að mikil rekstrar-
hagræðing felist í þeirri aðgerð og
auk þess muni hún styðja við aðra
starfsemi HVE í Stykkishólmi.
„Mikilvægt er að áætlaðir fjármun-
ir til verksins verði sóttir í gegn-
um fjáraukalög fyrir árið 2013 og
þeim framkvæmdum sem hafnar
eru í húsnæðinu verði lokið. Einn-
ig skorar bæjarstjórn á ráðherra
að sjá til þess að háls- og bakdeild
sjúkrahússins verði efld til fram-
tíðar með því að bæta við lækni
og sjúkraþjálfara þannig að deild-
in verði nýtt til fulls öllum lands-
mönnum til hagsbóta,“ segir í bók-
un bæjarstjórnar.
þá
Töluverðar breytingar eiga sér
nú stað í búsetumálum fatlaðra á
Akranesi og jafnframt á búsetu-
þjónustunni. Enn frekari breytingar
eru síðan áætlaðar á næsta ári þeg-
ar sambýlinu við Vesturgötu verður
lokað, en áður en það gerist verð-
ur búið að útvega þeim íbúum sem
þar búa búsetu og þjónustu í sam-
ræmi við þeirra þarfir. Blaðamaður
Skessuhorns spjallaði við þær Helgu
Gunnarsdóttur framkvæmdastjóra
fjölskyldusviðs Akraneskaupstað-
ar og Sveinborgu Kristjánsdótt-
ur félagsmálastjóra. Þær eru sann-
færðar um að það náist sem að er
stefnt, að breytingarnar muni auka
lífsgæði fatlaðra, skapa þeim meira
öryggi og efla félagslega. Á Akra-
nesi eins og reyndar í byggðakjörn-
um víðar um landið hefur þjónusta
við fatlaða byggst upp síðustu ára-
tugina. Á Akranesi eru starfandi tvö
sambýli og einnig hafa nokkrir fatl-
aðir einstaklingar búið í íbúðum
víða um bæinn, en notið búsetu-
þjónustunnar. Fjöliðjan og önnur
þjónusta hefur byggst upp í takt við
fjölgun þjónustuþega málaflokks-
ins sem fyrir rúmum tveimur árum
fluttist frá ríki til sveitarfélaganna á
Vesturlandi.
Aukin þörf fyrir
einkarými
Búsetumál fatlaðra taka breyting-
um eins og margir aðrir málaflokk-
ar í þjóðfélaginu. Það er ekki aðeins
að lög og reglugerðir kveði á um að
fólk með fötlun geti sjálft valið sér
búsetu, heldur á það einnig rétt á
meira einkarými en áður var. Þann-
ig uppfylla mörg sambýli í landinu
ekki þær kröfur sem gerðar eru um
rétt til einkarýmis. Það er ástæð-
an fyrir því að stefnt er að því að
loka sambýlinu við Vesturgötu á
næsta ári. „Það hefur legið fyrir að
húsnæði sambýlisins er ekki í takt
við kröfur dagsins í dag og þeg-
ar tækifæri bauðst að leigja íbúðir
á Holtsflötinni þá var að hrökkva
eða stökkva,“ segir Helga Gunnars-
dóttir á fjölskyldusviði Akraneskap-
staðar. Nýtt úrræði í búsetumál-
um fatlaðra á Akranesi er íbúða- og
þjónustukjarni í nýjasta fjölbýlis-
húsinu á Akranesi, Holtsflöt 9, þar
sem fyrstu íbúarnir fluttu inn fyrir
um mánuði. Þar munu búa í eigin
íbúðum tíu einstaklingar með fötl-
un, sem flestir hafa fram að þessu
búið víðsvegar um bæinn. Ein íbúð
í þessum þjónustukjarna er fyr-
ir starfsmenn búsetuþjónustunnar,
sem og félagsaðstaða fyrir íbúana.
Aðstaðan býður einnig upp á að
einstaklingar geta tímabundið dval-
ið í íbúðinni ef veikindi eða ófyrir-
séðar aðstæður skapast.
Aukið öryggi
í þjónustunni
Þær Helga og Sveinborg segja að
búsetuformið til þessa, það er að
einstaklingarnir búi hingað og
þangað í bænum, hafi verið óhent-
ugt með tilliti til þess takmarkaða
fjármagns sem til ráðstöfunar er í
búsetuþjónustunni og þjónustu-
þarfar. Það hafi gert það að verk-
um að ekki hafi verið unnt að veita
nokkrum einstaklingum í þessum
hópi eins mikla þjónustu og æski-
legt væri, það er allt að sólarhrings-
þjónustu. Ótvíræður kostur við
nýja búsetuúrræðið, þar sem all-
ir búa á sama stað, sé að þjónustan
verði betri og eintaklingarnir búi
við meiri öryggi en áður. Starfsfólk
verður til staðar allan sólarhringinn
og fjöldi starfsmanna mismunandi
eftir tímum dagsins.
Þjónustan flyst með
Í samtalinu við þær Helgu og Svein-
borgu kom fram að þjónusta við
fatlaða hafi verið að þróast og sem
betur fer fagmennskan í þjónust-
unni að sama skapi. Þar eru þroska-
þjálfar í lykilhlutverkum. Aðspurð-
ar um hvernig að lokun sambýlisins
við Vesturgötu yrði staðið, sögðu
þær að það væri unnið í samráði við
íbúana eða aðstandendur þeirra.
Einhver pláss væri til að mynda að
losna í sambýlinu við Laugabraut
vegna nýju íbúðanna á Holtsflöt.
Sambýlinu við Vesturgötu verði
ekki lokað fyrr en búið verður að
útvega íbúunum búsetu sem sam-
rýmist þeirra þörfum. Gert er ráð
fyrir að allir starfsmenn sambýlisins
á Vesturgötu haldi áfram störfum í
þágu íbúanna sem og í búsetuþjón-
ustunni. „Augljóslega verða tals-
verðar breytingar bæði fyrir íbúa
og starfsfólk en hugur er í starfs-
fólkinu og þá eru allir vegir færir,“
segja þær Helga og Sveinborg.
þá
Hópurinn sem kemur að samstarfinu.
Akraneskaupstaður og Landbúnaðar-
háskólinn á Hvanneyri í samstarf
Eva Dögg Héðinsdóttir.
Ánægð með nýju íbúðirnar
Sindri Víðir Einarsson.
Sveinborg Kristjánsdóttir félagsmálastjóri og Helga Gunnarsdóttir hjá fjöl-
skyldusviði Akraneskaupstaðar.
Breytingar í búsetumálum
fatlaðra á Akranesi
Húsnæði HVE í Stykkishólmi, St. Fransiskusspítli. Ljósm. Þorkell Þorkelsson.
Áskorun til ráðherra
vegna framkvæmda