Skessuhorn


Skessuhorn - 02.10.2013, Side 14

Skessuhorn - 02.10.2013, Side 14
14 MIÐVIKUDAGUR 2. OKTÓBER 2013 Vitinn, félag áhugaljósmyndara á Akranesi, flutti á dögunum í nýtt húsnæði við Suðurgötu en það er í eigu Akraneskaupstaðar. Húsnæð- ið fékkst í raun í skiptum fyrir vita- gæslu en Hilmar Sigvaldason, for- maður Vitans, hefur undanfarin tvö ár ásamt fleiri félögum sínum sinnt því hlutverki að taka á móti ferða- mönnum og sýna vitann á Breið. Þrjú ár eru síðan félagið var stofn- að en þetta er í fyrsta sinn sem það hefur fast húsnæði fyrir starfsemi sína. Hópurinn fer stækkandi en um sextíu virkir félagar eru skráðir. „Það var ótrúlegt hvað félagið hef- ur verið fljótt að vaxa. Það kom mér og fleirum á óvart hversu marg- ir stunda áhugaljósmyndun hér á svæðinu,“ segir Hilmar í samtali við blaðamann Skessuhorns. Stefnt er að því að hafa nýliða- fund í félaginu fljótlega en hægt er að skoða upplýsingar um Vitann og skrá sig í félagið á heimasíðu þess; www.vitinn.net. „Þetta er mikil breyting til hins betra að vera kom- in í fast húsnæði með þægilegra að- gengi fyrir félagsmenn. Húsnæðið býður upp á margt, svo sem fyrir- lestra og hægt er að funda hvenær sem er,“ segir Hilmar. Nú bætist við möguleikinn að halda námskeið og kynningar en stefnan hjá Vitanum er að fara í skólana og bjóða nem- endum upp á námskeið eða kennslu í ljósmyndun. Framundan hjá Vitanum er að halda ljósmyndasýningu á Vöku- dögum ásamt því að gefa mynd- ir í dagatal. „Við erum búnir að gefa myndir í dagatal Lionsklúbbs- ins Eðnu síðastliðin tvö ár og það verður framhald á því. Þetta eru árstíðabundnar myndir héðan úr umhverfinu,“ segir Hilmar Sig- valdason. grþ Samtök atvinnulífsins og Há- skólinn á Bifröst stofnuðu form- lega sl. föstudag Rannsóknastofn- un atvinnulífsins - Bifröst. Á veg- um hennar verður unnið að marg- víslegum rannsóknaverkefnum í þágu atvinnulífsins. Samtök at- vinnulífsins hafa ákveðið að leggja Rannsóknastofnuninni lið næstu tvö árin og skapa með því sterkan grunn fyrir stóraukið rannsókna- starf í þágu atvinnulífsins. Rann- sóknastofnun atvinnulífsins mun starfa sem sjálfstæð stofnun inn- an Háskólans á Bifröst og verður undir forystu rektors skólans. Fyrsta verkefnið á vegum Rann- sóknastofnunar atvinnulífsins verður að gera rannsókn á fyrir- komulagi kjarasamninga á Íslandi og ástæðum þess að ekki tekst jafn vel að samræma aukinn kaupmátt, betri lífskjör og lága verðbólgu eins og á öðrum Norðurlöndum. Þessi rannsókn verður byggð á vinnu og niðurstöðum sem fram komu í skýrslu sem aðilar vinnumarkað- arins gáfu út eftir sérstaka kynnis- ferð til Norðurlandanna sl. sumar. Vonast er til að þessi rannsókna- vinna á fyrirkomulagi kjarasamn- inga á Íslandi fæði af sér gagnlegar hugmyndir og tillögur um hvern- ig hægt sé að bæta vinnubrögð og árangur af starfi aðila vinnumark- aðarins í kjarasamningum. Fleiri verkefni eru í deiglunni á vegum Rannsóknastofnunarinn- ar. Samtök atvinnulífsins og Há- skólinn á Bifröst leggja áherslu á að fjölga þeim aðilum sem leggja Rannsóknastofnuninni lið þann- ig að starf hennar festist í sessi á næstu árum. Markmiðið er að rannsóknir og úttektir á veg- um stofnunarinnar geti stutt við margvíslega framþróun í starfs- skilyrðum og innviðum atvinnu- lífsins jafnframt því að efla mennt- un fólks sem kemur til starfa í ís- lenskum fyrirtækjum. Vilhjálmur Egilsson rektor Háskólans á Bif- röst segir að skólinn fái með þessu samstarfi afar mikilvægan stuðn- ing frá SA, sem auðveldi skólan- um mjög að laða góða kennara og nemendur að skólanum og um leið bæta gæði skólastarfsins, sem hef- ur fyrst og fremst þann tilgang að mennta fólk til leiðandi hlutverka í íslensku atvinnulífi og samfélagi. „Háskólinn á Bifröst starfar í nán- um tengslum við íslenskt atvinnu- líf og hinn veigamikli stuðningur Samtaka atvinnulífsins styrkir þau tengsl enn frekar,“ segir Vilhjálm- ur rektor á Bifröst. þá Hér er hluti hópsins sem tók virkan þátt í að lagfæra félagsaðstöðuna við Suður- götu. Áhugaljósmyndaraklúbburinn Vitinn flytur í nýtt húsnæði Svipmynd frá fyrsta fundi Vitans í nýja húsnæðinu. Vilhjálmur Egilsson rektor Háskólans á Bifröst og Þorsteinn Víglundsson framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins að lokinni undirritun skipulagsskrár fyrir Rannsóknastofnun atvinnulífsins - Bifröst. Stóraukið rannsóknastarf í samvinnu við SA á Bifröst Mánudagur 7. október Sundlaugin í Borgarnesi kl. 16.10 – 16.55 Sundæfing hjá Skallagrími, fyrir alla krakka í 3. og 4. bekk Íþróttahúsið í Borgarnesi kl. 17.30 Hlaupahópur - allir á sínum hraða Íþróttahúsið í Borgarnesi kl. 18.10 Spinning Þriðjudagur 8. október Íþróttahúsið í Borgarnesi kl. 06.45 Morgunstuð, fjölbreytt leikfimi með Erlu Menntaskóli Borgarfjarðar kl. 11.20 Gengið, hlaupið eða skokkað eftir „Menntaveginum“ 1,7 km Íþróttahúsið í Borgarnesi kl. 12.00 – 13.00 Hádegispúl með Írisi Grönfeldt Heilsugæslustöðin í Borgarnesi kl. 13.00 – 15.00 Blóðþrýstingsmælingar Sundlaugin í Borgarnesi kl. 16.25 – 17.40 Sundæfing hjá Skallagrími fyrir alla krakka í 5. - 10. bekk Sundlaugin á Varmalandi kl. 15.00 – 18.00 Frítt fyrir alla í sund í boði UMF Stafholtstungna Sundlaugin í Borgarnesi kl. 17.00 - 18.00 Vatnsleikfimi fyrir konur, leiðbeinandi Íris Grönfeldt Íþróttahúsið í Borgarnesi kl. 18.10 Kvennaþrekið, skemmtilegar æfingar fyrir konur Sundlaugin í Borgarnesi kl. 18.00 - 19.00 Vatnsleikfimi fyrir karla, leiðbeinandi Íris Grönfeldt Miðvikudagur 9. október Heilsuhof í Reykholtsdal kl. 16.00 Tabata, allir velkomnir Íþróttahúsið í Borgarnesi kl. 18.10 Spinning Fimmtudagur 10. október Íþróttahúsið í Borgarnesi kl. 06.45 Morgunstuð, fjölbreytt leikfimi með Erlu Sundlaugin í Borgarnesi kl. 16.25 – 17.40 Sundæfing hjá Skallagrími fyrir alla krakka í 5. - 10. bekk Sundlaugin í Borgarnesi kl. 17.00 - 18.00 Vatnsleikfimi fyrir konur, leiðbeinandi Íris Grönfeldt Frá Íþróttahúsinu í Borgarnesi kl. 17.30 Hlaupahópur - allir á sínum hraða Íþróttahúsið í Borgarnesi kl. 18.10 Kvennaþrekið, skemmtilegar æfingar fyrir konur Sundlaugin í Borgarnesi kl. 18.00 - 19.00 Vatnsleikfimi fyrir karla, leiðbeinandi Íris Grönfeldt Heilsuhof í Reykholtsdal kl. 18.00 - 19.00 Heilsuganga, jógateygjur og slökun Föstudagur. 11 október Íþróttahúsið í Borgarnesi kl. 12.00 - 13.00 Hádegispúl með Írisi Grönfeldt Sundlaugin í Borgarnesi kl. 14.00 - 15.00 Vatnsleikfimi fyrir konur, leiðbeinandi Íris Grönfeldt Sundlaugin í Borgarnesi kl. 16.15 – 18.15 Sundæfing hjá Skallagrími fyrir alla krakka í 5. - 10.bekk Mæting í þreksal og svo farið í sund Óðal kl. 18.00 BÍÓ á vegum körfuknattleiksd. Skallagríms Heimildamyndin um Örlyg Sturluson, einn efnilegasta körfuknattleiksmann Íslendinga sem lést árið 2000, aðeins 18 ára Aðgangseyrir 1.000- kr. Íþróttahúsið í Borgarnesi kl. 18.00 - 21.00 Frítt í sund og þreksal Kaffi og kósýheit á sundlaugarbakkanum Laugardagur 12. október Frá íþróttahúsinu í Borgarnesi kl. 10.00 Hlaupahópur - allir á sínum hraða Íþróttahúsið í Borgarnesi kl. 10.00 Laugardagsfjör, skemmtileg leikfimi með Guðrúnu, Erlu og Dóru. Sunnudagur 13. október Einkunnir kl. 14.00 Gönguferð um Einkunnir með göngunefnd UMSB Föstudaginn 4. október kl 18.30 Íþróttahúsið í Borgarnesi Sauðamessumót í körfubolta Firmakeppni þar sem allir geta skráð lið til leiks. Skráning og nánari upplýsingar: finnur23@simnet.is og í síma 898 9208. Vegleg verðlaun í boði. Þátttökugjald 10.000- kr. Alla vikuna verða tilboð á heilsutengdum vörum í: Nettó og Borgarsport Allir auglýstir viðburðir í heilsuvikunni eru þátttakendum að kostnaðarlausu, nema annað sé tekið fram. Heilsuvika UMSB og Borgarbyggðar 7. – 13. október 2013 S K E S S U H O R N 2 01 3

x

Skessuhorn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.