Skessuhorn


Skessuhorn - 02.10.2013, Page 24

Skessuhorn - 02.10.2013, Page 24
24 MIÐVIKUDAGUR 2. OKTÓBER 2013 Hvernig litist þér á sameiningu Akraneskaupstað- ar, Borgarbyggðar, Hvalfjarð- arsveitar og Skorradalshrepps í eitt sveitarfélag? Guðmundur Ingi Waage Mér litist nú frekar illa á það. Sylvía Helgadóttir Ég hef ekki hugsað um það. Aleksandra Mazur Ég held að það væri sniðugt. Ég veit þó ekki alveg með Akra- nes. Aðalsteinn I. Aðalsteinsson Verður maður ekki að halda í gamla Borgarnes-Akranes ríg- inn og segja nei. Spurning vikunnar (Spurt í Borgarnesi) Hallgrímur Kristinn Hall- grímsson Ég hef ekki myndað mér skoð- un á því. Hvernig litist þér á sameiningu Akraneskaup- staðar, Borgarbyggðar, Hval- fjarðarsveitar og Skorradals- hrepps í eitt sveitarfélag? Þórey Petra Bjarnadóttir Mér litist vel á það. Stefán Þórisson Ljómandi vel. Kolbeinn Hróar Búason Það væri örugglega fínt. Ólöf Magnúsdóttir Mér hefur alltaf fundist það vera sjálfsagt. Spurning vikunnar (Spurt á Akranesi) Margrét Magnúsdóttir Ég myndi vilja sjá sameiningu Akraness og Hvalfjarðarsveit- ar en er ekki farin að hugsa lengra. Markaðsstofa Vesturlands var þátt- takandi á VestNorden ferðakaup- stefnunni sem haldin var fyrir um tíu dögum í Nuuk á Grænlandi. „Við tókum okkur saman nokkrar markaðsstofur og vorum með sam- eiginlegan bás undir heitinu „Rural Iceland,“ en með því móti gátum við náð kostnaði niður. Frá Vest- urlandi mættu einnig tveir fulltrúar frá Sæferðum auk þeirra hjóna sem reka Láka Tours/Hótel Framnes í Grundarfirði. Það var mikill áhugi fyrir Vesturlandi og var ég fullbók- uð á fundum með ferðaheildsölum víða að úr heiminum báða dagana,“ segir Rósa Björk Halldórsdótt- ir framkvæmdastjóri Markaðsstofu Vesturlands. Hún segir að aldrei áður hafi verið eins gaman að segja frá Vesturlandinu eins og nú. „Það kemur til af því hversu mikið er að gerast hjá okkur, mikil fjölbreytni í afþreyingu og gistingu og marg- ir sem eru byrjaðir að hafa opið allt árið um kring. Á því er mikil breyt- ing frá því þegar ég byrjaði hjá markaðsstofunni,“ segir Rósa. Hún segir að markaðsstofan sé nú byrjað af krafti í tveimur verkefn- um. Um er að ræða vöruþróun og markaðsátak, annars vegar sé það Breiðafjarðarsvæðið og hins vegar svokallað Akraborgarverkefni sem snýr að svæðinu Akranesi, Hval- firði og Borgarfirði. Markaðsátakið verður með áherslu á fyrirtæki sem opin eru allt árið og greiða þau fyr- irtæki mótframlag. Verkefnin eru styrkt er af Sóknaráætlun Vestur- lands. mm Á fundi bæjarstjórnar Akraness á þriðjudaginn í liðinni viku var sam- þykkt samhljóða tillaga Gunnars Sigurðssonar og Einars Brandssonar bæjarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins að Akraneskaupstaður hafi frumkvæði að sameiningarvið- ræðum við sveitar- stjórnir Hvalfjarð- arsveitar, Skorra- dalshrepps og Borg- arbyggðar. Í grein- argerð með tillög- unni kemur fram að á aðalfundi Samtaka sveitarfélaga á Vest- urlandi sem fram fór í Reykholti á dög- unum hafi innan- ríkisráðherra greint frá því að samein- ing sveitarfélaga á Íslandi yrði ekki þvinguð heldur yrði það alfarið að vera í höndum sveitar- félaganna sjálfra að hafa frumkvæði að slíkum viðræðum. Talsverðar umræður urðu um tillöguna á fundinum en í bók- un frá honum segir að ef jákvæður vilji verði til að skoða málið frekar munu þessi fjögur sveitarfélög gera með sér samkomu- lag um framhald málsins. Regínu Ásvaldsdóttur bæjarstjóra var falið að fylgja tillögunni eftir. Í greinargerð segir einnig að mik- ill vilji sé til þess að aukin og flókn- ari verkefni færist til sveitarfélaga svo sem rekstur heilsugæslu og lög- gæslu. Til þess að þessi þróun haldi áfram og tryggi um leið bætta þjón- ustu við íbúa væri ljóst að sveitarfé- lögin þurfi að stækka. „Aukið sam- starf eða sameining fyrrnefndra sveitarfélaga er forsenda bættrar þjónustu við íbúa þeirra og trygg- ir um leið samkeppnishæfni þeirra allra. Í því ljósi er tillaga þessi nú flutt,“ segir í bókun bæjarstjórnar Akraneskaupstaðar. Oddvitarnir ekkert yfir sig spenntir „Við höfum verið í miklum sam- einingum hér á þessu svæði á síðustu árum og áratugum. Borgarbyggð er samansett úr 13 gömlum sveitar- félögum og hreppum og það er sú sameining sem við höfum unnið að, búa til eina heild og það er verkefni okkar ennþá. Borgarbyggð er eitt af víðfeðmustu sveitarfélögunum í landinu með 3.500 íbúa og það hef- ur verið nægt verkefni til þessa að ná utan um. Við höfum lítið verið að leiða hugann að stærri sameiningum þannig að það verður fróðlegt að heyra hvernig fólk bregst við þessari tillögu vina okkar á Akranesi,“ segir Björn Bjarki Þorsteinsson formaður byggðarráðs Borgarbyggðar. Bjarki var inntur eftir viðbrögðum sveit- arstjórnarfólks í Borgarbyggð við tillögu bæjarstjórnar Akraness um sameiningaviðræður fjögurra ná- grannasveitarfélaga á sunnanverðu Vesturlandi. Bjarki kvaðst ekkert geta sagt um það á þessu stigi hvort sveitarstjórn Borgarbyggðar væri tilbúin í slíkar viðræður, erindið væri enn ekki komið í hús og fólk hefði í raun bara frétt af þessu í gegnum fréttamiðla þannig að staðan væri sú í augnablikinu. Peningahjónabönd ekki farsæl „Ég hef ekki trú á því að íbúar hér í sveit séu hrifnir að þessari tillögu. Ég get sagt það fyrir mig að ég mun ekki samþykkja að fara í þessar við- ræður, þó ég ætli ekki að svara fyrir aðra í sveitarstjórn. Við höfum nóg fyrir okkur og það var stemning fyr- ir sameiningunni hjá okkur fyrir sjö árum. Þetta er ungt sveitarfélag og við viljum láta það þróast áfram,“ segir Sigurður Sverrir Jónsson odd- viti sveitarstjórnar Hvalfjarðarsveit- ar. Hann sagði að þetta væri ekki í fyrsta sinn sem Akurnesingar sýndu áhuga á sameiningu. „Mér finnst það ekki óeðlilegt og ég myndi gera það ef ég væri Akurnesingur, en hjóna- bönd verða sjaldan farsæl ef stofnað er til þeirra peninganna vegna,“ sagði Sigurður Sverrir í gamansömum tón. Ekki náðist í Davíð Pétursson á Grund oddvita Skorradalshrepps, til að fá viðbrögð hans vegna tillögu bæjarstjórnar Akraness. Íbúarnir eiga að ráða „Það er sjálfsagt að skoða þetta erindi. Oddvitar og sveitarstjórar hafa verið boðaðir á fund sem eftir á að tíma- setja. Ef hann leiðir í ljós að menn ætli að fara í viðræður um samein- ingu munum við kanna hug íbúanna til þess. Það eru íbúarnir sem verða að ráða þessu,“ segir Davíð Pétursson oddviti Skorradalshrepps, þegar hann var spurður út í sameiningartillöguna frá bæjarstjórn Akraness. þá Nokkrar markaðsstofur landshlutann tóku sig saman um að vera með bás á sýningunni. Aldrei áður svo mikill áhugi fyrir Vesturlandi á VestNorden Rósa Björk Halldórsdóttir. Bæjarstjórn Akraness óskar eftir sameiningarviðræðum við þrjú nágrannasveitarfélög

x

Skessuhorn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.