Skessuhorn


Skessuhorn - 02.10.2013, Page 25

Skessuhorn - 02.10.2013, Page 25
25MIÐVIKUDAGUR 2. OKTÓBER 2013 Skotvopnanámskeið og veiðikortanámskeið Fyrirhugað er að halda námskeið fyrir umsækjendur um skotvopnaleyfi og undirbúningsnámskeið fyrir hæfnispróf veiðimanna. Skráning fer fram á www.veidikort.is Skotvopn bóklegt: 17. og 18. okt kl 18.00-22.00 Skotvopn verklegt: 19. okt kl 10.00 Skotsvæði. Veiðikortanámskeið: 20. okt kl 10.00-17.00 Veiðikortanámskeiðið kostar kr. 13.000,- og skotvopnanámskeiðið kr. 20.000.- Þátttakendur á skotvopnanámskeiðum þurfa að skila inn sakavottorði, læknisvottorði og passamynd til skrifstofu sýslumanns fyrir námskeiðin. Læknisvottorðið þarf að vera sérstaklega útgefið vegna skotvopnaleyfis. Skráning og nánari upplýsingar á vefnum veidikort.is. Borgarnes ÚTBOÐ Orkuveita Reykjavíkur óskar eftir tilboðum í verkið: Skorradalur stofnpípa 3. áfangi Verkið fellst í endurnýjun stofnpípu meðfram vegi 520 frá Litlu-Drageyri að Indriðastöðum 7. Nýja lögnin verður úr stáli og sett niður í helgunarsvæði vegar 520. Jafnframt þarf að færa til dæluhús ásamt búnaði suður fyrir veg. Helstu magntölur eru: Hitaveitulagnir 1600 m• Þveranir á vegi 5 stk• Skurðir fyrir lagnir 1500 m• Brottakstur efnis 500 m• 3 Verkkaupi gerir kröfu um lágmarks meðalveltu og eiginfjárstöðu bjóðenda síðustu þrjú ár, sjá nánar í útboðsgögnum. Útboðsverkið er nánar skilgreint í útboðsgögnum ORV 2013/09 Útboðsgögn er hægt að sækja án greiðslu frá og með þriðjudeginum 1. október 2013 á vefsíðu Orkuveitunnar www.or.is/UmOR/Utbod. Tilboð verða opnuð hjá Orkuveitu Reykjavíkur Bæjarhálsi 1, 110 Reykjavík, fimmtudaginn 17. október 2013 kl. 11:00. ORV 2013/09 01.10.2013 S K E S S U H O R N 2 01 3 Hugmyndin um nýtt sameinað sveitarfélag á sunnanverðu Vestur- landi er ekki ný af nálinni. Hún er vissulega umdeild en líka að sama skapi áhugaverð að velta fyrir sér. Valdimar Kristinsson viðskipta- og landfræðingur skrifaði grein í Fjár- málatíðindi Seðlabankans árið 1995 sem bar titilinn „Byggðamálin – er eitthvað til ráða?“ Valdimar hafði áður skrifað greinar um byggða- mál þar sem hann hugsaði djarft og velti upp ýmsum nýstárlegum flöt- um sem vöktu athygli og umræður. Í greininni sem hér er nefnd varp- aði hann fram þeirri hugmynd að þéttbýlið á suðvesturhorni landsins yrði í framtíðinni þróað frekar til norðurs frá höfuðborgarsvæðinu. Hann benti á að þegar árið 1994 byggju yfir 80% íbúa landsins á hættulegum jarðskjálftasvæðum. „Í alþýðlegum fræðum voru þeir tald- ir flón sem settu öll egg sín í eina körfu,“ skrifaði Valdimar og benti á að úrvals byggingaland fyrir fram- tíðar bæ eða borg væri að finna við norðanverðan Grunnafjörð á leið- inni milli Akraness og Borgarness. Þarna sunnan Skarðsheiðar gæti hin nýja „Akraborg“ risið í fram- tíðinni þar sem íbúar yrðu í alfara- leið og þyrftu hvorki að óttast bú- sifjar og hættu vegna eldsumbrota, ofanflóða, sjávarflóða eða jarð- skjálfta. Góðar hafnir yrðu skammt undan bæði á Akranesi og Grund- artanga. Samgöngulega séð á landi yrði svæðið afar vel í sveit sett. Það yrði í alfararleið til og frá Snæ- fellsnesi, Vestfjörðum, Húnavatns- sýslum, Skagafirði og Eyjafirði, auk þess sem höfuðborgarsvæðið væri skammt undan sunnanmegin. Öflug sveitarfélög í sókn Samkvæmt gögnum Hagstofunnar bjuggu 10.761 á Akranesi, í Borgar- byggð, Hvalfjarðarsveit og Skorra- dalshreppi í árslok 2012. Saman- lagður íbúafjöldi sveitarfélaganna þriggja hafði þannig aukist úr 8.981 frá árslokum 1998. Þeim hafði þannig fjölgað um rétt tæp 20%, eða 1.780 manns á 14 árum. Það er þokkalegur árangur. Tölur Hag- stofunnar sýna til dæmis að íbúum Reykjavíkur fjölgaði um rétt rúm tíu prósent á sama tímabili. Þegar litið er um öxl er augljóst að sveit- arfélögin fjögur hafa verið í mikilli sókn á þessu tímabili þó auðvitað hafi skipst á bæði skin og skúrir. Ekki þarf djúpa rannsókn til að sjá að Akranes, Borgarbyggð, Hval- fjarðarsveit og Skorradalshreppur búa samanlagt yfir miklum styrk á ýmsum sviðum. Atvinnulíf þeirra er afar fjölbreytt. Íbúarnir búa yfir mikilli þekkingu og reynslu á ótal sviðum. Landbúnaður og sjávar- útvegur hafa frá fornu fari verið helstu atvinnuvegir sveitarfélag- anna. Fjölbreytt matvælavinnsla hefur þróast innan þessara greina. Á seinni tímum hafa síðan iðnað- ur og ferðaþjónusta sótt stöðugt á. Innan iðnaðarins ber hæst stóriðju- svæðið á Grundartanga en líka má finna öflug iðnfyrirtæki á Akranesi og í Borgarbyggð. Mikil hafnar- mannvirki eru innan svæðisins þar sem hæst ber fiski- og frístunda- höfn á Akranesi og iðnaðarhöfn á Grundartanga. Sveitarfélögin búa yfir mikilli náttúrfegurð, þau eru vinsæl frístundasvæði og geyma merka sögu. Til að mynda eru á þriðja þúsund sumarhús í þessum fjórum sveitarfélögum. Samgöngumál og fjarskipti hljóta að teljast í góðu horfi. Vegakerfið til og frá höfuðborgarsvæðinu norður í land lægi um hið sameinaða sveit- arfélag. Hvalfjarðargöng tryggja öruggar samgöngur við landshluta sunnan megin fjarðar á meðan Borgarfjarðarbrú og Borgarnes eru mikilvægar farleiðir norðanmegin. Sóknarfærin hljóta að teljast mörg enda um skamman veg að fara til fjölmennustu byggðasvæða lands- ins á suðvesturhorninu. Menntakerfið er sterkt. Tveir háskólar eru á svæðinu. Þeir sinna bæði rannsóknum og kennslu á breiðum sviðum innan þjóðfélags- mála og náttúruvísinda. Tveir framhaldsskólar auk fjölda leikskóla og grunnskóla sinna yngri aldurs- hópum. Nýtt sameinað sveitarfé- lag gæti státað af einu sjúkrahúsi, tveimur dvalarheimilum fyrir aldr- aða og miklum íþróttamannvirkj- um sem mæta fjölbreyttum áhuga íbúanna á hreyfingu og hollum lífs- háttum. Veltir átta milljörðum Það kostar fjármuni að standa und- ir fjölbreyttri þjónustu við íbúana. Heildartekjur sveitarfélaganna fjögurra voru samtals rétt tæpir átta milljarðar króna á síðasta ári. Við hugsanlega sameiningu yrði sjálf- sagt horft í það hvort og þá hvern- ig hægt yrði að hagræða frekar svo veita mætti sem besta þjónustu fyr- ir hverja krónu. Tilgangur samein- ingar hvort sem það eru sveitarfé- lög eða fyrirtæki er jú aukin hag- kvæmni. Mótvægi í byggðastefnu til framtíðar? Augljóst er af grein Valdimars sem nefnd var hér í upphafi, að hann sá fyrir sér að öflugt sveitar- félag á Vesturlandi yrði mótvægi við „borgríkið“ á Stór-Reykjavík- ursvæðinu. „Akraborg“ gæti orð- ið mikilvæg stoð fyrir hinar dreifð- ari byggðir norðvestar og norðar á landinu. Lokaorðin í ritgerð hans frá 1995 eru þessi: „Þótt búast megi við, og eðlilegt sé, að byggðin fær- ist töluvert saman frá því sem nú er getur það varla verið framtíðarsýn fólks, að hér verði nánast borgríki og fáir aðrir en landverðir á víð og dreif um fósturjörðina. Tuttugasta og fyrsta öldin er að ganga í garð. Íslenska þjóðin lifði naumlega af hungur og hafís þegar verst lét, en lifir hún af góðærið?“ Góðærið svokallaða endaði sem kunnugt er í mestu efnahagsham- förum sem þjóðin hefur hingað til mátt reyna. Lesendum er eftirlát- ið að hugleiða frekar hvort sú brot- lending kalli nú á að menn hugsi hlutina upp á nýtt og velti jafnvel fyrir sér að stíga frekari skref í þá átt að hugmyndin um „Akraborg“ yrði að veruleika. mþh Fréttaskýring: Hvernig yrði nýtt sveitarfélag (Akraborg)? Horft yfir hluta af hinu nýja „borgarstæði“ norðan Grunnafjarðar. Séð frá Geirmundartindi á Akrafjalli. Ljósm. mþh.

x

Skessuhorn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.