Skessuhorn


Skessuhorn - 02.10.2013, Qupperneq 26

Skessuhorn - 02.10.2013, Qupperneq 26
26 MIÐVIKUDAGUR 2. OKTÓBER 2013 Nemendur framhaldsskólanna á Vesturlandi hafa undanfarin miss- eri keppt innbyrðis um keppnis- rétt fyrir hönd síns skóla í Fram- haldsskólamótinu í paintball. Í Fjölbrautaskóla Snæfellinga var keppt síðastliðinn fimmtudag og alls tóku 50 nemendur FSN þátt í mótinu í átta liðum, en skól- inn sendir tvö lið á mótið sem haldið verður í Skemmtigarðin- um í Grafarvogi. Sigurliðin voru tvö og heita þau Lummurnar og Team Shrek, en liðin voru jöfn af stigum og þurftu því að keppa í bráðabana. Lummurnar báru sig- ur úr býtum í bráðabananum og eru því skólameistarar FSN í pa- intball. Í undankeppni Fjölbrautaskóla Vesturlands kepptu 79 nemend- ur í 14 liðum um þátttökurétt í aðalkeppninni. Keppt var þann 20. september og stóð keppnin yfir í fimm tíma. Að lokum stóðu tvö lið uppi sem sigurvegarar en það voru liðin Massaða crewið og Mirin og munu þau lið keppa fyrir hönd FVA í lokakeppninni. Ekki er búið að ákveða dagsetningu úr- slitakeppninnar. sko Tilkynnt var síðastliðinn mánu- dag til lögreglunnar í Borgarfirði og Dölum um dauðan og rotnandi skíðishval á fjöru í landi Lamb- astaða á Mýrum. Bóndi á næsta bæ gekk fram á hvalshræið í fjörunni þar sem hann var að huga að fé. Lögreglan fór á staðinn og kann- aði aðstæður. Hvalurinn sem er um 18 metra langur hafði sýnilega ver- ið dauður í fjörunni í nokkurn tíma. Að mati lögreglu hefur hvalinn trú- lega rekið þarna upp í síðasta stór- streymi og suðvestan stormi. Ekki er ólíklegt að hann hafi einmitt rek- ið á land í sama óveðrinu og búr- hvalinn rak á land í Suðurey úti af Löngufjörum og sagt var frá í Skessuhorni í síðustu viku. Höfðu menn á orði að það yrði trúlega auðvelt að vinna á tófunni í vetur þegar hún færi að sækja í „ilmandi skrokkinn“ í landi Lambastaða. Áður hefur hvali rekið á fjörur fyr- ir Lambastaðalandi. Meðal annars fyrir rúmum aldarfjórðungi þeg- ar rak stóran hval nærri bæjarhús- unum. Þá sagði í tilkynningu frá lögreglu á þriðjudag að tilkynning hefði borist um annan minni hval rekinn undan Miðhúsum á Mýrum og sé verið að kanna þann hvalreka betur. þá Íbúðalánasjóður auglýsti í liðinni viku fjölda eigna á Akranesi til sölu og er tilboðsfrestur í þær til 10. október næstkomandi. Alls voru auglýstar til sölu 22 fasteignir og á þeim lista má finna fjölbýlishús sem og smærri húseignir. Flestar eru eignirnar í eldri hluta bæjarins og mikið af þeim í lélegu ásigkomu- lagi. Þessi sala er liður í átaki Akra- neskaupstaðar og Íbúðalánasjóðs til að styrkja eldri hluta bæjarins sem kom meðal annars fram í viðtali nýverið við Regínu Ásvaldsdóttur bæjarstjóra hér í Skessuhorni. þá/ Ljósm. Friðþjófur H. Stofnað hefur verið menningarfé- lag á Akranesi sem ber hið virðu- lega nafn Kalman-listafélag. „Kal- man mun starfa í nánu samstarfi við hið öfluga tónlistarlíf sem er við Akraneskirkju, sem og aðra menn- ingarvini á Akranesi sem hafa áhuga á góðu listasamfélagi. Kalman-lista- félag er hugarfóstur Sveins Arnars, organista Akraneskirkju og listvina hans. Þróun félagsins er í mótun en markmiðið er að bjóða upp á a.m.k. eina tónleika í mánuði yfir vetrartímann, standa fyr- ir námskeiðum, fyrirlestrum og öðru sem býður upp á list- sköpun og jákvætt umhverfi,“ segir í tilkynningu frá Kalman listafélagi. Framundan eru ýmsir við- burðir og má nefna fjölskyldu- tónleika sunnudaginn 13. októ- ber þar sem söngvararnir Val- gerður Guðnadóttir og Þór Breið- fjörð munu flytja lög úr Disney- myndum og söngleikjum. Á degi ís- lenskrar tungu, þann 16. nóvember, mun Sigurbjörg Þrastardóttir bæj- arlistamaður Akraness, verða gest- ur Kalmans. Flutt verður dagskrá í tali og tónum. „Öllum gefst kostur á að gerast Kalmansvinur. Í því felst að greiða fast árgjald og mynda Kalmansvin- ir með því nauðsynlegan fjárhags- grunn til að standa straum af kostn- aði við metnaðarfullt menningar- starf. Innifalið í árgjaldinu er af- sláttur á alla tónleika og viðburði á vegum Kalmans. Til að gerast Kal- mansvinur og/eða fá nánari upplýs- ingar er einfaldast að senda tölvu- póst á netfangið kalmanlistafelag@ gmail.com eða hafa samband við Svein Arnar í síma 865-8975. mm Landsþing samtakana POWER- talk var haldið í Borgarnesi 3. til 5. maí í vor. Nú hefur landsstjórn samtakanna ákveðið að halda kynn- ingarfund á Bifröst fimmtudaginn 3. október klukkan 18:00. Þar verð- ur starf samtakanna kynnt með því markmiði að stofna deild, segir í fréttatilkynningu frá þjálfunarsam- tökunum sem leggja áherslu á ein- staklingsmiðaða þjálfun í tjáningu. Félagar úr landsstjórn samtakanna, ásamt núverandi félögum, munu segja frá starfinu og reynslu sinni innan samtakanna á fundinum. Til- gangur fundarins er auk þess að kynna samtökin og hvað einstak- lingar geti öðlast með þátttöku og í framhaldinu eru vonir bundnar við að stofnuð verði deild fyrir alla þá sem áhuga hafa og eru þeir hvatt- ir til að mæta og kynna sér starfið og möguleikana. Nánari upplýsing- ar má finna á heimasíðu POWER- talk. sko Réttað var í Snæfellsbæ um liðna helgi, bæði í Hinnarétt í Ólafs- vík og Þæfusteinsrétt á Hellissandi þar sem margt fólk var saman kom- ið. Að sögn Laufeyjar Kristmunds- dóttur voru um 30 manns við smöl- un og dregið var í dilka í Hinna- rétt á laugardaginn. Smölun gekk þokkalega þrátt fyrir fremur hryss- ingslegt veður, en snjóað hafði í fjöll um nóttina og síðan rigndi og blés hressilega meðan réttað var. Eft- ir að smölun lauk var boðið upp á íslenska kjötsúpu og bakkelsi í fjár- húsunum hjá Ólafi Helga og Brynj- ari Kristmundssyni og þáði fjöldi gesta að gæða sér á veitingunum. Spilað var á harmonikku og mynd- aðist skemmtileg stemning áður en farið var út í slagveðrið til að draga í dilkana í Hinnarétt. af Meðlimir POWERtalk á góðri stundu. Kynningarfundur Powertalk á Bifröst Kátur hópur. Réttað í Snæfellsbæ um helgina Dregið í dilka í Hinnarétt. Systkinin Laufey og Brynjar kampakát að njóta veitinga. Team Shrek mun einnig keppa á stóra mótinu fyrir hönd FSN. Framhaldskólanemendur keppa í paintball Hér eru Lummurnar, skólameistarar FSN í paintball. Íbúðalánasjóður með fjölda eigna á Akranesi til sölu Kalman-listafélag tekið til starfa á Akranesi Hvalurinn á fjörunni við Lambastaði. Ljósm. tþ. Hval rak á land á Mýrum

x

Skessuhorn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.