Skessuhorn - 02.10.2013, Page 27
27MIÐVIKUDAGUR 2. OKTÓBER 2013
Hún getur verið býsna hörð lífs-
baráttan. Þessi mynd er tekin á Fax-
abryggjunni á Akranesi um helgina.
Þar hafði einhver skilið eftir beingarð
úr ýsu og var veisla hjá mávunum, það
er að segja þeim sem eitthvað fengu.
Ljósm. Kolla Ingvars.
Kristinn J. Erlingsson náði á ljósmynd
þegar fálki gerði sig heimakominn við
bæinn Kjaransstaði í Hvalfjarðarsveit
síðastliðinn laugardag. Náði fálkinn
að klófesta sér smærri fugl, sem
venjulega er tákn boðbera friðar og
kærleika, hvíta dúfu, og éta hana.
mm
Bjarni Harðarsson fyrrverandi al-
þingismaður og núverandi bóksali
á Selfossi hefur í sumar átt þátt í
útgáfu fimm nýrra bóka, sem hann
ýmist sjálfur er útgefandi að eða
aðstoðað ýmsa við útgáfuna. Þær
bækur sem um ræðir eru: Sýnis-
bók safnamanns eftir Þórð Tóm-
asson, Vettlingar frá Vorsabæ eft-
ir Emilíu Kristbjörnsdóttur og Val-
gerði Jónsdóttur, Mennirnir með
bleika þríhyrninginn eftir Heinz
Heger, Mannlífsmyndir eftir Vig-
fús B. Jónsson og Bleikir fiskar eftir
Ólöfu Völu Ingvarsdóttur.
Rekur sögu safnmuna
Sýnisbók safnamanns er eftir Þórð
Tómasson safnvörð í Skógum og er
þetta tuttugasta bók hans, en fyrsta
bók hans; Eyfellskar sagnir I kom út
árið 1948. Í Sýnisbók safnamanns
rekur Þórður ævintýralega sögu
safnmunanna í Skógum. Í Sýnis-
bók safnamanns veitir safnvörður-
inn lesandanum hlutdeild og inn-
sýn í heim sem er í senn heillandi
og brotgjarn. Fram spretta karl-
ar og kerlingar sem handléku gripi
þessa og áttu sína dýrgripi ofan í út-
skornum trafaröskjum löngu liðins
tíma. Þjóðtrú og galdur birtist t.d. í
skrifum um sigurlykkju sem lesand-
inn getur hér lært að hnýta. Sylgju-
lengja frá Ægissíðu er einstök
heimild um smíði úr hvalbeini.
Vettlingabók fyrir
byrjendur og vana
Vettlingar frá Vorsabæ er aðgengi-
leg bók sem geymir yfir 50 fjöl-
breyttar vettlingauppskriftir eft-
ir mæðgurnar Emelíu Kristbjörns-
dóttur og Valgerði Jónsdóttur. Í
bókinni eru uppskriftir að belg-
vettlingum, fingravettlingum, reið-
vettlingum og þversum prjónuðum
vettlingum. Bæði er lýst hefðbundn-
um aðferðum og ýmsum tilbrigð-
um þegar kemur að þumli, stroffi
og úrtöku. Flestar uppskriftirnar í
bókinni
eru fyrir
lopa og
léttlopa
en einn-
ig má
þar finna
vettlinga
s e m
prjónað-
ir eru úr
kambg-
arni og
u l l a r -
g a r n i .
B á ð a r
miðla mæðgurnar af mikilli reynslu
þegar kemur að prjónaskap. Í Vett-
lingum frá Vorsabæ finna bæði
byrjendur og þaulvant prjónafólk
eitthvað við sitt hæfi og einföldustu
uppskriftirnar er upplagt að nota til
kennslu í skólum.
Voru lægstir allra í
fangabúðum
Bókin Mennirnir með bleika þrí-
hyrninginn eftir Heinz Heger kom
fyrst út í Þýskalandi 1972 en hef-
ur ekki áður
komið út
á íslensku.
Rit þetta er
talið með-
al höfuð-
rita í rétt-
indabaráttu
s a m k y n -
h n e i g ð r a
og markar
djúp spor í
mannrétt-
indabaráttu
síðustu ára-
tuga. Hér
segir Aust-
urríkismað-
urinn Josef Kohout sögu sína en
hann dvaldi líkt og þúsundir ann-
arra í fangabúðum nasista á stríðs-
árunum fyrir þær sakir einar að vera
samkynhneigður. Mennirnir með
bleika þríhyrninginn er ekki aðeins
vitnisburður um hrottaskap nas-
ismans heldur einnig og ekki síð-
ur er hér velt upp almennri afstöðu
mannsins til samkynhneigðra.
Mennirnir sem merktir voru bleik-
um þríhyrningi voru lægstir allra í
fangabúðunum og fengu eftir stríð-
ið enga uppreisn æru þrátt fyrir
hryllilega meðferð.
Tvær bækur frá Bóka-
smiðjunni
Loks hefur Bókasmiðjan á Selfossi
sent frá sér tvær bækur; Mannlífs-
myndir eftir Vigfús B. Jónsson og
Bleika fiska eftir Ólöfu Völu Ing-
varsdóttur. Í bleikum fiskum eru
þrjár hroll-
v e k j a n d i
og spenn-
andi sögur
um ævin-
týri nokk-
urra ungra
e i n s t a k -
linga. Ólöf
Vala er
sex barna
móðir í
R e y k j a -
vík. Hún
er uppalin
í Reykholti
í Bisk-
upstungum sem er sögusvið einn-
ar sögunnar. Bleikir fiskar er fyrsta
bók höfundar.
Mannlífsmyndir er skrifuð af
sagnamanninum Vigfúsi B. Jóns-
syni fyrrverandi alþingismanni og
bónda, en hann sækir efnivið smá-
sagna sinna í fjölbreytilegar og
kímnar hliðar mannlífsins. Marg-
ar af sögunum eiga sér fyrirmyndir
í einum
og öðr-
um at-
b u r ð i
sem bor-
ið hef-
ur fyr-
ir augu
h ö f -
undar á
l a n g r i
ævi. Við
k y n n -
umst hér
l a n d a -
b r u g g -
urum og
kvenna-
mönnum, misheppnum pólitíkus-
um og andríkum skáldum. Sam-
skipti kynjanna eru umfjöllunar-
efni í nokkrum sögum Vigfúsar og
á köflum innlegg í jafnréttisbaráttu
karla. Sögur Vigfúsar eru á kjarn-
yrtu íslensku alþýðumáli og í þeim
eru varðveitt fjölmörg orð og orð-
tæki sem tilheyrðu veröld sem var.
sko
Frystitogarar HB Granda, Örfir-
isey RE, Þerney RE og Höfrung-
ur III AK, veiddu alls 6.440 tonn af
makríl í sumar og 496 tonn af síld
sem meðafla, eða rúm 7%. Þetta
kemur fram á vefsíðu HB Granda.
Farið var til veiða á Þerney þann
19. júní og í júlí var henni siglt til
veiða í grænlenskri lögsögu. Höfr-
ungur og Örfirisey voru við veið-
ar í íslenskri lögsögu en Höfrungur
hóf þó ekki veiðar fyrr en um miðj-
an júlí. Örfirisey var aflahæst frysti-
togara HB Granda með 3.145 tonn
og þar af 206 tonn af síld. Þerney
var með 3.070 tonn en þar af voru
225 af síld og rúmlega 640 tonn af
makríl sem fengust í grænlenskri
lögsögu. Höfrungur III veiddi 720
tonn af makríl og þar af 65 af síld.
Á síðu HB Granda segir að makríl-
veiðarnar, sem standi til boða yfir
sumarmánuðina, hafi átt stóran
þátt í því að hægt sé að halda tog-
urunum í útgerð allt árið. Án þeirra
þyrfti að gera hlé á útgerð margra
togara síðustu mánuði kvótaársins.
sko
Borgfirski tónistarmaðurinn Heim-
ir Klemenzson hefur undanfarna
mánuði verði að taka upp sína fyrstu
sólóplötu í hljóðveri Péturs Hjalte-
sted, Hljóðsmiðjunni í Hveragerði.
Stefnt er á að upptökum ljúki í
október og platan muni koma út á
fyrstu mánuðum ársins 2014. Plat-
an mun innihalda frumsamda tón-
list eftir Heimi en hann og Krist-
ján Gauti Karlsson skipta texta-
gerðinni á milli sín. „Tónlistinni
mætti lýsa sem jazzskotnu rokki/
poppi með proggi ívafi. Dæmi um
áhrifavalda eru Pink Flood, Steely
Dan, Weather Report og Yes,“ seg-
ir Heimir. Miðvikudaginn 9. októ-
ber mun Quintet Heimis Klemenz-
sonar halda tónleika á Kollubar á
Hvanneyri ásamt Arnari Ásbjörns-
syni frá Haukatungu og hljómsveit-
inni Dusty Miller. Allir þessir lista-
menn hafa verið að vinna að sínum
fyrstu plötum undanfarið þannig
að á tónleikunum mun hljóma mik-
ið af nýrri íslenskri tónlist. Kollu-
bar verður opnaður klukkan 20.30
og byrja tónleikarnir stundvíslega
klukkan 21.00. Aðgangseyrir er
litlar 500 krónur og segist Heimir
hlakka til að sjá sem flesta. mm
Ein af fyrstu haustlægðum ársins
gekk yfir með tilheyrandi roki og
grenjandi rigningu aðfararnótt sl.
miðvikudags. Sjaldgæft er að fólk
fari í útilegur þegar komið er fram
á mitt haust og allra veðra er von
og því vakti það athygli að sjá tjöld
á tjaldsvæðinu á Akranesi þá um
morguninn. Blaðamaður skrapp á
svæðið og hitti þar fyrir belgískan
ferðamann, sem vildi ekki láta nafn
síns getið, en hann hafði leitað skjóls
í þvottahúsaðstöðu á tjaldsvæðinu
þá um nóttina. Belginn sagðist hafa
ákveðið að fara í útileguna þrátt fyrir
viðvaranir íslenskra vina sinna. „Ég
var of þrjóskur, ég hlustaði ekki,“
sagði hann. Hann vaknaði svo kald-
ur og blautur í ónýtu tjaldinu seint
um nóttina. „Þegar ég vaknaði lá
ég blautur í polli með tjaldið ofan
á mér, það brotnaði í vindinum.“
Ferðamaðurinn hafði hent tjald-
inu þegar blaðamann bar að garði
og var að bíða eftir að komast til
Reykjavíkur í húsaskjól. „Ég er bú-
inn að ferðast víða, þetta var vandað
og gott tjald. Það var svolítið gam-
alt en hafði virkað vel hingað til. Ís-
land drap einfaldlega tjaldið mitt,“
sagði hann að lokum og hló. Eig-
endur hinna tjaldanna tveggja sem
eftir voru sáust hins vegar hvergi.
grþ
Fálki á
dúfnaveiðum
Baráttan um bitann
Fimm nýjar bækur úr fórum
Bjarna bóksala Harðarsonar
Sýnisbók safnamanns er tuttugasta
bók Þórðar í Skógum.
Mæðgurnar Emilía og
Valgerður búa yfir mikilli
reynslu í prjónaskap.
Þúsundir samkyn-
hneigðra einstaklinga
voru sendir í fangabúðir
á tímum nasismans.
Bleikir fiskar er fyrsta
bók Ólafar Völu.
Mannlífsmyndir er safn
smásagna sem margar
hverjar eiga sér fyrir-
myndir í raunheimi.
Örfirisey RE á siglingu. Ljósm. hbgrandi.is.
Makrílveiðar gengu vel hjá
frystitogurum HB Granda
Quintet Heimis spilar á
Kollubar í næstu viku
Umkomulaus tjöld eftir slagveðurs rigningu þá um nóttina.
Ísland drap tjaldið mitt