Skessuhorn - 02.10.2013, Síða 30
30 MIÐVIKUDAGUR 2. OKTÓBER 2013
Ungmennafélagið Skallagrímur í
Borgarnesi og Norðurál hafa sam-
ið um stuðning við íþróttastarf inn-
an vébanda körfuknattleiksdeild-
ar og knattspyrnudeildar Skalla-
gríms næstu þrjú árin. Um 130 ein-
staklingar á öllum aldri æfa körfu-
bolta á vegum félagsins og ámóta
fjöldi stundar þar knattspyrnu. Að
sögn Ágústar Hafberg hjá Norður-
áli, er það starfsfólki fyrirtækisins
ánægjuefni að leggja sitt af mörk-
um til starfsemi Skallagríms. „Bæði
starfsfólk og verktakar úr Borgar-
byggð starfa fyrir Norðurál og það
samræmist stefnu fyrirtækisins að
styðja við félagsstarf í nágranna-
byggðum sem bætir og eflir mann-
líf,“ segir Ágúst.
„Þessi samningur við Norður-
ál skiptir starfsemi okkar miklu
máli og styrkir alla okkar innviði,“
segir Björn Bjarki Þorsteinsson,
formaður körfuknattleiksdeild-
ar Skallagríms. Hann segir styrk-
inn verða nýttan til að efla barna-
og unglingastarf og jafnframt til að
standa við bakið á úrvalsdeildar-
liðinu í baráttu bestu körfuknatt-
leiksliða landsins. „Einnig erum
við með fjölsótt barnamót ár hvert
sem Norðurál styrkir. Það er hverju
félagi dýrmætt að hafa öfluga bak-
hjarla og Norðurál er einn okk-
ar helsti bakhjarl í körfuboltanum
í Borgarnesi og Borgarbyggð.“ Í
sama streng tekur Ívar Örn Reyn-
isson, formaður knattspyrnudeild-
ar Skallagríms. „Við höfum smám
saman verið að efla starf deild-
arinnar og auka gæði og umfang
þjálfunar, sérstaklega í yngri flokk-
unum. Fjárhagslegur stöðugleiki er
sá grunnur sem framfarir í íþrótta-
starfi grundvallast á enda er öllum
ljóst sambandið milli árangurs og
öflugra bakhjarla.“
mm
Sameiginlegt lokahóf meistara-
flokks karla og kvenna í Víkingi
Ólafsvík fór fram á Hótel Ólafsvík
síðastliðið laugardagskvöld. Þrátt
fyrir að meistaraflokkur karla hafi
fallið úr Pepsí deildinni er árang-
ur félagsins á liðinni leiktíð sá besti
í sögu félagsins. Meistaraflokkur
kvenna lék einnig sitt fyrsta tímabil
undir merkjum Víkings á Íslands-
mótinu í A riðli í 1. deild. Gleði-
efnin voru því ærin. Alfreð Már
Hjaltalín var valinn efnilegasti leik-
maðurinn auk þess að hljóta titilinn
markakóngur liðsins. Markmaður-
inn Einar Hjörleifsson var kosinn
leikmaður ársins. Hjá konunum var
Víktoría Ellenardóttir talin efnileg-
ust, markakóngur var Lovísa Mar-
gét Kristjánsdóttir og leikmaður
ársins var Freydís Bjarnadóttir.
Einnig voru veittar viðurkenn-
ingar fyrir tímamótaleiki. Björn
Pálsson, Steinar Már Ragnarsson,
Guðmundur Magnússon, Emir
Dokara og Dominik Bajda hlutu
viðurkenningar fyrir 50 leiki. Eldar
Masic og Tomasz Luba fengu við-
urkenningar fyrir 100 leiki, Fann-
ar Hilmarsson fyrir 150 leiki og
Einar Hjörleifsson fyrir 250 leiki.
Stuðningsmönnum félagsins var
fagnað vel á hófinu enda hafa þeir
staðið sig frábærlega í sumar. Voru
þeir kjörnir stuðningsmenn ársins í
Pepsímörkunum. þa
Lokahóf ÍA í knattspyrnu fór fram
í Gamla kaupfélaginu á Akranesi
sl. laugardagskvöld. Hjá meist-
araflokki karla var Joakim Wrele
kjörinn besti leikmaðurinn og
Birta Stefánsdóttir best hjá meist-
araflokki kvenna. Efnilegastur hjá
körlunum var valinn Hallur Flosa-
son og Eyrún Eiðsdóttir hjá kon-
unum. Leikmaður ársins, valinn af
stuðningsmönnum, var Ármann
Smári Björnsson hjá körlunum og
Guðrún Karitas Sigurðardóttir hjá
konunum. Í 2. flokki voru bestu
leikmennirnir Alexander Már
Þorláksson og Gréta Stefáns-
dóttir og efnilegust Albert Haf-
steinsson og Bryndís Rún Þór-
ólfsdóttir. Kiddabikarinn, leik-
maður ársins, var valinn Guð-
laugur Þór Brandsson. TM bik-
arinn, leikmaður ársins, var Ey-
rún Eiðsdóttir. Viðurkenningar
fyrir fjölda leikja fengu þeir Guð-
jón Sveinsson fyrir 400 leikir, Jón
Vilhelm Ákason 200 leikir, Arn-
ar Már Guðjónsson, Aron Ýmir
Pétursson og Garðar Bergmann
Guðlaugsson 150 leikir og Einar
Logi Einarsson og Andri Adolp-
hsson fyrir 100 leiki.
þá/ Ljósm. Ágústa Friðriksdóttir.
Verðlaunahafar í 2. flokki kvenna ásamt Margréti Ákadóttur þjálfara.
Wrele og Birta best hjá ÍA
Bestu og efnilegustu leikmennirnir hjá meistaraflokkum karla og kvenna, Wrele,
Birta, Hallur og Eyrún.
Leikmenn að mati stuðningsmanna,
Ármann Smári og Guðrún Karitas.
Leikmennirnir sem fengu viðurkenningu fyrir leikjafjölda ásamt Haraldi Ingólfssyni framkvæmdastjóra til vinstri. Verðalaunahafar í 2. flokki karla.
Frá undirritun styrktarsamnings. Fremri röð: Björn Bjarki Þorsteinsson, Ágúst
Hafberg og Ívar Örn Reynisson. Aftari röð: Sumarliði Páll Sigurbergsson knatt-
spyrnumaður og Sigurbjörg Rós Sigurðardóttir, körfuknattleikskona.
Norðurál gerist
aðalstyrktaraðili Skallagríms
Uppskerugleði hjá Víkingum í Ólafsvík
Lovísa Margrét Kristjánsdóttir markakóngur, Alfreð Már Hjaltalín efnilegasti leik-
maðurinn og markakóngur, Viktoría Ellenardóttir efnilegasti leikmaður kvenna,
Freydís Bjarnadóttir leikmaður ársins og Einar Hjörleifsson leikmaður ársins.
Fannar Hilmarsson fékk viðurkenn-
ingu fyrir 150 leiki og Einar Hjörleifs-
son fyrir 250 leiki.
Eldar Masic og Tomasz Luba fengu
viðurkenningar fyrir 100 leiki.
Steinar Már Ragnarsson, Björn Pálsson, Emir Dokara og Guðmundundur
Magnússon voru verðlaunaðir fyrir 50 leiki. Dominik Bajda vantar á myndina.