Skessuhorn - 02.10.2013, Qupperneq 32
ÞÚ FÆRÐ MEIRA Í STOFNI
H
V
ÍT
A
H
Ú
S
IÐ
/S
ÍA
HANDVERKSBAKARÍ
Matarmikil kjötsúpa og kaffi
Tilboð kr. 1150.-
Hnoðað heilhveitibrauð
Kr. 250.-
Allar kökur á borði
Kr. 500.-
Tilboð um Sauðahelgi
Föstudag og laugardag
Sauðadiskur:
Flatkaka m/hangikjöti
Skonsa m/osti
Rúgbrauð m/kæfu
Kleina
Kaffi
Tilboð kr. 850.-
Umhverfisverðlaun Akraneskaup-
staðar fyrir árið 2013 voru afhent
á mánudaginn. Í ár var ákveðið að
veita verðlaun í tveimur flokkum;
hvatningarverðlaun fyrirtækja og
fallegasta einkalóðin. Í hópi fyrir-
tækja varð fyrir valinu Ægisbraut
11 en Furugrund 44 í flokki íbúð-
arhúsa.
Hvatningarverðlaun
fyrirtækja
Gísli Jónsson ehf. á Ægisbraut 11
fékk hvatningarverðlaunin að þessu
sinni. „Árið 2013 hefur lóðin tek-
ið miklum stakkaskiptum og hef-
ur Gísli Jónsson, lóðarhafi, ver-
ið þar í fararbroddi í tiltekt á lóð-
inni og sýnt metnað í að gera lóð-
ina og nánasta umhverfi snyrti-
legra. Framtakið er til fyrirmyndar
og hvatning til annarra fyrirtækja
að gera slíkt hið sama,“ segir í um-
sögn dómnefndar.
Fallegasta einkalóðin
Furugrund 44 fékk að þessu sinni
verðlaun fyrir fallegustu einkalóð-
ina. Var sú ákvörðun einróma nið-
urstaða dómnefndar. Eigendur lóð-
arinnar eru þau Ingibjörg Eygló
Jónsdóttir og Guðmundur Sæ-
mundsson. „Lóðin er einstaklega
vel hirt og ekki er síðri fjölbreyti-
leiki þar. Hvert rýmið tekur við af
öðru með mismunandi hlutverki og
fjölbreyttum gróðri en má þar nefna
plöntur úr íslenskri flóru, bónda-
rósir, jarðarberjaplöntur og glæsi-
legt 37 ára gamalt eplatré. Einnig
ber að nefna að Ingibjörg og Guð-
mundur hlúa vel að nánasta um-
hverfi og miklar þakkir fá þau fyr-
ir umhirðu á göngustíg við lóð-
ina. Þau eru öðrum íbúum til fyrir-
myndar bæði hvað varðar umhirðu
og fegurð lóðarinnar og þátttöku
þeirra í að fegra bæinn okkar,“ seg-
ir í umsögn dómnefndar. Þess má til
gamans geta að eplatréð sem stend-
ur í bakgarði hússins er það elsta og
stærsta sinnar tegundar á Íslandi og
ber mikinn ávöxt á góðum sumrum.
„Við erum alveg að drukkna í eplum
þegar við fáum gott sumar, í fyrra
voru epli hérna út um allt,“ segir
Ingibjörg Eygló Jónsdóttir. grþ
Lóðin við Furugrund 44 er fjölbreytt og falleg.
Umhverfisverðlaunin 2013 afhent á Akranesi
Eigendur lóðanna með verðlaunin ásamt fulltrúum frá Akraneskaupstað sem stóðu að verðlaunaveitingunni. F.v. Írís Reynis-
dóttir, Guðmundur Valsson, Gísli Jónsson, Guðmundur Sæmundsson, Ingibjörg Eygló Jónsdóttir og Regína Ásvaldsdóttir.
Athafnalóðin við Ægisbraut 11 þykir til fyrirmyndar í umgengni.