Læknablaðið - 15.09.2000, Blaðsíða 40
FRÆÐIGREINAR / LÍFFÆRAFLUTNINGAR
r
cýklósporíns um 1980 vaknaði áhugi manna aftur á
hjartaígræðslu og öðrum líffæraflutningum (3).
ígræðsla á bavíanahjarta í nýbura með ólæknanlegan
meðfæddan hjartagalla (vanþroska vinstri slegil) á
árinu 1984 bar þessa aðgerð á forsíður dagblaða og á
ný inn í vísindarit læknisfræðinnar (4). Frá þessum
tíma hefur fjöldi hjartaflutninga í heiminum aukist
mikið og náði fjöldi þeirra hámarki um 1990 með um
4500 aðgerðum á ári (mynd 1). Síðan hefur
aðgerðum fækkað, einkum vegna skorts á líffærum,
en árlega eru nú framkvæmdar um 4000 slíkar
aðgerðir í Evrópu og Bandaríkjunum (5).
Ábendingar fyrir hjartaígræðslu
Val á sjúklingum fyrir hjartaígræðslu er einn erfiðasti
og mest krefjandi hluti þessarar aðgerðar, sérlega ef
haft er í huga að aðgerðin er ekki varanleg lækning.
Á það ekki síður við í börnum og ungu fólki sem gera
má ráð fyrir að eigi sér annars langt líf fyrir höndum.
Almennt þarf viðkomandi að hafa hjartasjúkdóm á
lokastigi og þannig vart hugað líf lengur en 6-12
mánuði. Önnur hefðbundin læknismeðferð þarf að
vera fullreynd og ekki mega vera neinar
frábendingar fyrir aðgerðinni.
Helstu ábendingar fyrir hjartaígræðslu í
börnum eru hjartagallar og hjartavöðvasjúkdómar
(tafla I). Hjá yngri börnurn eru hjartagallar
algengasta ástæðan fyrir hjartaígræðslu, en hjá
eldri börnum og unglingum eru hjartavöðva-
sjúkdómar algengari ábending (1,5). Þeir hjarta-
gallar sem leitt hafa til ígræðslu eru fyrst og fremst
vanþroska vinstri slegill í nýburum, en hjá eldri
börnum eru það hjartagallar sem reynt hefur verið
að gera við en ekki gengið sem skyldi. Þeir
hjartavöðvasjúkdómar í börnum sem eru ábend-
ingar fyrir ígræðslu eru bæði bráð hjartavöðva-
bólga, en einnig aðrir hjartavöðvasjúkdómar,
ýmist sem hluti af meðfæddum efnaskipta-
sjúkdómi eða hjartavöðvaslen (cardiomyopathy)
(1) af óþekktum orsökum.
Helstu ábendingar fyrir hjartaígræðslu í
fullorðna eru hjartavöðvasjúkdómar og kransæða-
sjúkdómar eða afleiðingar þeirra, en í mun færri
tilfellum meðfæddir hjartasjúkdómar eða
lokusjúkdómar (tafla 11) (5). Þeir hjartavöðva-
sjúkdómar sem leiða til ígræðslu í fullorðnu fólki
eru hinir sörnu og hjá unglingum, það er
hjartavöðvasjúkdómur sem hluti af efnaskipta-
sjúkdómi eða hjartavöðvaslen af óþekktum
orsökum.
Um helmingur af hjartaígræðslum í fullorðnu
fólki er vegna blóðþurrðarsjúkdóma sem ekki er
hægt að meðhöndla á annan hátt í hjartaþræðingu
eða með skurðaðgerð.
Table 1. Indications for cardiac chitdren 0-10years ofage (5). transpiantation in
Indication %
Congenital heart disease 52.5
Cardiomyopathy 34.5
Re-transplantation 5.8
Miscellaneous 7.2
Table II. Indications for cardiac transplantation in
aduits (5).
Indication %
Cardiomyopathy 45.6
Coronary artery disease 45.6
Valvular heart disease 3.4
Re-transplantation 2.2
Congenital heart disease 1.6
Miscellaneous 1.6
Frábendingar fyrir hjartaígræðslu
Frábendingar fyrir hjartaígræðslu geta verið algerar
til dæmis ef um óafturkræfa lifrar-, nýrna-, eða
öndunarbilun er að ræða. Þá er lungnaháþrýstingur
frábending fyrir hjartaígræðslu en slíkir einstaklingar
geta gengist undir lungna- eða hjarta- og lungna-
ígræðslu. Utlægur æðasjúkdómur eða heilaæðasjúk-
dómur eru frábendingar en einnig geta önnur
veikindi, svo sem sýkingar eða illkynja sjúkdómar
verið frábending í vissum tilfellum. Geðsjúkdómar,
taugasjúkdómar og slæm meðferðarheldni geta verið
frábending fyrir hjartaígræðslu. Aldur er umdeild og
afstæð frábending.
Undirbúningur fyrir aðgerð
Mat hjartalæknisins snýr að því að staðfesta fyrri
greiningu, meta almennar horfur sjúklingsins og
huga að öðrum meðferðarmöguleikum. Nær allir
gangast undir hjartaþræðingu til greiningar á æða-
tengingu hjartans, til að ákvarða stærð lungna-
slagæða og ákvarða sérstaklega þrýsting og viðnám í
lungnablóðrás. Hækkað viðnám í lungnablóðrás
eykur áhættu í aðgerðinni og getur verið frábending.
Mikilvægt er að meta samdráttarhæfni hjartavöðvans
og hjartaútfall en niðurstöður þess geta verið
hjálplegar upplýsingar við tímasetningu aðgerðar-
innar.
Hjarta líffæragjafans er skoðað með hjarta-
ómun fyrir líffæraflutninginn og góð virkni líf-
færisins án aðstoðar samdráttarhvetjandi lyfja er
venjulega skilyrði fyrir líffæragjöf. Aðrir þættir
sem þarf að huga að eru blóðflokkun og stærð
líffærisins.
Hjartaígræðslan
Hjartaígræðslan sjálf er almennt talin frekar auðveld
hjartaskurðaðgerð og er hægt að framkvæma við nær
öllum gerðum meðfæddra hjartagalla þar sem stað-
584 Læknablaðið 2000/86