Læknablaðið - 15.09.2000, Blaðsíða 83
UMRÆÐA & FRÉTTIR / ÚRSKURÐUR SIÐANEFNDAR
Árið 1985
samþykkti stjórn
LÍ að birta skyldi
alla úrskurði
Siðanefndar
Læknafélags
Islands í
Læknablaðinu.
Hér er birtur
úrskurður
Siðanefndar frá
28. apríl
síðastliðnum.
Urskurður Siðanefndar
Læknafélags íslands
fostudaginn zo. april kom Siðanefnd
Læknafélags íslands saman á skrifstofu formanns í
Dómhúsinu við Lækjartorg.
Fyrir er tekið erindi Boga Andersen til stjórnar
Læknafélags íslands og er í málinu kveðinn upp
svohljóðandi:
ÚRSKURÐUR
Siðanefnd Læknafélags íslands hefur fengið til
meðferðar erindi Boga Andersen, læknis frá 29.
febrúar sl. Tilefni bréfs þessa er að Högni Óskarsson
læknir hefur kært Boga fyrir brot á Codex Ethicus með
bréfi dagsettu 18. janúar sl. til stjórnar Læknafélags
íslands sem vísað var til nefndarinnar með bréfi
dagsettu 26. janúar sl.
I bréfinu varpar Bogi fram þeirri spurningu
hvort ekki sé eðlilegt að Allan V. Magnússon, Ágeir
B. Ellertsson og Runólfur Pálsson víki úr Siðanefnd
við meðferð kæru Högna Óskarssonar frá 18.
janúar sl. þar sem Högni kæri Boga Andersen til
Siðanefndar Læknafélags íslands.
Síðan segir í bréfinu, eftir að bréfritari hefur
vísað til þess að Siðanefnd skuli fylgja almennum
réttarfarsreglum í störfum sínum, að Högni kæri
hann m.a. fyrir að hafa vegið að Siðanefnd L.í. með
ósæmilegum hætti. Séu þeir menn er nefndina skipa
fórnarlömb afbrota Boga eins og það er orðað.
Þá vísi Högni í niðurstöðu Siðanefndar og sé því
Bogi Andersen settur í þá aðstöðu að hluti af
málsvörn hans verði hörð gagnrýni á störf
nefndarmanna.
Stjórn Læknafélags íslands hefur sent erindi
þetta til nefndarinnar enda á það undir hana að
fjalla um hæfi sitt en ekki stjórn Læknafélags
Islands en úrskurðum nefndarinnar verður skotið
til Gerðardóms L.í. vilji aðilar ekki una þeim.
í 5. gr. laga nr. 91/1991 eru reglur um sérstakt
hæfi dómara til að fara með mál hverju sinni en
ákvæðið hljóðar svo:
„Dómari, þar á meðal meðdómsmaður, er
vanhæfur til að fara með mál ef:
a. hann er aðili að málinu eða fyrirsvarsmaður
aðila,
b. hann hefur gætt réttar aðila varðandi
sakarefnið eða veitt aðila ólögskyldar leiðbeiningar
um það,
c. hann hefur borið eða verið kvaddur til að bera
vitni um atvik málsins af réttmætu tilefni eða verið
mats- eða skoðunarmaður um sakarefnið,
d. hann er eða hefur verið maki aðila, skyldur
eða mægður aðila í beinan legg eða að öðrum lið til
hliðar eða tengdur aðila með sama hætti vegna
ættleiðingar,
e. hann tengist eða hefur tengst fyrirsvarsmanni
eða málflytjanda aðila með þeim hætti sem segir í d-
lið,
f. hann tengist eða hefur tengst vitni í málinu
með sama hætti og segir í d-lið, mats- eða
skoðunarmanni eða manni sem neitar að láta af
hendi sönnunargagn,
g. fyrir hendi eru önnur atvik eða aðstæður sem
eru fallnar til þess að draga óhlutdrægni hans með
réttu í efa.“
í úrskurði þessum er álitaefnið það hvort skilyrði
g liðar 5. gr. séu fyrir hendi.
í úrskurði sínum frá 13. desember sl. komst
nefndin að þeirri niðurstöðu að álitaefni sem snerti
faglegt mat, umfjöllun og efnistök læknis í tilviki
sem því sem þar var til úrlausnar heyri ekki undir
hana og benti á ákvæði 3. mgr. 2. gr. laga um
læknaráð.
Úrskurði þessum var unað og er þetta álitaefni
ekki til efnislegrar meðferðar hér heldur hvort Bogi
Andersen hafi með ummælum sínum um
starfsbróður sinn, Högna Óskarsson, gerst brot-
legur við siðareglur Iækna.
Við meðferð þess máls kann að vera að Bogi láti
í Ijós skoðanir á framangreindum úrskurði
Siðanefndar frá 13. desember sl. og enda þótt vera
kunni að hann sé ekki sammála efnistökum
nefndarinnar eða niðurstöðu hennar veldur það
ekki því að óhlutdrægni nefndarmanna verði með
réttu dregin í efa. Pá er ekki sýnt fram á, og raunar
ekki haldið fram, að önnur þau atriði séu til staðar
er valda því að tilefni sé til þess að draga
óhlutdrægni þeirra er nefndina skipa í efa og því
engin efni til að verða við kröfu Boga Andersen um
að aðalmenn í Siðanefnd Læknafélags íslands víki
sæti við meðferð kæru Högna Óskarssonar á
hendur Boga.
ÚRSKURÐARORÐ
Aðalmenn í Siðanefnd Læknafélags fslands víkja
ekki sæti við meðferð á kæru Högna Óskarssonar á
hendur Boga Andersen.
Allan V. Magnússon
ÁsGEIR B. ELLERTSSON
Runólfgr Pálsson
Læknablaðið 2000/86 619