Læknablaðið - 15.09.2000, Blaðsíða 67
UMRÆÐA & FRÉTTIR / LÆKNINGAMINJASAFN
Ræða Sigurbjörns Sveinssonar
Mennlamálaráðherra, fjármálaráðherra,
þjóðminjavörður og aðrir góðir gestir.
Þegar Jón Steffensen, þá prófessor emeritus en
áður prófessor í líffærafræði við Læknadeild Háskóla
Islands, lést árið 1991, gaf hann Læknafélagi íslands
aðrar eigur sínar en húseign og bókasafn. Skyldi
læknafélagið ráðstafa erfðafénu til hagsbóta fyrir
lækningaminjasafn í Nesstofu. Um langt skeið hafði
áhugamenn urn sögu læknisfræðinnar dreymt um
veglega endurreisn Nesstofu og nýtt hlutverk hennar
og þessarar fallegu jarðar í Nesi við Seltjörn við
varðveislu og sýningu minja, sem tengjast sögu
lækninga hér á landi. Fór vel á því að draumurinn
snerist um Nes, þar sem Bjarni Pálsson, landlæknir,
hóf störf við lækningar og lyfsölu fyrir tæpum 240
árum. Er sú saga kunn og óþarfi að rekja hér.
Félag áhugamanna um sögu læknisfræðinnar
var stofnað í desember 1964 og var Jón Steffensen
formaður þess frá upphafi og til æviloka. Jón var
prófessor í líffæra- og lífeðlisfræði, en hafði um
langan aldur bæði sem fræði- og áhugamaður lagt
sig eftir viðfangsefnum eins og mannfræði,
uppruna Islendinga og sögu læknisfræðinnar.
Hann tók þátt í fornleifarannsóknum og annaðist
rannsóknir á fundnum mannabeinum fyrir
Þjóðminjasafnið um áratugi. Hann safnaði lengi
fornum lækningatækjum og hafði forgöngu um
endurreisn Nesstofu og stofnun lækninga-
minjasafns hér. Jón hlaut fjölda viðurkenninga
fyrir störf sín heima og heiman. Hann var meðal
annars kjörinn dr. med. honoris causa frá Háskóla
íslands 1971, kjörinn heiðursfélagi Læknafélags
íslands 1983 og stórriddari hinnar íslensku
fálkaorðu 1972.
Prófessor Steffensen var um margt sérstæður
maður og eftirminnilegur kennari. Muna flestir
íslenskir læknar, sem komnir eru á miðjan aldur
og umfram það, vel eftir þessum kennara sínum,
sem leiddi þá fyrstu árin í læknadeild. Hann var
læknissonur frá Akureyri; foreldrar hans voru
Valdemar Steffensen, læknir á Akureyri og Jenny
Petra Steffensen, fædd Larsen. Hún var af dönsku
foreldri. Jón lauk stúdentsprófi frá Mennta-
skólanum í Reykjavík 1924 og og kandídatsprófi í
læknisfræði frá Háskóla íslands 1930. Hann sótti
sér framhaldsmenntun til Þýskalands og síðar til
Bretlands og var skipaður prófessor í líffæra- og
lífeðlisfræði við Háskóla íslands 1937. Fékk hann
lausn 1970 en kenndi þó við læknadeildina í
nokkur ár til viðbótar. Jón birti fjölda ritgerða í
innlendum og erlendum vísindaritum og öðrum
ritum og fjölluðu flestar ritgerðirnar um þau
hugðarefni hans, sem áður er getið.
Sigurður Nordal sagði eitthverju sinni að
maðurinn lifði ekki af brauði einu saman, brauðið
héldi einungis í honum lífinu, maðurinn lifði af
ævintýrununum. Með dánargjöf Jóns Steffensens
hófst eitt lítið ævintýri af þessu tagi. Sjóðurinn frá
Jóni nemur um 44 milljónum króna sem nú er
ráðstafað „til hagsbóta fyrir lækningaminjasafn“
eins og Jón orðaði það sjálfur. Læknafélagið heldur
eftir nægjanlegri fjárhæð til greiðslu óhjákvæmilegs
kostnaðar, sem gerður verður upp á næsta ári, en
því, sem umfram verður, mun félagið skila til
Nesstofusafns.
Eftir ítarlegt samráð við áhugamenn um sögu
læknisfræðinnar sérstaklega formann þeirra,
Halldór Baldursson lækni, og að höfðu samráði við
forráðamenn Þjóðminjasafns og Menntamála-
ráðuneytið og með samþykki ríkisstjórnarinnar
festi stjórn Læknafélags íslands kaup á húsi hér í
grennd Nesstofu við Bygggarða 7 og nam kaupverð
hennar 33.000.000,- króna. Ljóst var að húsnæði
þetta gæti fullnægt bráðri þörf lækn-
ingaminjasafnsins fyrir viðunandi geymsluhúsnæði
og starfsaðstöðu minjavarðar og ef til vill
sýnaingaraðstöðu, þegar fram í sækti.
Til viðbótar verða ríkissjóði afhentar í dag
10.600.000,- krónur af reiðufé úr dánargjöfinni til
nauðsynlegra endurbóta á umræddri húseign. Auk
þess leggur Læknafélag íslands sjálft til tvær
milljónir króna úr félagssjóði sínum til að liðka
fyrir þessu verkefni. Aðalfundir Læknafélags
Islands hafa sýnt þessu málefni mikinn áhuga um
árabil og hefur vilji félagsmanna komið fram í
samþykktum aðalfunda um fjárframlög til
byggingar lækningaminjasafns.
I dag afhendir Læknafélag íslands safnverði
Nesstofusafns jafnframt fimm myndverk úr búi
Jóns Steffensen.
Sérhver vegferð hefst með fyrsta skrefinu. Allir
gera sér grein fyrir að ekki er verið að leysa
húsnæðismál lækningaminjasafnsins til frambúðar
að þessu sinni. Við ríkjandi aðstæður er þetta skref
hins vegar óhjákvæmilegt. Það er trú mín og von að
draumurinn um veglegt og sæmandi lækninga-
minjasafn í Nesi við Seltjörn verði að veruleika í
fyllingu tímans og verði ævintýri komandi kyn-
slóðum til andlegrar næringar.
Með þessum orðum vil ég biðja háttvirta
ráðherra um að undirrita með mér gjafagerning til
lúkningar þessu máli eins og áður hefur verið lýst.
Læknablaðið 2000/86 607