Læknablaðið - 15.09.2000, Blaðsíða 90
FRÁ HEILBRIGÐIS- OG TRYGGINGAMÁLARÁÐUNEYTINU OG LANDLÆKNI
Lyfjamál 88
Vaxandi notkun statína á íslandi
Spor í rétta átt
SÍÐUSTU ÁR HAFA MARGAR RANNSÓKNIR SÝNT að
minnka má mjög sjúkleika og dánartíðni einstaklinga
í mikilli hættu á kransæðasjúkdómum. Þessu má ná
með réttri meðferð og forvörnum þar sem notkun
blóðfitulækkandi lyfja er ein af mörgum leiðum. Oft
heyrist að þessi eða hinn lyfjaflokkurinn sé allt of
kostnaðarsamur fyrir þjóðfélagið.
Þegar litið er á statín verður að hafa í huga að
með réttri notkun þeirra má minnka kostnað í
öðrum geirum heilbrigðiskerfisins og bæta veru-
lega heilsu. í nýlegum leiðbeiningum um þetta efni
hefur verið ráðlagt að meta heildaráhættu hvers
einstaklings á hjartasjúkdómi og beina meðferð að
þeim sem eru í mestri hættu. Við hvaða áhættu er
miðað er nokkuð breytilegt en til að gera sér grein
fyrir hvar við stöndum má til dæmis bera okkur
saman við tölur frá Skotlandi. Þar hefur verið
áætlað, að verði allir með áhættu sem er 3% eða
meiri á hverju ári (á að fá kransæðastíflu eða deyja
vegna kransæðasjúkdóms) meðhöndlaðir séu það
um 9,3% af íbúm á aldrinum 35 til 64 ára. Miðað
við þessa áhættutölu, sem margir telja of háa og
vilja miða við 1,5%, fannst að af þessum 9,3%
voru allir sem þegar voru með kransæðasjúkdóm
(7,8%) og að auki 1,5% sem ekki höfðu þekktan
kransæðasjúkdóm. Til samanburðar má líta á
íslensku tölurnar þar sem um 36% þjóðarinnar eru
á aldrinum 35 til 64 ára og sé miðað við að nær allir
sem eru á statínum í dag séu á þessu aldursbili má
sjá að við erum að meðhöndla 9,2% af þessum
aldurshópi. Verði hins vegar miðað við lægri
áhættu (til dæmis 1,5%) má ætla að þessi tala
hækki ekki úr hófi því langstærsti hópurinn sem
þarfnast meðhöndlunar er sá sem er með þekktan
kransæðasjúkdóm og ætti í raun að vera nú þegar á
meðferð.
Sjá nánar heimasíðu landlæknisembættisins um
þetta efni:
http://www.landlaeknir.is/default.asp?lang=is&skj
al=06,05,01
Notkun statína (6 mán. tímabil jan-jún frá 1991)
Cerívastatín
Atorvastatín
□ Fluvastatín
■ Pravastatín
aLóvastatín
zSimvastatín
626 Læknablaðið 2000/86