Læknablaðið - 15.09.2000, Blaðsíða 87
UMRÆÐA & FRÉTTIR / BROSHORNIÐ
Af yfirlæknum og utanförum
Bjarni
Jónasson
skrifar
Sendið efni í anda
læknaskops í
Broshornið.
Læknablaðinu,
Hlíðasmára 8,
200 Kópavogi
eða í bréfsíma
564 4106
eða á netfang:
bjcirni.joimsson@
gb.hgst.is
Getið þess hver
sendir, en það sem
birtist verður undir
dulnefni.
Læknablaðið áskilur
sér rétt til að lagfæra
texta.
Höfundur er heilsugæslulæknir
í Garöabæ og stjórnarmaöur í
Nordisk Selskap for Medisinsk
Humor.
Leikið á yfirlækninn
Helgi Tómasson yfirlæknir er með hóp
læknanema í klínískri kennslu á Kleppi. Gengið er
fram á vistmann sem dregur tannbursta á eftir sér.
Helgi þekkir sitt fólk og segir við stúdentana: „Parna
sjáið þið einn, sem heldur að hann sé með hund í
bandi. Við skulum taka manninn tali.“ „Hvað er nú
það, sem þú dregur á eftir þér, Jón minn?“ „Pað er nú
bara tannbursti eins og sjá má“, svaraði Jón. Við svo
búið gengur hópurinn á brott. Jón snýr sér þá að
tannburstanum og segir: „Þarna lékum við aldeilis á
yfirlækninn, Snati minn.“
Ferðaágrip frá Danmörku
Hópur heimilislækna fór til Kaupmannahafnar vorið
2000 til að taka þátt í fundum um þunglyndi aldraðra.
Ferðin var hin áhugaverðasta í alla staði.
Nokkur minnisstæð atriði:
• A deild fyrir vistmenn með elliglöp á
hjúkrunarheimili í útjaðri höfuðborgarinnar eru
gardínur hengdar fyrir útidyr. Par hafa menn
öðlast þá reynslu, að fólk með elliglöp reynir
aldrei að fara út um glugga!
• Sumir Danir með elliglöp gleyma því með
tímanum að reykja!
• Hópnum var boðið að skoða sjúkrastofnun fyrir
geðveika í Hróarskeldu. Leiðsögumaðurinn þótti
vera fyndinn. Þegar komið var í kapelluna var
sögð sagan af prestinum sem var að predika og var
kominn að orðunum: „... svo sagði frelsarinn við
lærisveinana...“. Þá heyrðist úr söfnuðinum: „Nei,
það hef ég aldrei sagt.“
• Áfram var haldið og þegar gengið var fram hjá
grafreit stofnunarinnar var sögð sagan af
kvennabósanum, sem þótti svo kræfur til kvenna,
að Casanova var eins og skírlífismaður í
samanburði. Daninn fékk ósk sína uppfyllta,
þegar skrifað var á legsteininn: „Her hviler mine
bene för förste gang alene.“ í heimilislækna-
hópnum voru margir ágætir dönskumenn, en
Steinunn var fljótust allra að snara textanum yfir á
ástkæra, ylhýra: „Hér hvfla mín bein í fyrsta skipti
ein.“
Gagnslaus pilla
Sigurjón kom til læknisins og bað um aðstoð. „Ég
held að eina ráðið fyrir okkur hjónin sé, að ég verði
tekinn úr sambandi. Við höfum verið gift í sjö ár og á
hverju ári hefur barn komið undir. Við höllumst helst
að því að venjulegar getnaðarvarnir séu gagnslausar
fyrir okkur.“
„Getnaðarvarnarpillan sem ég skrifaði út í byrjun
ársins hefur þá ekki dugað“, spurði læknirinn.
„Jú, til að byrja með. Konan setti hana á milli
hnjánna á hverju kvöldi þannig að mér var ómögulegt
að komast nálægt henni. En svo gleymdi hún pillunni
eitt kvöldið og þá var ekki sökum að spyija að hún
varð ólétt.“
Bindindi í ellinni
Áttatíu og fimm ára karl kom í reglubundið eftirlit á
stofu til Iæknisins. Eftir að hafa hlustað öldunginn og
skoðað hann frá toppi til táar, segir læknirinn: „Ef þú
hættir að reykja og drekka gætirðu lifað það að verða
hundrað ára.“ „Kallarðu það að lifa“, sagði sá gamli
og gaf lækninum illt auga.
Nákvæmari rannsókn
Eldri kona var flutt á bráðamóttöku með brjóstverk.
Hún var rannsökuð í þaula með blóðprufum,
röntgenmyndum og hjartalínuriti, svo fátt eitt sé
nefnt. Brátt fer konunni að líða betur, en gerist
óþolinmóð meðan beðið er eftir niðurstöðum úr
öllum rannsóknunum. Loks brestur þolinmæðin
alveg og hún segir við lækninn: „Úr því að ég hef svo
lengi borgað það sem mér ber í skatta og þar með til
heilbrigðisþjónustunnar í þessu landi, vil ég að þú
athugir hjá mér gyllinæðina á meðan við bíðum.“
Eitthvað við taugunum
Verið var að útskrifa einn af góðkunningjum
læknanna á geðdeildinni, sem hafði margoft verið
lagður inn vegna inntöku á of stórum skömmtum af
róandi töflum.
Læknirinn reynir hvað hann getur til að sýna
sjúklingnum skilning og samhygð, en hvorugt er
auðvelt vegna skorts á innsæi sjúklingsins. Lækninum
fellur svo allur ketill í eld, þegar sjúklingurinn, sem
enn er óstöðugur á fótunum, segir hálfdrafandi
röddu: „Heldurðu að þú gefir mér ekki eitthvað til að
róa taugarnar áður en ég fer, elsku vinur?“
Dýr varta
„Læknir, hvað kostar að skera burtu vörtuna af
lærinu á mér?“
„Fimm þúsund og níu hundruð krónur."
„Fimm þúsund og níu hundruð kall fyrir nokkurra
mínútna vinnu?“
„Já, en ef þú vilt get ég skorið hana burt mjög
hægt“.
Læknablaðið 2000/86 623