Fjarðarpósturinn


Fjarðarpósturinn - 10.04.2014, Blaðsíða 3

Fjarðarpósturinn - 10.04.2014, Blaðsíða 3
www.fjardarposturinn.is 3 Fimmtudagur 10. apríl 2014 Útgefandi: Keilir ehf. kt. 480307-0380 Fjarðarpósturinn, Bæjarhrauni 2, 220 Hafnarfirði Vinnsla: Hönnunarhúsið ehf. Ritstjóri: Guðni Gíslason Ábyrgðarmaður: Steingrímur Guðjónsson. Ritstjórn: 565 4513, 896 4613, ritstjorn@fjardarposturinn.is Auglýsingar: 565 3066, auglysingar@fjardarposturinn.is Prentun: Steinmark ehf. • Dreifing: Íslandspóstur ISSN 1670-4169 Vefútgáfa: ISSN 1670-4193 www.fjardarposturinn.is www.facebook.com/fjardarposturinn www.facebook.com/fjardarposturinn Fjölskyldutilboð Sótt og í sal 4 ostborgarar m/ frönskum og kokteilsósu 3.990,- Bílaborgarinn m/ frönskum og kokteilsósu og 0,5 l Coke 1.490,- Flatahrauni 5a • sími 555 7030 www.burgerinn.is © F ja rð ar pó st ur in n 20 13 11 Hafnfirska hljómsveitin Milkhouse var valin hljómsveit fólksins á úrslitakvöldi Músik- til rauna í Hörpu síðastliðinn laugardag. Alls kepptu 44 hljómsveitir en 10 hljómsveitir kepptu til úrslita. Dómnefnd valdi hljómsveitina Vio í fyrsta sæti. Milkhouse er skipuð af fimm hafnfirskum 18 ára mennt skæl- ingum. Þeir eru hver í sínum framhaldsskólanum og hafa spilað saman í tvö ár. Hljóm- sveitin spilar indie tónlist með djass og popp ívafi. Hljómsveitina skipa: Andrés Þór Þorvarðarson, trommur; Auðunn Orri Sigurvinsson, bassi; Katrín Helga Ólafsdóttir, söngur og synth; Sævar Andri Sigurðarson, píanó og Victor Karl Magnússon, píanó og melódíka. „Við höfum öll þekkst lengi og erum því þéttur vinahópur sem finnst fátt skemmtilegra en að semja tón list, æfa og koma fram á tón leikum.“ Músiktilraunir 2014 Milkhouse valin hljómsveit fólksins Hljómsveitin Milkhous með verðlaunin: Andrés Þór Þorvarðarson, Auðunn Orri Sigurvinsson, Victor Karl Magnússon, Sævar Andri Sigurðsson og Katrín Helga Ólafsdóttir. Lj ós m .: B ry nj ar G un na rs so n Ástjarnarkirkja blæs til rokk- messu á sunnudaginn kl. 20 í Víðistaðakirkju. Þetta verður stærsti tónlistarviðburður kirkj- unnar á þessu vormisseri. Kór kirkjunnar syngur lög eftir Led Zeppelin, Janis Joplin, U2, Kiss o. fl. Flest þeirra verða sungin með glænýjum íslenskum textum sem hafa trúarlegan boð- skap. Söngvararnir Páll Rósin- kranz og Áslaug Helga Hálf- dánar dóttir munu syngja með kórnum auk kórfélaganna, Ás - laugar Fjólu og Kristjönu Þór- eyjar. Valinkunnir tónlistarmenn munu annast undirleik, Friðrik Karlsson á gítar, Friðþjófur Ísfeld á bassa, Þorbergur Ólafs- son á slagverk, Bjartur Elí Friðþjófsson á gítar og Matthías V. Baldursson á píanó en hann stjórnar jafnframt tónlistinni. Prestur verður sr. Kjartan Jónsson, sóknarprestur Ástjarn- ar kirkju. Ástjarnarkirkju vill með þessu framtaki koma til móts við óskir fólks um nýrri tón list í kirkjunni. Allir eru vel- komnir og eins og ávallt þá er að gangur ókeypis í þessari guðsþjónustu. Rokkmessa Led Zeppelin, Janis Joplin, U2, Kiss og fl. Troðfullt var út að dyrum þegar Ástjarnarkirkja hélt U2 messu fyrir nokkrum árum. Lj ós m .: G uð ni G ís la so n

x

Fjarðarpósturinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fjarðarpósturinn
https://timarit.is/publication/945

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.