Fjarðarpósturinn


Fjarðarpósturinn - 10.04.2014, Blaðsíða 11

Fjarðarpósturinn - 10.04.2014, Blaðsíða 11
www.fjardarposturinn.is 11 Fimmtudagur 10. apríl 2014 Íþróttir Handbolti: 10. apríl kl. 19.30, Kaplakriki FH - HK úrvalsdeild karla 10. apríl kl. 19.30, Ásvellir Haukar - Akureyri úrvalsdeild karla 11. apr. kl. 19.30, Strandgata ÍH - KR 1. deild karla 14. apríl kl. 19.30, Ásvellir Haukar - ÍBV úrvalsdeild karla 14. apríl. kl. 19.30, Austurberg ÍR - FH úrvalsdeild karla Handbolti úrslit: Konur: Haukar - Valur: 17-20 FH - ÍBV: 19-21 Valur - Haukar: 31-20 ÍBV - FH: 25-17 Körfubolti úrslit: Konur: Snæfell - Haukar: 69-62 Haukar - Snæfell: 72-75 Haukar úr leik Kvennalið Hauka í körfu- knattleik tapaði einvíg inu um Íslandsmeistaratitilinn gegn Snæfelli 0-3. Haukastúlkur geta þó staðið knarreistar eftir veturinn, töp- uðu úrslita leikj unum naumt og hampa bikar meistar titl- inum eftir sigur á hinu sama liði Snæfells. PANTAÐU Á NETINU OG FÁÐU AFSLÁTT REYKJAVÍKURVEGI 60 – SÍMI 561 0562 Er einhver HEIMA? Tónlistarhátíð í heimahúsum síðasta vetrardag Menningar- og listafélag Hafn ar fjarðar spyr bæjarbúa hvort þeir verði ekki örugg lega heima að kvöldi síðasta vetrar dags, 23. apríl, en þá verður tón listar- hátíðin Heima haldin hér í bæ. Hug myndin að há tíð inni kemur frá Fær eyjum en Færey- ing ar segjast reyndar hafa fengið hugmyndina frá Íslend ingum. Hugmyndin bygg- ist á því að tónlistarmenn úr ým um áttum halda stutta tón- leika í 10-12 heimahúsum mið- svæð is í bænum og hátíðar- gestirnir rölta á milli húsa og hlusta og njóta. Þeir áhuga- sömustu og sprett hörðustu ættu jafnvel að geta náð 4-5 tónleikum á kvöldinu en dagskráin stendur frá kl. 20 til 23. Þessi aðferð hefur reyndar verið prófuð í litlum stíl á Björt um dögum og gafst vel. Meðal þeirra listamanna sem staðfest hafa komu sína á Heima hér í bæ eru Fjallabræður, Bjart- mar Guðlaugsson, Vök og DossBaraDjamm. Sér- stakur gest ur hátíðar- innar verður tón list ar - mað urinn Hallur Joen sen frá Fær eyj- um. Hann er skærasta kántrí stjarna Færeyja og á með al gesta á nýjustu plötu hans eru Kris Kris tof- ferson og Charley Pride. MLH óskar hér með eftir áhugasömum Hafnfirðingum sem eru tilbúnir í að opna heimili sín og breyta þeim eina kvöld- stund í vinalegan tónleikastað fyrir bestu tónlistarmenn lands- ins og hátíðargesti. Gott er ef heim ilin geta rúmað a.m.k. 20 gesti. Þeir sem hafa áhuga á að taka þátt í þessari frumraun á Heima hafi sam band við Kristinn Sæmundsson í síma 8600631 eða kiddisaem@gmail.com. Framboðslisti Vinstrihreyf- ingar innar - græns framboðs vegna komandi sveitarstjórnar- kosning anna var samþykktur á almenn um félagsfundi á laugar- daginn. Í 10 efstu sætum eru: 1. Guðrún Ágústa Guðmunds dóttir, bæjarstjóri 2. Elva Dögg Ásudóttir Kristinsdóttir, lögmaður 3. Sverrir Garðarsson, háskóla­ nemi og knattspyrnumaður 4. Júlíus Andri Þórðarson, verk ­ efna stjóri og há skóla nemi 5. Birna Ólafsdóttir, skrifstofu­ stjóri 6. Gestur Svavarsson, banka maður 7. Valgerður Fjölnisdóttir, nemi 8. Þorbjörn Rúnarsson, framhaldsskólakennari 9. Ragnheiður Gestsdóttir, rithöfundur 10. Daníel Haukur Arn ars son, starfsmaður Vinstri grænna. Listi Vinstri grænna samþykktur Guðrún Ágústa Blár dagur einhverfu Engir tveir einstaklingar með einhverfu eins Í tilefni af alþjóðlegum degi einhverfu, 2. apríl, klæddust margir einhverju bláu. Í Huldu- heimur, 1. bekk í Áslandsskóla eru tvö börn með einhverfu og mættu að sjálfsögðu í bláu. 5 ára leikskólabörn frá Tjarnarási voru í heimsókn þegar blaðamaður Fjarðarpóstsins kíkti við og var mikil gleði í hópnum. Edda Karen Haraldsdóttir, varaformaður Styrktar félags barna með einhverfu segir mikla áherslu nú vera á að upplýsa um einhverfu, en hún segir enga tvo eins. Lesa má um einhverfu á www.einhverfa.is Barn sem er greint með röskun á einhverfurófi á við verulega erfiðleika að etja á þremur sviðum: • skerta færni til að taka þátt í félagslegum samskiptum • skerta færni í máli og tjáskiptum • sérkennilega og áráttu­ kennda hegðun Mikill munur getur verið á því hvernig þessir erfiðleikar koma fram hjá hverju barni. Helstu erfiðleikar flestra barna tengjast félags legum samskiptum en meg in vandamál annarra er ósveigjanleg hugsun. Lj ós m .: G uð ni G ís la so n

x

Fjarðarpósturinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fjarðarpósturinn
https://timarit.is/publication/945

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.