Fjarðarpósturinn - 10.04.2014, Síða 4
4 www.fjardarposturinn.is Fimmtudagur 10. apríl 2014
Umhverfismál eru stórmál
Öll erum við hluti af umhverf-
inu og höfum áhrif á það með
mismunandi hætti. Vitund okkar
á umhverfinu hefur aukist
verulega hin síðari ár, okkur er
ekki sama á hvern hátt
gengið er um landið
okkar og hvaða efnum
er blásið út í andrúms-
loftið. Fjölmargar sam-
þykktir hafa litið dags-
ins ljós og er ein þeirra
„Umhverf i ss te fna
Hafn ar fjarðar“ sem er
al mennt orðuð stefna.
Einnig er Hafnarfjörður
ásamt langflestum
sveit ar félögum aðili að „Stað-
ardagskrá 21“ sem er áætlun um
það hvernig vinna skuli að
sjálfbærri þróun, hvernig vinna
skuli að betri lífsgæðum og betra
samfélagi nær og fjær, í nútíð og
í framtíð.
Hvar stöndum við
Hafnfirðingar?
Eftir að hafa að gefnu tilefni
lagt fram tillögur um átak í
hreinsun iðnaðarsvæða og eftir
að slíkt átak hafi eftir það farið
tvisvar fram þá finnst mér að
langt sé í land með að umgengni
á iðnaðarsvæðum og hafnar-
svæðinu sé með þeim hætti að
ásættanlegt sé. Þó svo að mörg
fyrirtæki séu til fyrirmyndar þá
eru því miður fyrirtæki sem
mættu taka sig verulega á í um -
gengnismálum. Bæjar búar hafa
tekið Blá tunnunni vel, papp inn
er að skila sér og ein hverjir eru
þeirrar skoðunar að við eigum að
ganga en lengra í flokkun
heimilis úr gangs. Nokkrir skólar
og leikskólar í Hafnar firði hafa
tekið upp Græn fánann sem er
jákvætt og spennandi verkefni en
margir skólar og leikskólar á
Íslandi eru á grænni
grein með Græn fánann
sem er alþjóðlegt verk-
efni til að auka um -
hverfis mennt og styrkja
um hverfisstefnu í
skólum. Einnig er
höfn in að skoða Blá-
fánaverk efnið sem er
sérstakt verkefni um
umhverfis mál smá-
bátahafna.
Til hvers umhverfisstefna?
Rekstrarkostnaður þeirra skóla
og leik skóla sem hafa tekið upp
Grænfánann er mun lægri en
þeirra sem hafa ekki gert það,
það eitt ætti að vera hvati til þess
að hefja undirbúning að komast
á Græna grein auk þess sem er
aðalatriðið að umhverfisvitund
nemenda eykst með upptöku
Grænfánans. Bærinn þarf að
vera í fararbroddi með skýrri
umhverfisstefnu sem er fram-
fylgt og hvetja með markvissum
hætti fyrirtæki og einstaklinga að
taka upp umhverfisvænan hugs-
un ar hátt. Kostir þess að Hafnar-
fjörður verði í fararbroddi í
um hverfismálum eru augljósir,
lífsgæði okkar aukast og fyrir-
tæki fá jákvæðari ímynd. Góð
umhverfisstefna sem er framfylgt
sparar peninga auk þess sem hún
bætir umhverfið.
Höfundur er varabæjar full
trúi fyrir Sjálfstæðisflokkinn.
Ó. Ingi
Tómasson
Grensásvegi 18 . 108 Reykjavík
Sími: 510 0000 . garri@garri.is
Heildarlausnir
í hreingerningavörum
fyrir heimili og fyrirtæki.
Allt á sama stað.
BESTA
– HREYFILSHÚSINU
FATABREYTINGAR & VIÐGERÐIR síðan 2001
BREYTT, BÆTT & NÝTT/Tvinnakeflið
Hefur flutt
á Hvaleyrarholtið.
MELABRAUT 29
í sama hús og verslun 10/11
Opið 12-17 virka daga
Lokað á mánudögum.
Jakobína Kristjánsdóttir,
kjólaklæðskeri.
Sími: 847 4684
HV
AL
EYR
AR
BR
AU
T
HVALEYRARBRAUT
SU
ÐU
RB
RA
UT
SU
ÐU
RB
RA
UT
REYK
JANE
SBRA
UT
Á
SB
R
A
U
T
SUÐURBÆJARLAUG
MELABRAUT 29
ME
LA
BR
AU
T
Björt framtíð birtir listann í dag
Guðlaug Kristjánsdóttir,
sjúkra þjálfari og formaður
BHM leiðir lista Bjartrar fram-
tíð ar í sveitar stjórnarkosn ing-
un um í Hafnarfirði í vor. Segir
hún veturinn hafa verið mjög
líflegan og skemmtilegan og að
vorið leggst vel í hópinn. „Svo
er bara að sjá hvort bæjarbúum
líkar við hugmyndir okkar um
blómlegan, öflugan og umfram
allt skemmtilegan Hafnarfjörð.
Okkar einu kosningaloforð eru
að vera jákvæð, bjartsýn og
mál efnaleg,“ segir Guðlaug er
Fjarðarpósturinn leitaði eftir
staðfestingu á lista efstu manna
sem blaðið hafði undir höndum.
Listann skipa:
1. Guðlaug Kristjánsdóttir,
sjúkraþjálfari og form. BHM
2. Einar Birkir Einarsson,
kerfisfræðingur, fram
kvæmda stjóri
3. Borghildur Sturludóttir,
arkitekt
4. Pétur Óskarsson, rekstrar
hagfræðingur, framkvæmda
stjóri
5. Helga Björg Arnardóttir,
klarínettuleikari og
tónlistarkennari
6. Hörður Svavarsson,
leikskólastjóri
7. Matthías Freyr Matthíasson,
námsmaður og starfsmaður
barnaverndar
8. Lilja Margrét Olsen,
héraðsdómslögfræðingur
9. Karólína Helga Símonar
dóttir, mannfræðingur og
námsmaður
10. Hlini Melsteð Jóngeirsson,
kerfisstjóri
F.v.:Einar, Hörður, Lilja Margrét, Karólína, Hlini, Matti, Borghildur, Helga Björg, Pétur og Guðlaug.
Brynjar Dagur Albertsson úr
Hvaleyrarskóla keppir í undan-
úrslitaþætti „Ísland got talent“ á
sunnudaginn. Brynjar Dagur er
15 ára og hefur æft breikdans um
nokkurt skeið í Kramhúsinu en
Hip Hop dans hjá Dansskóla
Brynju Péturs í um eitt og hálft ár.
Popping dansinum kynntist
hann þegar erlendur gestakennari
kom hingað til lands seint um
haustið 2012 og hefur hann frá
þeim tíma lært mest sjálfur með
því að skoða vel Youtube mynd-
bönd en hefur einnig sótt nám-
skeið hjá erlendum gestakenn-
urum þegar þau hafa verið í boði.
Hann hefur, tvö ár í röð, sigrað
í popping flokknum í dans-
keppninni „Streetdanseinvígið“
sem er haldin ár hvert á vegum
dans skóla Brynju Péturs. Þar að
auki sigraði hann einnig með
dans hópnum sínum „Cyborgs“ í
síðustu keppni.
Brynjar Dagur semur öll sín
atriði sjálfur. Hafnfirðingar eru
hvattir til að styðja við bakið á
þessum hæfileikaríka dansara.
Brynjar Dagur dansar
popping í „Ísland got talent“
Brynjar Dagur keppir í „Íslands got talent“ á sunnudaginn.
Lj
ós
m
.:
H
ör
ðu
r Á
sb
jö
rn
ss
on
Hraðast á 51
Brot 17 ökumanna voru
mynduð á Álfaskeiði á þriðjudag.
Fylgst var með ökutækjum sem
var ekið Álfaskeið í norðurátt, á
móts við Mávahraun. Á einni
klukkustund, fyrir hádegi, fóru
89 ökutæki þessa akstursleið og
því ók tæplega fimmtungur
ökumanna, eða 19%, of hratt eða
yfir afskiptahraða. Meðalhraði
hinna brotlegu var 42 km/klst en
þarna er 30 km hámarkshraði. Sá
sem hraðast ók mældist á 51.
Bæjarblaðið fer inn á
öll heimili og fyrirtæki
í Hafnarfirði
Hvar auglýsir þú?