Fjarðarpósturinn - 10.04.2014, Page 10
10 www.fjardarposturinn.is Fimmtudagur 10. apríl 2014
húsnæði óskast
Einstæð móðir með 1 barn óskar
eftir 3ja herbergja íbúð í Hafnar
firði (helst uppá Holti) frá 1. maí.
Öruggar greiðslur. Greiðslugeta c.a
130.000. Uppl. í s. 823 4635. Inga.
þjónusta
Tölvuviðgerðir alla daga, kem á
staðinn, hægstætt verð.
Sími 664 1622 587 7291.
Tölvuaðstoð og viðgerðir
Viðgerðir og kennsla í tölvunotkun.
Apple* & Windows.
Kem í heimahús. Sími 849 6827
hjalp@gudnason.is
Ráðgjöf um þyngd ar
stjórnun. Líkam legt
ástand mælt með
skanna. FB: „Yngj andi
og orku ríkara líf“.
Gerð ur Hannes dóttir
lífs stíls leiðbein andi
gsm 865 4052
ghmg@internet.is
Húsamálari getur málað hjá þér
fyrir páska.
Uppl. í síma 779 2965.
Bílaþrif. Kem og sæki.
Alþrif, þvottur, bón og vélarþvottur.
Úrvals efni. Hagstætt verð.
Uppl. í s. 845 2100.
Trjáklippingar.
Nú er rétti tíminn til að klippa tré og
runna. Hagstætt verð. Geri tilboð.
Uppl. í s. 845 2100.
smáauglýsingar
aug l y s i n gar@f jardarpos t u r i n n . i s
s ím i 5 6 5 3 0 6 6
A ð e i n s f y r i r e i n s t a k l i n g a . V e r ð
a ð e i n s 5 0 0 k r. m . v . m a x 1 5 0 s l ö g .
M y n d b i r t i n g 7 5 0 k r.
Ta pað - f u n d i ð o g fæs t g e f i n s : FR Í TT
Bragi sýnir ljósmyndir
Sýning Braga J. Ingibergssonar (Brin)
sýnir ljósmyndir í Menningarsalnum á
Hrafnistu. Sýningin er opnuð í dag kl.
13.30 og stendur til miðvikudagsins
14. maí. Bragi er áhugaljósmyndari,
fæddur árið 1961 í Dölum. Ljósmynd
un hefur verið hans aðaláhugamál til
fjölda ára; 12 ára gamall fékk hann
sína fyrstu myndavél og hefur tekið
myndir alla tíð síðan. Bragi fæst aðal
lega við landslags og náttúru
ljósmyndun. Bragi hefur starfað sem
sóknarprestur í 25 ár, fyrst á Siglufirði
og nú í Víðistaðakirkju.
Aðalfundur og Sahaja jóga
Sálarrannsóknarfélagið í Hafnarfirði
heldur aðalfund í kvöld kl. 20 í Gúttó
við Strandgötu. Sveinn Eyþórsson
verður með stutta hugleiðslu og
kynningu á Sahaja jóga. Allir vel
komnir. Frítt inn.
Málverkasýning Líneyjar
Málverkasýning Líneyjar Frið finns
dóttur stendur yfir í safnaðarsal Víði
staðakirkju. Þetta er fyrsta einkasýning
hennar.
Afmæliskaffi á Ásvöllum
12. apríl 1931 komu 13 ungir piltar
saman í húsi KFUM í Hafnarfirði og
stofnuðu Knattspyrnufélagið Hauka. Í
tilefni þess að 83 ár eru liðin frá þess
um merka degi er Haukafélögum og
velunnurum boðið í afmæliskaffi á
Ásvöllum laugardaginn 12. apríl frá
kl. 14 til 15.
Sally og Mo í 002 Galleríi
Sally og Mo verða á góðu róli í 002
Gallerí um helgina. Sýningin (gjörn ing
urinn) verður opnuð kl. 14 á laug ar
daginn og verður opinn til kl. 17 á
laug ar dag og sunnudag. 002 Gallerí
er íbúð og vinnustofa mynd lista
manns ins Birgis Sigurðssonar, sem
hefur starfrækt þetta óvenjulega gallerí
um þriggja ára skeið í kjallaraíbúð
sinni í blokk að Þúfubarði 17.
Sjoppusýning í Hafnarborg
Í Hafnarborg standa yfir tvær sýningar,
Shop Show, sýning á norrænni sam
tíma hönnun sem lætur sig varða um
hverf is mál og sjálfbærni er á efri hæð
safns ins og sýningin Hnall þóra í sól
inni, úrval prent og bókverka eftir
Diet er Roth er í Sverrissal.
menning & mannlíf
Loftnet - netsjónvarp
Viðgerðir og uppsetning á loftnetum,
diskum, síma- og tölvulögnum,
ADSL/ljósleiðurum, flatskjám og
heimabíóum. Húsbílar - hjólhýsi!
Loftnetstaekni.is
sími 894 2460
Blómstrandi bær
Á undanförnum misserum
hefur verið töluverð gróska í
miðbænum og mörg fyrirtæki
sem einkum tengjast verslun og
hönnun komið sér fyrir í nálægð
við miðbæinn og höfn-
ina. Áberandi í þessari
fyrirtækjaflóru eru
konur sem opnað hafa
verslanir með fatnað,
skart og ýmiss konar
hönnun á Strandgötunni
sem nú þegar eru farnar
að vekja athygli langt
út fyrir bæjarmörkin.
Fleiri svæði hafa verið
að sækja í sig veðrið,
m.a. Fjarðargatan, svæðið við
smábátahöfnina, Norðurbakkinn,
Reykjavíkurvegurinn og hraunið
– Þarna hafa lítil og meðalstór
fyrirtæki á sviði veitingareksturs,
skapandi greina og hönnunar
komið sér fyrir og auka á
fjölbreytni í verslun og þjónustu.
Þetta er afar jákvæð þróun og
mikilvægt að styðja frekar við
þessa vaxtarbrodda.
Áframhaldandi uppbygging
Ég sé gífurleg tækifæri í því að
byggja áfram upp miðbæinn
okkar. Endurlífgun Bæjarbíós
verður vonandi að veruleika svo
við bæjarbúar fáum að njóta
viðburða í því fallega húsi í
auknum mæli. Gamla íshúsið
hýsir nú bæði listamenn og
hönnuði og gaman væri að sjá
frekari menningarstarfsemi þró-
ast þar. Á svæðinu við smábáta-
höfnina er ákveðin uppbygging
einnig hafin en það svæði, ásamt
Norðurbakka, er kjörið
til versl unar- og veit-
inga rekst urs ásamt ann-
arri þjón ustu sem teng-
ist höfn inni – hvala-
skoðun, sjó stanga veiði
og skemmti siglingum –
enda má segja að þetta
svæði sé andlit bæjarins
gagn vart þeim ferða-
mönn um sem hingað
koma með skipum.
Við viljum hafa líf í miðbænum
og því er mikilvægt að hlúa vel
að þeirri uppbyggingu sem
augljóslega er hafin. Nú þegar er
fólk farið að gera sér ferð í
Fjörðinn til að kíkja í búðir og
fara á kaffihús, heimsækja jóla-
þorpið í desember og víkinga-
markaðinn í júní. Vel heppnaður
„langur laugardagur“ er svo enn
eitt dæmið um jákvæða þróun í
miðbænum sem er vonandi
komin til að vera. Við eigum að
halda áfram á þessari braut og
efla Hafn ar fjörð sem bæ menn-
ingar viðburða, lista og hönn-
unar.
Höfundur er framhaldsskóla
kennari og skipar 3. sæti á lista
Samfylkingarinnar.
Adda María
Jóhannsdóttir
Dalshrauni 24 • 220 Hafnarfir›i • www.steinmark.is
Prentsmi›jan Steinmark
Stofnað 1982
Stuttur afgreiðslutími á:
Skýrslum
Ritgerðum
Boðskortum
Nafnspjöldum
Gestir í hesthúsum og glæsilegar sýningar
Góð þátttaka var á opnu húsi hjá Sörla sem fagnaði 70 ára afmæli sínu nýlega
Félagar í Sörla buðu bæjar-
búum í heimsókn sl. föstudag og
þáðu margar boðið. Jafnframt
var boðið upp á hestasýningar og
heit kjötsúpa var í boði fyrir þá
sem vildu.
Krakkar voru í aðalhlutverkum
í reiðhöllinni og sýndu hæfileika
sína og glæsilega hesta.
Það má hafa svolítið gaman
að hestamennskunni. T.v.:
Fjörugt riðið í reiðskemmunni.
Unga fólkið glæsilegt og sýndi hvað í því býr.
Beðið eftir góðgæti.
Lj
ós
m
yn
di
r:
G
uð
ni
G
ís
la
so
n
Vinningar
Strákarnir í 4.fl. FH hafa
unnið hörðum höndum að
söfnun fyrir ferð á fótboltamót í
Svíþjóð í sumar. Seldu þeir m.a.
happdrættismið með mörgum
glæsilegum vinningum. Vinn-
ing ar komu á eftirfarandi nr.:
4, 6, 14, 15, 28, 40, 59, 62, 74,
82, 85, 97, 105, 114, 116, 126,
135, 140, 146, 153, 157, 168,
175, 183, 189, 192, 239, 250,
294, 295, 309, 330, 332, 335,
346, 374, 405, 453, 473, 510,
523, 553, 583, 588, 616, 642,
649, 654, 665, 668, 671, 680,
681, 684, 687, 692, 704, 714,
729, 734, 742, 753, 755, 769,
774, 779, 787, 790, 814, 853,
861, 870, 899, 903, 925, 932,
935, 943, 961, 998, 1020, 1044,
1046, 1062, 1130, 1144, 1145,
1167, 1180, 1183, 1198.
Vinninga má vitja þriðjudag
15. apríl og miðvikudag 16.
apríl að Víðivangi 14. Sjá nánar
á www.fh.is