Fjarðarpósturinn


Fjarðarpósturinn - 08.05.2014, Blaðsíða 2

Fjarðarpósturinn - 08.05.2014, Blaðsíða 2
2 www.fjardarposturinn.is Fimmtudagur 8. maí 2014 Útgefandi: Keilir ehf. kt. 480307-0380 Fjarðarpósturinn, Bæjarhrauni 2, 220 Hafnarfirði Vinnsla: Hönnunarhúsið ehf. Ritstjóri: Guðni Gíslason Ábyrgðarmaður: Steingrímur Guðjónsson. Ritstjórn: 565 4513, 896 4613, ritstjorn@fjardarposturinn.is Auglýsingar: 565 3066, auglysingar@fjardarposturinn.is Prentun: Steinmark ehf. • Dreifing: Íslandspóstur ISSN 1670-4169 Vefútgáfa: ISSN 1670-4193 www.fjardarposturinn.is www.facebook.com/fjardarposturinn RAGNAR SCHEVING ÚTFARARÞJÓNUSTA ÓLÖF HELGADÓTTIR ÚTFARARÞJÓNUSTA HÁLFDÁN HÁLFDÁNARSON ÚTFARARSTJÓRI FRÍMANN ANDRÉSSON ÚTFARARSTJÓRI FJÖLSMÍÐ LÍKKISTUVINNUSTOFA Síðan 1993 Stapahraun 5 220 Hafnarfjörður www.uth.is uth@simnet.is 565-9775 Enginn veit hvernig úrslitin verða í sveitarstjórnarkosningunum hér í bæ. Kannski ætti að vera forkeppni eins og í Júróvissjón og aðeins fáir kæm- ust áfram. Eflaust væru bæjarbúar ekki eins ánægðir og þegar Pollapönk komst áfram. Þá sameinuðust Hafn- firð ingar um að vera stoltir af sinni sveit. Ég var einn þeirra sem varð fyrir miklum vonbrigðum þegar lagið var allt flutt á ensku. Hefði ég viljað heyra kjarnyrt tungumálið okkar. En Pollapönkarar stóðu sig mjög vel og verða verðugir fulltrúar okkar í lokakeppninni á laugardag. Við Hafnfirðingar eigum svo margt hæfileikafólk á öllum sviðum. Njótum og styðjum. Fjölmargir starfmenn Hafnarfjarðarbæjar brutu upp daginn hjá sér á föstudaginn og fóru út að tína upp drasl í tilefni af hreinsunardögum. Það er virðingarvert þegar fólk gerir slíkt og mættu fleiri fyrirtæki og einstaklingar fara að þeirra fordæmi, eins og ýmsir reyndar gera. Hitt væri þó ennþá betra ef við kæmum í veg fyrir að allt þetta drasl fyki út um allt. Af hverju hendir fólk rusli á götuna? Af hverju hendir reykingarfólk sígarettustubbum á götuna? Af hverju skilur fólk eftir heilu ruslapokana og einnota grillin við Hvaleyrarvatn? Fólk kvartar yfir að ekki séu alls staðar ruslafötur í stað þess að taka sitt drasl með sér heim. Bæjarstjóri kallar eftir umboðsmanni bæjarbúa, ég kalla eftir umhverfislöggu og meiri fræðslu í skólum um umgengni og virðingu fyrir umhverfinu. Hér hefur fólk t.d. fengið að krota á hús og byggingar án afskipta. Verða aðgerðir aðrar en bara samþykktir í bæjarstjórn? Það þarf viðhorfsbreytingu í bænum! Fjarðarpósturinn hefur þjónað Hafnfirðingum í yfir 30 ár. Hann er ekki rekinn af styrktarfé en auglýsingasala er eina tekjulindin. Hafnarfjarðarbær hefur eðlilega verið einn stærsti einstaki auglýsandinn enda getur Fjarðarpósturinn veitt þá þjónustu sem sóst er eftir. Auglýsendur vilja að árangur sé af auglýsingum sem þeir kaupa og það er ástæða þess að auglýsendur hafa verið tryggir viðskiptavinir Fjarðarpóstsins. Fjarðapósturinn hefur einnig þjónað Hafn ar fjarðarbæ og birt frítt tilkynningar, upplýsingar og verið með í að stuðla að betra bæjarlífi. Stjórnmálaflokkarnir hafa ríkulega nýtt sér blaðið til greinarskrifa enda er Fjarðarpósturinn opinn öllum. Guðni Gíslason ritstjóri. leiðarinn 35 ár Stolt að þjóna ykkur Útfararskreytingar kransar, altarisvendir, kistuskreytingar, hjörtu Bæjarhrauni 26 Opið til kl. 21 öll kvöld Símar 555 0202 og 555 3848 www.blomabudin.is Útgefandi: Keilir ehf. kt. 480307-0380 Fjarðarpósturinn, Bæjarhrauni 2, 220 Hafnarfirði Vinnsla: Hönnunarhúsið ehf. Ritstjóri: Guðni Gíslason Ábyrgðarmaður: Steingrímur Guðjónsson. Ritstjórn: 565 4513, 896 4613, ritstjorn@fjardarposturinn.is Auglýsingar: 565 3066, auglysingar@fjardarposturinn.is Prentun: Steinmark ehf. • Dreifing: Íslandspóstur ISSN 1670-4169 Vefútgáfa: ISSN 1670-4193 www.fjardarposturinn.is www.facebook.com/fjardarposturinn Aðalsafnaðarfundur Fríkirkjusafnaðarins verður haldinn í safnaðarheimilinu fimmtudagskvöldið 8. maí kl. 20 Sunnudagurinn 11. maí Fermingar kl. 11 og 13 www.frikirkja.is Útfararþjónusta Vönduð og persónuleg þjónusta Sími: 551 7080 & 691 0919 ATHÖFN ÚTFARAÞJÓNUSTA - athofn@athofn.is - www.athofn.is Inger Steinsson Inger Rós Ólafsdóttir Vorhátíð fjölskyldunnar sunnudaginn 11. maí kl. 11-13 Fjölskyldustund í kirkjunni kl. 11-11.30 Barna og unglingakórar kirkjunnar syngja. Sunnudagaskólanum lýkur. Kl. 11.30-13 verður boðið upp á grillaðar pylsur, djús og kaffi. Hoppukastali fyrir börnin, leikir og tónlist. Allir velkomnir. HAFNARFJARÐARKIRKJA 1914 - 2014 Víðistaðakirkja Sunnudagurinn 11. maí: Tónlistarguðsþjónusta kl. 11 Ragnheiður Gröndal syngur og leikur fallega tónlist. Sr. Gunnar Jóhannesson héraðsprestur þjónar. www.vidistadakirkja.is Sunnudagurinn 11. maí Uppskeruhátíð barnastarfs kirkjunnar kl. 11 Barnakór Ástjarnarkirkju syngur. Hoppukastalar, grillaðar pylsur og skemmtilegt samfélag á eftir. Skráning í fermingar 2015 er á www.astjarnarkirkja.is www.astjarnarkirkja.is Að venju er keppt í kappróðri á sjómannadeginum sem er 1. júní nk. Sex ræðarar er í hverjum bát og einn stýrimaður. Þetta er kjörið tækifæri fyrir samhentan hóp til að láta reyna á samhæfingu og kraft. Þeir hópar sem hafa áhuga á að taka þátt hafi samband við Karel í síma 690 0345 sem gefur allar nánari upplýsingar. Bátarnir hafa verið sjósettir svo hægt er hefja æfingar. Sjómannadagurinn Villtu keppa í róðri?

x

Fjarðarpósturinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fjarðarpósturinn
https://timarit.is/publication/945

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.