Fjarðarpósturinn


Fjarðarpósturinn - 08.05.2014, Blaðsíða 5

Fjarðarpósturinn - 08.05.2014, Blaðsíða 5
www.fjardarposturinn.is 5 Fimmtudagur 8. maí 2014 Leikjanámskeið fyrir börn fædd 2005-2007 Leikjanámskeið í öllum frístundaheimilum í Hafnarfirði þar sem farið verður í íþróttir og leiki, göngu- og hjólaferðir og margt fleira. Námskeiðin hefjast 10. júní og standa flest yfir til 4. júlí. Frá 7. til 11. júlí verða leikjanámskeið á þremur stöðum og frá 14.-25. júlí og frá 6.-21. ágúst á tveimur stöðum. Verð fyrir eina viku hálfan dag er 4.000 kr. Leikjanámskeið fyrir útskriftarhópa leikskólabarna fædd 2008 Frá 7. – 21. ágúst verður boðið uppá fjölbreytt og uppbyggileg leikjanámskeið fyrir útskriftarhópa leikskólanna í öllum frístundaheimilum. Verð fyrir hálfan dag er 5.500 kr. en 11.000 kr. fyrir heilan dag. Frístundaklúbbur fyrir börn með sérþarfir, fædd 2001-2004 Sumar–Kletturinn er frístundaklúbbur fyrir 10-13 ára börn með sérþarfir. Klúbburinn verður staðsettur í félags miðstöðinni Hrauninu í Víðistaðaskóla og verður nátengdur Tómstund. Klúbburinn starfar frá 10. júní til 4. júlí og frá 5. ágúst til 21. ágúst. Verð fyrir eina viku í hálfan dag er 4.000 kr. Tómstund fyrir börn fædd 2001-2004 Tómstundastarf frá kl. 9-12 fyrir 4.-5. bekk og frá kl. 13-16 fyrir 6.-7. bekk. Í Víðistaðaskóla og Hraunvallaskóla verður opið frá 10. júní til 30. júní og í Öldutúnsskóla verður opið frá 10. júní til 18. júlí. Helstu námskeið eru graffití, dans, borðtennis og leiklist. Þátttökugjald er í ár 4.000 kr. fyrir hvert tímabil. Spennandi starf fyrir börn og unglinga sumarið 2014 Kíktu á www.tomstund.is/sumarvefur Logn og blíða, sumarsól Skólagarðar fyrir börn fædd 2002-2007 Skólagarðar í Setbergi, Öldutúni, Víðistaðatúni, Ásvöllum og Hvaleyrarholti. Hver og einn fær einn reit fyrir grænmeti og annan fyrir kartöflur. Sjö til tólf ára börn hafa forgang til þess að skrá sig í skólagarðana til 15. maí. Eftir þann tíma geta aðrir sótt um garða ef laust er. Gjald fyrir leigu á garði allt sumarið er 4.500 kr. Gæsluvöllur fyrir börn fædd 2008-2012 Gæsluvöllur við leikskólann Hlíðarberg verður opinn frá 9. júlí til og með 1. ágúst. Opnunartími er frá kl. 8.30 til 12.00 og frá kl. 13.00 til 16.30 (lokað í hádeginu). Gæsluvöllurinn er ætlaður börnum á aldrinum tveggja til sex ára. Fimm skipta kort kostar 1.100 kr. og tíu skipta kort 2.000 kr. Sumarlestur á Bókasafni Hafnarfjarðar Hressir krakkar geta sótt sumarlestursbækling á bókasafninu frá 1. júní. Krakkarnir skrifa svo sjálfir niður þær bækur sem þeir lesa í sumar og starfsfólk bókasafnsins stimplar í bæklinginn við skil bókanna til staðfestingar. Afgreiðslutími er frá kl. 10 til 19 alla virka daga. Sumarlistasmiðjur í Hafnarborg fyrir börn fædd 2001-2007 Í júní verður boðið upp á listsmiðjur fyrir börn á aldrinum sex til tólf ára í Hafnarborg. Farið verður í vettvangsferðir og unnin verða skapandi verkefni í fjölbreytta miðla, teiknað, málað og mótað. Boðið verður upp á námskeið frá 10. til 20. júní, – kl. 9 til 12, fyrir sex til níu ára og kl. 13 - 16, fyrir tíu til tólf ára. Námskeiðsgjald er 19.000 krónur. Skráning í síma 585 5790 eða hafnarborg@hafnarfjordur.is Skráning er hafin! Allar skráningar og greiðslur fara fram á Mínum síðum á www.hafnarfjordur.is eða hjá Þjónustuveri Hafnarfjarðar. Nánari upplýsingar er hægt að nálgast hjá Þjónustuveri Hafnarfjarðar í síma 585 5500 og á heimasíðu Hafnarfjarðarbæjar, www.hafnarfjordur.is. Einnig veitir Vinnuskóli Hafnarfjarðar upplýsingar í síma 565 1899 eða netfanginu vinnuskoli@hafnarfjordur.is. Ath. skráning á leikjanámskeið þarf að fara fram fyrir kl. 12 á föstudögum eigi barn að byrja á mánudegi.

x

Fjarðarpósturinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fjarðarpósturinn
https://timarit.is/publication/945

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.