Fjarðarpósturinn


Fjarðarpósturinn - 08.05.2014, Blaðsíða 4

Fjarðarpósturinn - 08.05.2014, Blaðsíða 4
4 www.fjardarposturinn.is Fimmtudagur 8. maí 2014 4% 6% 8% 11% 15% 16% 2% 5% 7% 12% 12% 13% 0% 2% 4% 6% 8% 10% 12% 14% 16% 18% 2002 2003 2004 2005 2006 2007 2008 2009 2010 2011 2012 2013 Veltufé frá rekstri í hlutfalli við tekjur Davíð Arnar ráðinn verkefnastjóri Nýheima Davíð Arnar Stefánsson hefur verið ráðinn verkefnastjóri Þekk- ing ar setursins Nýheima. Frá þessu var greint á vefsíðunni hornafjordur.is Davíð er landfræðingur með MS í landfræði frá Háskóla Íslands. Davíð hefur m.a. starfað við verkefnastjórnun fyrir Vega- gerðina, Háskóla Íslands, Vinnu- málastofnun og Hafnarfjarðarbæ. Meðal verkefna hans hafa verið greiningar og rannsóknir, skipu- lagning og áætlanagerð af marg- víslegu tagi. Verkefnastjóri Nýheima er nýtt starf sem felur í sér að auka sam starf einstaklinga og atvinnu- lífs í samfélaginu á meðal stofn- anna og opinberra aðila með sérstaka áherslu á samþættingu menningar, menntunar, ný sköp- unar og rannsókna. Davíð mun vera talsmaður Nýheima, vinna að stefnumótun, þróun og útfærslu á starfseminni. Þá verður lögð áhersla á að þróa samstarfsverkefni í samvinnu við íbúa svæðisins auk annarra innlendra og erlendra aðila. Davíð mun hefja störf í júní. Davíð Arnar Stefánsson Frá félagi eldri borgara í Hafnarfirði Opinn fundur með frambjóðendum allra flokka er bjóða fram í Hafnarfirði fyrir sveitarstjórnarkosningar í maí 2014 verður haldinn í Hraunseli, Flatahrauni 3 fimmtudaginn 15. maí kl. 14. Óskað er eftir skriflegum fyrirspurnum frá félagsmönnum. Félagar eru hvattir til að fjölmenna. Frítt kaffi og meðlæti. Stjórn Félags eldri borgara í Hafnarfirði Íþróttamiðstöðin Björk Hafnarfirði Komið og sjáið mleikastjörnur framtíðarinnar! Dagskrá Laugardagur / 10. maí / Kl. 14.00 / Fjölþraut í einstaklings- og liðakeppni Sunnudagur / 11. maí / Kl. 10.30 / Úrslit á áhöldum Aðgangseyrir kr. 1.500,- ALLIR VELKOMNIR! Vilja háspennulínu burt Undirskriftalisti Vallabúa Hafin er söfnun undirskrifta á vefnum með áskorun á Landsnet að flýta niðurrifi háspennulína á Völlum. Yfirskriftin var: „Vallar- búar skora á Landsnet að flýta niðurrifi háspennulína“ Upphafsmaður er Ófeigur Friðriksson íbúi á Völlum en hann skipar 4. sæti á lista Sam- fylkingarinnar sem er í meirihluta í bæjarstjórn ásamt Vinstri græn- um. Í dag er gert ráð fyrir að línurnar hverfi fyrir 2020. Söfnunin hófst á mánudags- morgun og höfðu um 240 undirskriftir safnast á fyrsta sólar hringn um. Raflínur sunnan við innstu byggð á Völlum. Lj ós m .: G uð ni G ís la so n Staðreyndirnar tala sínu máli Í ársreikningi fyrir árið 2013 er staðfestur sá mikli árangur sem náðst hefur í rekstri Hafnarfjarðar- bæjar á undanförnum árum, þar sem stöðunni hefur verið snúið við eftir það áfall sem bær inn varð fyrir í efnahags- hruninu. Samanlagðar skuldir og skuld bind ingar Hafnar fjarðar nema nú liðlega 40 millj örðum króna en fyr ir hrun námu þær rúmum 20 milljörð- um. Þrátt fyr ir að skuld- irn ar hafi tek ið stökk sök um falls íslensku krón- unn ar, snöggra verð- bólgu áhrifa, yfir töku eldri einka- fram kvæmda samninga og lífeyris- skuldbindinga spari sjóðsins þá hafa tekj urnar líka aukist umtals vert, í krónum tal ið, farið úr 12 milljörðum árið 2007 í 19 milljarða á síðasta ári. Skuldir lækkað úr 274% í 192% Sem hlutfall af reglulegum tekjum hafa skuldir sveitarfélagsins lækkað umtalsvert á þessu kjör- tímabili og gera áætlanir ráð fyrir að þær muni halda áfram að lækka hratt næstu ár. Þannig námu þær 274% af reglulegum tekjum sam- kvæmt svokölluðu skuldaviðmiði árið 2009 en stóðu í 192% í árslok 2013. Allar spár gera ráð fyrir að skuldirnir lækki enn frekar á næstu árum og standist öll viðmið enda fær bæjarfélagið nú góðar ein- kunn ir matsfyrirtækja. Markviss og ábyrg fjármálastjórn Meginástæðan fyrir því hversu vel hefur gengið að rétta rekstur Hafnarfjarðarbæjar af eftir hrunið og greiða niður skuldir er markviss og ábyrg fjár málastjórn. Hún hefur miðað að því að styrkja afkomu bæjar félagsins varanlega með endur skipulagningu fjöl margra rekstrarþátta og tryggja þannig fjár hag og uppbyggingu Hafnar fjarðarbæjar til framtíðar. 2,4 milljarðar í veltufé frá rekstri Árangurinn endurspeglast ekki síst í þeim mælikvarða sem kallast veltufé frá rekstri. Sá mælikvarði sýnir hverju reksturinn skilar á hverjum tíma til að greiða niður skuldir og standa undir nýjum fjárfestingum. Frá hruni hefur veltufé frá rekstri aukist jafnt og þétt og nam 2,4 milljörðum króna, eða sem nam um 13% af tekjum ársins í fyrra. Á meðfylgjandi mynd má sjá þróun þessarar lykil stærðar. Myndin sýnir stöðuna eins og hún var árið 2002 þegar Sam fylkingin tók við rekstri bæjar ins og hvernig hún hefur þróast, fram að hruni, áhrif þess og þann árangur sem náðst hefur til dagsins í dag. Af þessum árangri eigum við öll að geta verið stolt. Með áfram- haldandi ábyrgri fjármálastjórn og jákvæðri afstöðu til þeirra enda lausu tækifæra sem eru til nýsköp unar og jákvæðrar þróunar getum við öll horft björtum augum til framtíðar. Höfundur er formaður bæj ar ­ ráðs og oddviti Sam fylk ing ar­ innar í Hafnarfirði. Gunnar Axel Axelsson Veltufé frá rekstri í hlutfalli við tekjur.

x

Fjarðarpósturinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fjarðarpósturinn
https://timarit.is/publication/945

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.