Fjarðarpósturinn


Fjarðarpósturinn - 08.05.2014, Blaðsíða 12

Fjarðarpósturinn - 08.05.2014, Blaðsíða 12
12 www.fjardarposturinn.is Fimmtudagur 8. maí 2014 Hljómsveitin Pollapönk, sem söng útlenska útgáfu af laginu Enga fordóma, komst áfram í lokakeppni Eurovision sem haldin er í gömlu Burmeister & Wein skipasmíðastöðinni á Refshaleyju í Kaupmannahöfn. Nöfn þeirra tíu þjóða sem komust áfram voru lesin upp í tilviljanakenndri röð og spennan var mikil þegar kom að því að nefna síðasta landið. Margir voru orðnir úrkula vonar en fögn uð- urinn var mikill þegar nafn Íslands var lesið upp. Hljómsveitin Pollapönk var útskriftarverkefni hafnfirsku leik skólakennaranna Heiðars Arnar Kristjánssonar og Haralds F. Gíslasonar árið 2006. Svo bættist við Hafnfirðingurinn Arn ar Gíslason og Norð firð ing urinn Guðni Finnsson við sveitina. Leikskólabörn hafa verið sérstakir áhangendur sveitarinnar enda hefur tónlist hennar höfðað mjög vel til þess aldurshóps. Nú hefur boðskapur hennar borist út um allan heim og sveitin mun örugglega vekja athygli víða um heim. Lagið Enga fordóma er eftir þá Harald og Heiðar en enski textinn var þýddur á ensku af John Grant. Bakraddir syngja þeir Snæ- björn Ragnarsson og Óttar Proppé en hann er Hafnfirðingur eins og Jónatan Garðarsson sem er liðsstjóri íslenska hópsins. Er það í tólfta sinn sem Jónatan er í því hlutverki. Hreinsunardagar Þrifu upp eftir þig? Starfsmenn Hafnarfjarðar- bæjar brutu upp hefðbundinn starfsdag hjá sér á föstudag og mættu galvaskir með poka til að tína upp drasl næst sínum vinnustað. Starfsfólk á bæjar- skrifstofunum hreinsuðu í mið bænum og starfsfólk á Þjónustumiðstöðinni hreins- aði svæðið í kring á Völlum. Gríðarlegt drasl er víða um bæinn og þó hreinsað sé reglulega og er það engum öðrum að kenna en íbúunum sjálfum. 30 ára Stofnuð 1983 styrkir barna- og unglingastarf SH Sundstund gefur gull í mund Pappír er ekki bara pappír BESTA – HREYFILSHÚSINU Grensásvegi 18 I 108 Reykjavík Sími: 510 0000 I besta@garri.is EasyFlush® frá KATRIN tryggir gæðin KATRIN pappírinn færð þú í Besta, Grensásvegi • Katrin Plus – hágæða pappír fyrir heimili og sumarbústaði • Vistvænn fyrir rotþrær Tælenskur veitingastaður NÝR Hádegistilboð virka daga kl. 11.30-14 Þrír réttir úr borði fyrir einn kr. 1.390,- Súpa og kaffi fylgir. Kvöldtilboð alla daga kl. 17.15-20 Þrír réttir úr borði fyrir einn kr. 1.490,- Fjölbreyttur matseðill alla daga grænmetisréttir og matseðill fyrir börn Taktu með heim eða borðaðu á staðnum Tjarnarvöllum 15 565 5665 Ban Kúnn Thai Restaurant Opið: Mánudag- föstudags kl. 11-21. Sunnudaga kl. 16-21. Laugardaga kl. 11-03 (eldhús lokar kl. 21) karaoke og bar stemmning til kl. 03. Fja rð ar pó st ur in n 14 05 © H ön nu na rh ús ið e hf . Rekstri Bæjarbíós úthýst Menningar- og ferðamála- nefnd Hafnarfjarðar hefur samþykkt að ganga til samninga við Menningar- og listafélag Hafnarfjarðar ehf. kt. 510507- 3550 um rekstur Bæjarbíós til eins árs. Alls gerðu 4 aðilar tilboð í reksturinn. Töluverðar deilur hafa verið um þessa ráðagerð og er hún ekki gerð í sátt við Kvik- myndasafn Íslands en í fundar- gerð nefndarinnar kemur fram að nefndin mun áfram vinna að gerð samnings við mennta- og menningar mála ráðu neytið sem tryggja mun sýningaþátt Kvik- mynda safns Íslands í bíóinu Hafnarfjarðarbær gefur eftir leigu, rafmagns- og hitunar- kostnað og þó samningurinn sé til eins árs er möguleiki á fram- lengingu til þriggja ára. Pollapönk komst áfram í úrslitakeppnina í Eurovision Litríkir og eldhressir Hafnfirðingarnir voru öryggið uppmálað á sviðinu Lj ós m .: E ur ov is io n, A nd re s P ut tin g (E B U ) Íslensku keppendurnir við kon­ ungshöllina í Kaupmannahöfn. Að lokinni keppni á þriðjudag var dregið um í hvaða hluta lokakeppninnar sveitirnar yrðu og keppir Pollapönk í fyrri hluta keppninnar á laugardag. Lj ós m .: Jó na ta n G ar ða rs so n Ólafur Helgi lögfræðingur fórnaði spariskónum. Lj ós m .: G uð ni G ís la so n Lj ós m .: G uð ni G ís la so n

x

Fjarðarpósturinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fjarðarpósturinn
https://timarit.is/publication/945

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.