Fjarðarpósturinn - 08.05.2014, Blaðsíða 8
8 www.fjardarposturinn.is Fimmtudagur 8. maí 2014
PANTAÐU
Á NETINU
OG FÁÐU
AFSLÁTT
REYKJAVÍKURVEGI 60 – SÍMI 561 0562
Þeir aðilar sem áhuga hafa á að leigja
söluhús á 17. júní geta sótt um söluleyfi til
skrifstofu tómstundamála, Strandgötu 6,
netfang: ith@hafnarfjordur.is Söluleyfum er
ekki úthlutað til einstaklinga. Leyfið gildir
fyrir sölu í miðbæ Hafnarfjarðar þar sem
hátíðarhöldin fara eingöngu fram. Með
söluleyfi fylgir sölukofi.
Umsóknum, merktar 17. júní, ber að skila eigi
síðar en fimmtudaginn 15. maí kl. 15:00 á
Strandgötu 6, en þá verður dregið um staðsetningu
söluaðila og er aðilum boðið að vera viðstaddir.
Þjóðhátíðarnefnd
SÖLUTJÖLD/HÚS Á 17. JÚNÍ
Sumarnámskeið
barna hjá
Siglingaklúbbnum Þyt
Þátttakendum er kennt að sigla og umgangast hafið
eftir námsskrá Siglingasambands Íslands. Á
námskeiðinu er kennt á kayak og seglbáta,
siglingareglur og umgengni um báta og búnað þeirra.
Í lok námskeiðs gerum við okkur dagamun, hópum i
sjóinn, buslum og endum á grillveislu.
Hvert námskeið er í tvær vikur hálfan daginn
kl. 9-12 eða kl. 13-16.
Kennt er í aðstöðu Þyts, Strandgötu 88 og við
Hafnarfjarðarhöfn.
Námskeiðin verða haldin eftirfarandi daga:
10. júní - 20. júní (fyrir hádegi) ath frídagar eru 9. júní og 17. júní
10. júní - 20. júní (eftir hádegi) ath frídagar eru 9. júní og 17. júní
23. júní - 4. júlí (fyrir hádegi)
23. júní - 4. júlí (eftir hádegi)
7. júlí -14. júlí (fyrir hádegi)
7. júlí -14. júlí (eftir hádegi)
21. júlí - 1. ágúst (fyrir hádegi)
21. júlí - 1. ágúst (eftir hádegi)
Innritun er hafin á
www.sailing.is
Verð: 14.000 kr. fyrir tveggja vikna námskeið. Skráningu er ekki
lokið fyrr en við greiðslu. Ekki er endurgreitt fyrir námskeið sem
búið er að bóka á nema það takist að fylla plássið sem losnar.
Kennitala: 680978-0189
Bankanúmer: 0544-26-31871
Ársreikningur samþykktur
- enn betri afkoma en gert hafði verið ráð fyrir.
Ársreikningur Hafnar fjarðar-
bæjar fyrir árið 2013 var tekinn
til seinni umræðu í bæjarstjórn
Hafnarfjarðar 30. apríl sl. og
samþykktur með 6 atkvæðum
fulltrúa Samfylkingar og Vinstri
grænna.
Lífeyrisskuldbinding
bæjarins lækkar
Á milli umræðna breyttist
út reikn ingur á heildar lífeyris-
skuldbindingu Eftirlaunasjóðs
starfs manna Hafnarfjarðarbæjar
en skuldbindingin lækkaði um
260 milljónir kr. Þá var einnig
breyt ing á hreinni eign til
greiðslu lífeyris en hún lækkaði
um 96 milljónir kr. frá fyrri
útreikn ingum þannig að nettó-
lækkun skuld bind inganna var
um 162 milljónir kr. Hlutur
skuldbindinga bæjarins lækkaði
um 64 milljónir kr. en skuld ir
annarra aðila í sjóðnum lækkaði
um 98 milljónir kr. Áhrifin af
lækkuninni skila sér í betri
afkomu og lægri skuldbindingu.
Rekstrarniðurstaða jákvæð
Rekstrartekjur sveitarfélagsins
á árinu námu 18,7 milljörðum kr.
fyrir A og B hluta en þar af námu
rekstrartekjur A hluta 17 millj-
örð um kr.
Rekstrarniðurstaða sveitar-
félags ins A hluta var jákvæð um
914 milljónir kr. og A og B hluta
jákvæð um 1.411 milljónir kr.
Fram legð í A hluta eða EBITA er
2.024 milljónir kr. eða 12% af
tekj um og framlegð í A og B
hluta er 3.034 milljónir kr. eða
um 16,2%.
Veltufé frá rekstri 2,4
milljarðar
Veltufé frá rekstri hækkar á
milli ára, bæði í A hluta og A og
B hluta og var hærra en áætlun
gerði ráð fyrir. Veltufé frá rekstri
í A hluta var á árinu 1.728
milljónir kr. og veltufé frá rekstri
í A og B hluta var á árinu 2.432
milljónir kr. og nemur veltufé frá
rekstri um 13% af tekjum.
Heildareignir A og B hluta
námu í árslok 48.483 milljónum
kr. en fjárfestingar ársins námu
909 milljónum kr. Skuldir og
skuld bind ingar námu 40.438
milljónum kr. og lækka um
1.399 milljónir kr. á árinu.
Djass, popp og rokk
Hljóðfærakynning í Tónkvísl
Opið hús verður í Tónkvísl v/
gamla Lækjarskóla kl. 13-15 á
laugardaginn þar sem hægt
verður að kynnast hljóðfærum
heyra tóndæmi og spjalla við
nemendur og kennara.
Tónleikar verða í Hallsteinssal
kl 13.45 með blandaðri dagskrá,
„böndin í beinni“ hljómsveitir
nemenda í Tónkvísl undir stjórn
kennara leika fjölbreytta tónlist
söngnemendur syngja djass,
popp og rokk. Aðgangur ókeypis.
Landssamband Soroptimista
fagnar 40 ára afmæli á þessu ári.
Soroptimistar af öllu landinu
munu fjölmenna í Hafnarfjörð
um helgina af því tilefni. Lands-
sambandsfundur Soroptimista
verður haldinn í Flensborgarskóla
á laugardag þar sem um 200 kon
ur koma saman. Sérstakur fyr ir -
lesari verður Margrét Pála, upp-
hafsmaður Hjallastefnunnar.
Nokkr ir erlendir Soroptimistar
heim sækja landið að þessu tilefni
en meðal þeirra er Ulla Madsen,
forseti Evrópusambandsins, sem
kemur frá Danmörku.
Átján Soroptimistaklúbbar eru
starfandi hér á landi en í tilefni
afmælisins ætla þeir að sameinast
um að styrkja verðugt og gott
verkefni. Samtök kvenna af
er lendum uppruna fá veglegan
styrk. Soroptimistar eru alþjóðleg
samtök kvenna sem láta gott af sér
leiða. Það er Soroptim ista klúbbur
Hafnarfjarðar og Garða bæjar sem
heldur utan um Lands sam bands-
fundinn. Forseti Soropt imista-
sambands Íslands er Hafn firðing-
urinn Mjöll Flosa dóttir.
Soroptimistar fagna afmæli í Hafnarfirði
Ingunn Ásdís, fráfarandi formaður, Mjöll Flosadóttir forseti og
Þóra Guðnadóttir, verðandi forseti