Fjarðarpósturinn - 08.05.2014, Page 10
10 www.fjardarposturinn.is Fimmtudagur 8. maí 2014
Um þarliðna helgi var síðasta
mótið í 5. flokki kvenna, eldra ár.
Haukar voru fyrir mótið taplausir
og efstir á styrkleikalistanum.
Fylkisstúlkur voru einnig tap laus-
ar og mættust liðin í fyrsta leik
mótsins í Kaplakrika og var hart
tekist á í skemmtilegum hand-
boltaleik en lokaniðurstaðan var
tveggja marka sigur Hauka.
15-13. Hina þrjá leikina unnu
bæði lið örugglega og Íslands-
meistaratitilinn var Haukanna og
var fagnað innilega. Þjálfari liðs-
ins er Sigurjón Sigurðsson.
Alls léku stelpurnar í 5 mótum
í vetur og spiluðu 19 leiki. Þær
skoruðu 352 mörk úr 549 en
fengu aðeins á sig 154 mörk.
Marka hæst var Alexandra
Jóhanns dóttir með 110 mörk.
Næst kom Berta Rut sem skoraði
105. Heildarmarkvarslan var
48%.
Kaffisala Hraunprýði
Hin árlega kaffisala Slysa-
varnardeildarinnar Hraunprýði
verður í Safnaðarheimili Hafnar-
fjarðarkirkju á mánudaginn kl.
15-19.
Eru Hafnfirðingar hvattir til að
mæta, fá sér glæsilegar veitingar
af kaffihlaðborði og styrkja gott
málefni.
Einnig er hægt að panta kaffi-
meðlæti á stinag@internet.is
MÓTTAKA AÐSENDRA GREINA
Fjarðarpósturinn tekur við aðsendum greinum sem fyrr.
Almenn hámarkslengd greina er 300 orð. Greinar eru birtar eins
og rými í blaðinu leyfir. Að jafnaði er ekki tekið við greinum til
birtingar sem einnig eru sendar í birtingu í önnur blöð sem dreift
er á dreifingarsvæði Fjarðarpóstsins eða á vefsíðum.
Sjá nánar á www.fjardarposturinn.is
til leigu
Fjögurra manna fjölskylda óskar
eftir húsnæði á höfuðborgar
svæðinu í langtímaleigu í síðasta
lagi frá og með 1. ágúst. Við erum
miðaldra hjón með syni okkar 21
og 13 ára, reglusöm og skilvís.
Með mæli ef óskað er. Frekari upp-
lýs ingar í s. 8682992 og 8963163.
heimilisþrif
Óska eftir duglegri konu til að
þrífa vikulega, 4 tíma í senn.
Tími eftir samkomulagi.
Uppl. í s. 694 2150.
bílar
Til sölu Toyota Avenis, árg. 2000.
Tilboð óskast.
Uppl. í s. 555 3828 eða 863 2846.
þjónusta
Tölvuviðgerðir alla daga, kem á
staðinn, hægstætt verð.
Sími 664 1622 - 587 7291.
Tölvuaðstoð og viðgerðir
Viðgerðir og kennsla í tölvunotkun.
Apple* & Windows.
Kem í heimahús. Sími 849 6827 -
hjalp@gudnason.is
Bílaþrif. Kem og sæki.
Alþrif, þvottur, bón og vélarþvottur.
Úrvals efni. Hagstætt verð.
Uppl. í s. 845 2100.
Garðsláttur í einum grænum.
Tek að mér garðslátt í stærri
görðum. Hagstætt verð. Geri tilboð.
Uppl. í s. 845 2100.
tapað - fundið
Lyklakippa fannst á göngustígnum
í hrauninu skammt frá Setbergs-
skóla. Uppl. s. 869 2483.
smáauglýsingar
aug l y s i n gar@f jardarpos t u r i n n . i s
s ím i 5 6 5 3 0 6 6
A ð e i n s f y r i r e i n s t a k l i n g a . V e r ð
a ð e i n s 5 0 0 k r. m . v . m a x 1 5 0 s l ö g .
M y n d b i r t i n g 7 5 0 k r.
Ta pað - f u n d i ð o g fæs t g e f i n s : FR Í TT
R e k s t r a r a ð i l a r :
F á i ð t i l b o ð í r a m m a a u g l ý s i n g a r !
www.fjardarposturinn.is
Loftnet - netsjónvarp
Viðgerðir og uppsetning á loftnetum,
diskum, síma- og tölvulögnum,
ADSL/ljósleiðurum, flatskjám og
heimabíóum. Húsbílar - hjólhýsi!
Loftnetstaekni.is
sími 894 2460
Yngstu Hafnfirðingarnir
Fjölmargar rannsóknir hafa
sýnt fram á að fyrstu árin í lífi
okkar eru þau allra mikilvægustu
þegar kemur að þroska og námi.
Það sem við lærum í bernsku
hefur gríðarlega mótandi áhrif á
lífssýn okkar og per-
sónu þroska. Starfs-
menn leikskóla gegna
því hinu ábyrgðarmikla
hlutverki að hlúa að
öllum þroskaþáttum
barnanna svo þau fái
tækifæri til að vaxa og
dafna í örvandi um -
hverfi. Það er því að
mörgu að huga innan
leikskólanna til að ná
fram þessu markmiði. Innan
leikskóla Hafnarfjarðar starfa
metnaðarfullir og hæfileikaríkir
kennarar og aðrir starfsmenn
sem hafa skapað hverjum skóla
ákveðna sérstöðu. Á undan förn-
um árum hefur þó kreppt að
leikskólum bæjarins á sama tíma
og kröfurnar hafa aukist um
gæði starfsins. Starfsmannafundir
sem voru haldnir mánaðarlega
voru skertir og er nú fjórðungi
minni tími gefinn fyrir þá. Fag-
fundir hafa lagst af og fjárframlög
til að koma á móts við börn og
fjölskyldur þeirra sem hafa ann-
að móðurmál en íslensku er ekki
lengur til staðar. Þessu hafa
stjórn endur leikskólanna mætt
með auknu álagi á þá kennara og
aðra starfsmenn sem fyrir eru í
starfi.
Til að koma á móts við þær
sanngjörnu kröfur að búa yngstu
samfélagsþegnunum hin allra
bestu skilyrði þarf nauðsynlega
að styrkja innviði leikskóla bæj-
ar ins. Framsóknarflokkurinn vill
efla skólaskrifstofu Hafnarfjarðar
þannig að fleiri stöðugildi séu
þar til ráðgjafar við starfsmenn
leikskólanna. Sérfræðingateymi
skólaskrifstofunnar
verði aukið þannig að
minnka megi þann
langa biðlista sem nú er
til staðar eftir mati frá
talmeinafræðingum og
sálfræðingum. Skoð-
að ar verða leiðir til að
gefa leikskóla stjórn-
end um meira svigrúm
til að auka enn fremur
heilbrigði og vellíðan
barna og starfsmanna skólans
þar sem það er ein af for send-
unum fyrir farsælu leikskóla-
starfi. Bjóða þarf upp á öfluga
og hag nýta endurmenntun, auka
stöðugildi skólanna, laða að
fagfólk og gefa leiðbeinendum
leikskóla tækifæri til að eflast
enn frekar í starfi. Framsóknar-
flokkurinn vill gera Hafnar-
fjarðar bæ að leiðandi og eftir-
sóknarverðu bæjarfélagi í leik-
skólamálum og bæta um leið
þjón ustu við bæjarbúa. Þannig
náum við bæjarbúar enn frekar
því markmiði að frá leikskólum
útskrifist ungir Hafnfirðingar
með sterka og jákvæða sjálfs-
mynd, tilbúnir að takast á við þau
verkefni sem bíða þeirra seinna í
lífinu.
Höfundur er aðstoðarleik skóla
stjóri, mastersnemi í stjórnun
menntastofnana, móðir fjög urra
barna og skipar 9. sæti á fram
boðslista Framsóknar flokksins.
Linda hrönn
Þórisdóttir
Íslandsmeistarar í 5. flokki
Sólgarður
Óseyrarbraut 27, Hafnarfirði
solgardur@solgardur.is | sími 864 5111
Moldarsala
Gróðurmold til sölu
Opið alla virka daga kl. 16 - 19
og um helgar kl. 12 - 16
Efri röð frá v.: Sigurjón þjálfari, Katrín, Hólmfríður, Berta Rut,
Tinna Lind, Eísa, Þórdís og Alexandra Líf. Neðri röð: Friðbjörg,
Wiktoría, Katla Sól, Eva og Alexandra J.
Vinnudagur Hollvinafélags
Hellisgerðis þetta vorið, verður
á laugardaginn kl. 10 til 14
Allar hendur eru vel þegnar og
eru þátttakendur hvattir til að
taka með sér hanska og nesti en
verkfæri eru á staðnum og boð
ið verðu upp á kaffi, te og
ávaxtasafa.
Upplagt fyrir alla fjölskylduna
að vinna og njóta útiveru saman
í dásamlegu umhverfi.
Ætlunin er að kantskera,
klippa og snyrta undir stjórn
Björns B. Hilmarssonar yfir-
verkstjóra Þjónustumiðstöðvar
Hafnarfjarðarbæjar. Nánari
upplýsingar í síma 694 3153.
Sjálfboðavinna í Hellisgerði
Vinnudagur Hollvinafélags
Nýr að stoðar
skóla stjóri í
Öldutúnsskóla
Margrét Sverrisdóttir hefur
verið ráðin aðstoðarskólastjóri
við Öldutúnsskóla. Margrét
hefur verið deildarstjóri við
skólann frá 2008. Í vetur hefur
hún verið staðgengill skóla-
stjóra. Níu manns sóttu um
stöðuna.
Fjármála stjóri
hættir
Gerður Guðjónsdóttir, fjár-
málastjóri Hafnarfjarðarbæjar
hefur verið ráðin fram kvæmda-
stjóri Lífeyrissjóðs starfsmanna
sveitarfélaga. Tekur hún við
starfinu í sumar.
Þá hefur Anna Jörgensen,
lögfræðingur og starfs manna-
stjóri Hafnarfjarðarbæjar hætt
störfum að eigin ósk.
www.facebook.com/
fjardarposturinn
Skoðaðu fjölmargar
myndir úr bæjarlífinu
Smelltu á
LÍKAR VIÐ