Fjarðarpósturinn - 27.11.2014, Blaðsíða 2
FJARÐARPÓSTURINN | FIMMTUDAGUR 27. NÓVEMBER 2014
Laugardaginn 26. nóvember
1994 var verslunarmiðstöðin
Fjörður opnuð. Þá hét hún reynd
ar Miðbær en nafnin var síðar
breytt í Fjörður.
Í frétt í Fjarðarpóstinum segir
að með tilkomu Miðbæjar hafi
verslunarrými verið aukið um
5.000 fermetra og þar verði 30
verslanir og þjónustufyrirtæki.
Var mikið um dýrðir á opnunar
deginum og sagt var að brotið
hafi verið blað í verslunarsögu
bæjarins.
Mikið vatn hefur runnið til
sjávar síðan og margt breyst.
Verslanirnar Dalakofinn og Úr
og gull hafa báðar verið í Firði
öll 20 árin auk rakarastofunnar
Carters. Þá var verslunin 1111
með frá upphafi en breyttist í
1011 og Búnaðarbankinn varð
KBbanki og síðar Arionbanki.
Margir höfðu af því áhyggjur
þegar Vínbúðin ákvað að fara úr
Firði í stærra húsnæði, en þær
áhyggjur voru að ástæðulausu.
Reynsla Svía af því þegar
Systembolagen hvarf úr mörgum
verslunar miðstöðum var sú að
verslun jókst. Nýjar búðið komu
í staðinn og menn áttuðu sig á að
þeir sem komu til að versla
áfengi fóru sjaldnast í aðrar
verslanir líka.
Þar sem Vínbúðin var hafa
Símabúðin og Íslandspóstur
komið sér fyrir. Íslandspóstur
býður í dag upp á margt annað en
póstþjónustu og Símabúðin
býður upp á enn meira úrval af
símum og fylgibúnaði en einnig
upp á fjölbreyttar aðrar vörur.
Ýmsar uppákomur hafa verið í
Firði undanfarið og greinilegt að
þar á bæ hefur verið spýtt í
lófana og tekið til hendinni.
Fjörður verður í hátíðarbúningi
um helgina og mikið um dýrðir.
Eru Hafnfirðingar og nær
sveitafólk hvatt til að bregða sér
í Fjörð og upplifa!
Verslunarmiðstöðin Fjörður 20 ára
Nýjar verslanir – Pósturinn, Dís og Símabúðin hafa stækkað – Uppákomur og bjartsýni
Íbúum Hafnarfjarðar
hefur fjölgað um 60%
Þegar verslunarmiðstöðin var opnuð voru íbúar
Hafnarfjarðar tæplega 17.400.
Í dag eru íbúar Hafnarfjarðar tæplega 27.800 og hefur
þeim því fjölgað um 60% á síðustu 20 árum.
Oft líflegar uppákomur í Firði
Með samtakamætti er öðru hverju
boðið upp á skemmtilega viðburði í
Firði. Nýlega var tívolí á planinu,
Bjarni Arason og gospelkór söng
við góðar undirtektir og opið var til
miðnættis.
Í dag er aftur hátíð og opið til
miðnættis enda 20 ára afmæli Fjarð
ar.
Verið velkomin í Fjörð!
Eldhress gospelkór
Tívolí fyrir utan Fjörð
Bjarni Ara syngur
Bátasýning á 2. hæðinni
Það er gaman
að kaupa inn í
Hafnarfirði!
OPIÐ Í FIRÐI
Fimmtud.: Opið til miðnættis
Föstud.: Opið til kl. 18
Laugard.: Opið til kl. 18
Sunnud.: Opið kl. 13-17