Fjarðarpósturinn


Fjarðarpósturinn - 27.11.2014, Blaðsíða 14

Fjarðarpósturinn - 27.11.2014, Blaðsíða 14
12 www.fjardarposturinn.is FJARÐARPÓSTURINN | FIMMTUDAGUR 27. NÓVEMBER 2014 Ólíðandi forgangsröðun í Hafnarfirði Mánudaginn 24. nóvember síðastliðinn afgreiddi fræðsluráð tillögur sínar að fjárhagsáætlun fyrir árið 2015. Í tillögum fræðsluráðs er gert ráð fyrir 2,7% hækkun gjaldskráa fyrir árið 2015. Það þýðir m.a. hækkun leikskólagjalda á næsta ári um 2,7%. Áætlað er að slík hækk­ un gjaldskráa muni skila 18 milljónum í auknar tekjur til Hafn­ ar fjarðar. Einnig er áætlað að skera niður um 25 milljónir af fjár­ veitingum til grunn­ skóla Hafnarfjarðar vegna nýrra reiknireglna við út hlutun kennslustunda. Fram­ sókn arflokkurinn er á móti slíkri forgangsröðun. Fyrir kosn­ ingarnar í vor lagði flokkurinn ríka áherslu á aukinn stuðning við barnafjölskyldur í Hafnar­ firði. Þessar tillögur eru hreinlega á skjön við þá stefnu Fram­ sóknarflokksins. Það má öllum vera ljóst að þessi gjaldskrár­ hækkun upp á 2,7% kemur sér afar illa við foreldra leikskóla­ barna í Hafnarfirði. Nú þegar eru leikskólagjöld í Hafnarfirði hærri en í nágrannasveitarfélögunum Reykjavík og Kópavogi. Á þetta benti Helga Hrönn Óskarsdóttir, fulltrúi foreldra leikskólabarna í bókun sinni á fundi fræðsluráðs þar sem tillögur þessar voru samþykktar. Þjónustukönnun Capacent frá 2013 Í nóvember 2013 gerði Capa­ cent þjónustukönnun meðal 16 sveitarfélaga á landinu. Mark­ miðið var að kanna ánægju með þjón ustu Hafnarfjarðar og ann­ arra sveitarfélaga ásamt því að gera samanburð þar á. Þegar kemur að þjónustu Hafnarfjarðar við barnafjölskyldur er Hafnar­ fjörður í 14. sæti, þar sem 47,6% eru ánægðir með þjónustuna. Einungis tvö sveitarfélög eru fyrir neðan okkur. Það eru sveitarfélögin Árborg og Reykja­ vík. Í sömu könnun er Hafnar­ fjörður m.a. undir heild ar­ meðaltali sveit ar félaga þegar kemur að ánægju með þjón ustu leikskóla, þjónustu grunnskóla og þjónustu við barnafjöl­ skyldur. Við verðum að taka mark á þessu og það gerum við svo sann arlega ekki með niður skurði og hækkun gjaldskráa. Tillögur fræðslu ráðs gera einnig ráð fyrir auknum stuðningi í Hraun vallaskóla og spjald­ tölvuvæðingu Áslandsskóla. Það eitt og sér er gott en nauðsynlegt er að halda áfram að styrkja innra starf leik­ og grunnskóla með markvissum hætti. Hvaðan koma peningarnir? Í tillögum fræðsluráðs kemur það fram að vegna smærri árganga muni börnum fækka um 120 á milli ára. Vegna þessa er gert ráð fyrir því að um 73 milljónir muni sparast vegna lækkunar á rekstrarkostnaði leik­ skólanna. Einnig er gert ráð fyrir 25 milljóna sparnaði vegna nýrra reikni reglna við úthlutun kennslu stunda. Við teljum rétt að nýta það svigrúm sem myndast vegna þess til að styrkja innra starf skólanna og í þjónustu við fjölskyldur með ung börn, hækka tómstundastyrk og auka syst­ kina afslátt. Við verðum að gera Hafnarfjörð að fjölskylduvænu sam félagi og raunverulegum valkosti fyrir ungt fólk til fram­ tíðar. Með nýjum íbúum koma auknar tekjur – við skulum heldur ekki gleyma því. Höfundur er oddviti Framsóknarflokksins í Hafnarfirði. Ágúst Bjarni Garðarsson Dalshrauni 24 • 220 Hafnarfir›i • www.steinmark.is • Sími 555 4855 Prentsmi›jan Steinmark Stofnað 1982 Jól 2014 Jól 2014 Verð frá kr. 2.400 kr. (16 stk. 15x10 cm, 4 bls) Fleiri stærðir eru: 14x14 cm, 10x21 cm – 4 bls. Standandi/Liggjandi Umslög fást hjá okkur! Persónuleg jólakort .. kemur út 4. des. Tryggðu þér auglýsingapláss

x

Fjarðarpósturinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fjarðarpósturinn
https://timarit.is/publication/945

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.