Fjarðarpósturinn


Fjarðarpósturinn - 27.11.2014, Blaðsíða 6

Fjarðarpósturinn - 27.11.2014, Blaðsíða 6
4 www.fjardarposturinn.is FJARÐARPÓSTURINN | FIMMTUDAGUR 27. NÓVEMBER 2014 Undanfarið hefur verið upp­ lýst um niðurstöður úr rekstr ar ­ úttekt um nokkurra sveit ar félaga og sennilega varð mönnum mest brugðið við niðurstöður úr úttekt á rekstri og fjármálum Reykja­ nesbæjar. Reyndar áttu niður­ stöðurnar ekki að koma mörgum á óvart en þær eru þó grunnurinn að því að hægt sé að taka réttar ákvarðanir. Segir Haraldur að grundvallar­ atriðið sé í 65. gr. sveitarstjórnar­ laga þar sem segir „Sveitarstjórn skal gæta ábyrgðar við meðferð fjármuna sveitarfélagsins og varðveita fjármuni með ábyrgum hætti..“. Þar sem bæjarstjóri fer með framkvæmdavald í umboði bæjarstjórnar er honum skylt að fara eftir þessu ákvæði. Sveitar­ félög eins og öll fyrirtæki þurfa ávallt að vera á tánum við að fylgjast með rekstrinum og bregðast við í tíma þegar það þarf. Haraldur bendir á sem dæmi um verkefni sem þarf að takast á við sé 10­12% launa­ hækkun á árunum 2014­2015. Vissulega sé ánægjulegt að fólk fái launahækkanir en við þeim þurfi að bregðast í rekstri bæjarins. Há fjármagnsgjöld Hafnarfjörður býr við aðeins öðruvísi aðstæður en Reykjavík, Seltjarnarnes og Garðabær. Skuldahlutfall þessara sveitar­ félaga sé lágt og auðvelt að eiga við. Haraldur segir að hins vegar hljóti það að vega þungt í rekstri sveitarfélags eins og Hafnar­ fjarðar að þurfa að greiða 1,7 milljarða kr. á ári í fjármagnsgjöld sem eru um 9% af tekjum sveitar félagsins. Hins vegar sé það ekki vandamál sem sveitar­ félagið ráði ekki við. Segir hann margt hægt að gera. Ekki sé farið í greininguna til að skerða þjónustu. Hann vilji taka upp nýjan hugsanagang hjá sveitarfélaginu sem feli í sér betri nýtingu á fjár­ munum og stefnan sé ekki endi­ lega að skera niður – það séu aðrar leiðir mögulegar. Leitað eftir tillögum Segir Haraldur að ráðgjafinn sem fenginn var til verksins sé nú þegar byrjaður að ræða við stjórnendur bæjarins og fólkið á gólfinu og kalla eftir tillögum. Hafnarfjarðarbær nýtur nú þess að verðbólga hefur verið lægri en spáð var og að gengi hafi verið hagstætt. Þá hafa út ­ svars tekjur verið hærri en áætl­ aðar og því var hægt að mæta 724 milljón króna útgjaldaauka sem sam þykktur var með fjórða viðauka við fjárhagsáætlun 2014 með 330 milljón kr. auka útsvars­ tekjum, 235 milljón kr. gengis­ hagnaði og 159 milljón kr. lægri verðbótum en ætlað var. Slíka viðauka á ekki að þurfa að gera við eðlilegar aðstæður. Í tillögu að fjárhagsáætlun fyrir 2015 er gert ráð fyrir um 400 milljón kr. halla á A­hluta en um 580 milljón kr. rekstrarafgangi á B­hluta og nettó um 180 milljón kr. rekstrarafgangi. Að sögn Haraldar eru þó væntingar um að rekstrarúttektin skili af sér sparnaðarleiðum sem verði til þess að ekki verði halli á A­hluta. Borga á niður skuldir og lækka skatta Hafnarfjörður er í 5. sæti yfir skuldahæstu sveitarfélögin með skuldir sem eru 216% af tekju­ stofni. Þar vilja menn ekki vera lengi og markmiðið er að greiða niður skuldir. Það er hins vegar líka óásættanlegt að mati Haraldar að í Hafnarfirði sé útsvar í hámarki, 14,52%. Þetta á við um fjölmörg önnur sveitar­ félög þó stefnan sé víða tekin á lækkun. Þá er fasteignaskattur á íbúðarhúsnæði í Hafnarfirði mjög hár miðað við sveitarfélög­ in í kringum okkur, 0,28% á meðan hann er 0,2% í Reykjavík, 0,26% í Garðabæ og 0,27% í Kópavogi. Hins vegar þarf að taka með í reikninginn lægra fasteignamat í Hafnarfirði í einhverjum tilfella. Mismunandi rekstrarkostnaður skóla Haraldur tók sjálfur saman kostnað á nemanda í skólum bæjar ins og þar kemur í ljós að hann er mjög mismunandi hvort sem miðað er við launakostnað á hvern nemenda eða annan rekstr­ ar kostnað á hvern nem anda. Hraunvallaskóli er stærsti skóli landsins með 749 nemendur en þar eru útgjöldin jafnframt lægst á hvern nemanda. Munur er á skólum með sambærilegum nemendafjölda, einnig ef borið er saman við aðra jafnstóra skóla á landinu. Með greiningunni á að fá skýringar á þessum mun og hvernig hægt sé að læra af þeim skólum sem eru hagkvæmastir. Kannski á þessi munur rétt á sér í einhverjum tilfellum að sögn Haraldar en nauðsynlegt sé að vita það. Aðeins eru leikskólagjöld hærri á höfuðborgasvæðinu í Garðabæ og Mosfellssveit en mun lægri í Reykjavík og í Kópa vogi. Í Hafnarfirði eru 1609 ígildi heilsdagsvistunar á leikskólum en stöðugildi starfs­ manna er 434,6. Gerir það 3,7 heilsdagsígildi á hvert starfsgildi. Í Reykjavík er hlutfallið 4,1 en aðeins í Kópavogi er hlutfallið örlítið lægra, 3,65 þegar skoðuð eru 6 stærstu sveitarfélögin. Ef miðað er við Reykjavík eru aukalega 41,9 stöðugildi í Hafnarfirði sem jafngildi kostn­ aði upp á rúmar 190 milljónir kr. á ári. Haraldur segir að ekki sé hægt að horfa fram hjá svona staðreyndum og leita þurfi skýringa. „Og það gerum við með samtali, alveg eins og við gerð­ um þegar við unnum að lausn húsnæðismála í Áslands­ og Hraunvallaskóla. Í stað þess að fara í fjárfestingar í húsnæði, leggjum við áherslu á að fjárfesta í innviðum skólastarfsins,“ segir Haraldur en nánar er sagt frá þessu annarstaðar í blaðinu. Starfsfólki hefur fjölgað hjá Hafnarfjarðarbæ, fjölgaði um 50 stöðugildi frá 2012­2013. Af hverju, spyr Haraldur. Alla svona þætti þarf að skoða, spyrja og leita skýringa. Segir Haraldur að ekki sé stefnt á uppsagnir starfs­ manna en hægt sé að hagræða þar sem slíkt þurfi með eðlilegri starfsmannaveltu. Ábyrgð Segir Haraldur að ef hann eigi að gæta ábyrgðar við meðferð fjármuna sveitarfélagsins þá geti hann ekki horft fram hjá svona stað reynd um um hærri kostnað í Hafnar firði en annars staðar þar sem það á við. Segir hann grein­ inguna eigi að vera grundvöll að ákvörðunum um aðgerðir til að nýta fjármuni bæjarbúa betur. Úttektinni á að vera lokið í febrúarlok. Haraldur L. Haraldsson bæjarstjóri í Hafnarfirði Hægt að spara án þess að skerða þjónustu – en jafnvel auka Snýst um að taka ákvarðanir Lj ós m .: G uð ni G ís la so n Nýlega samþykkti bæjarstjórn Hafnarfjarðar samhljóða að láta gera greiningu á rekstri Hafnar fjarðarbæjar. Blaðamaður hitti bæjarstjóra, Harald L. Haralds son, sem hefur einmitt gert fjölmargar slíkar greiningar fyrir önnur sveitarfélög og forvitnaðist um úttektina. verður haldinn þriðjudaginn 9. desember nk. í Golfskála Keilis Fundurinn hefst stundvíslega kl. 19:30 Dagskrá: 1. Kosning fundarstjóra og fundarritara 2. Skýrsla stjórnar 3. Endurskoðaðir reikningar lagðir fram til samþykkis 4. Lagabreytingar – stjórnarkjör (tillögur liggja frammi á skrifstofu viku fyrir fund) 5. Stjórnarkosning 6. Kosning endurskoðanda 7. Kosning fulltrúa og varafulltrúa í samtök, sem Keilir er aðili að 9. Önnur mál Kvenfatnaður áberandi í miðbænum Líflegt á tískusýningu Lilju boutique og Kakí Bæjarbíó er í dag lifandi staður sem rómaður er fyrir hljómburð. Sl. fimmtudag þyrptust þangað áhugasamir gestir um kvenfatnað og það kom víst ekki neinum á óvart að karlar sáust þar varla. Verslanirnar Kakí og Lilja boutique á Strandgötunni stóðu fyrir tískusýningunni til að kynna vörur fyrirtækisins og til að bjóða upp á skemmtilegt kvöld sem lukkaðist greinilega mjög vel. Í anddyri Bæjarbíós voru ýmsar vörukynningar og veitingar og fjölmargar fóru út með glæsilega vinninga úr happdrætti. Eftir sýningu var opið í báðum verslununum og þar var glatt á hjalla inn í nóttina.Fyrirsæturnar komu úr hópi vina og kunningja og stóðu sig vel. Björk Jakobsdóttir átti auðvelt með að draga fram bros. Lj ós m .: G uð ni G ís la so n Lj ós m .: G uð ni G ís la so n

x

Fjarðarpósturinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fjarðarpósturinn
https://timarit.is/publication/945

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.